Fréttablaðið - 27.10.2004, Síða 4
FJÁRMÁL Veruleg aukning hefur
orðið í árangurslausum fjárnám-
um á einstaklinga á árunum 1998
til 2004, miðað við fyrstu níu mán-
uði hvers árs. Þetta kemur fram í
nýrri samantekt Lánstrausts hf.
Milli áranna 2003 og 2004 hef-
ur aukningin verið um 52 prósent.
Mest er hún hjá aldurshópnum 26
til 30 ára eða um 35 prósent. Á
hæla honum kemur fólk á aldrin-
um 31 til 45 ára, þar sem aukning-
in nemur 28 prósentum. Aftur á
móti hefur árangurslausum fjár-
námum heldur fækkað hjá aldurs-
hópnum 18 til 20 ára milli ára 2003
til 2004.
„Vissulega eru þetta sláandi
tölur,“ sagði Björk Ólafsdóttir,
fjármálastjóri Lánstrausts hf.
„Við gerðum athugun á því hvort
það væri einhlít skýring fyrir
þessari miklu aukningu, en svo
virðist ekki vera. Þó leiddi sú at-
hugun í ljós að einkaneysla og
aukin skuldsetning eigi einhverja
orsök á þessarri aukningu árang-
urlausra fjárnáma. Fjöldi einstak-
linga á vanskilaskrá er um tutt-
ugu þúsund og hefur sú tala stað-
ið nokkuð í stað síðasta árið en
aftur á móti sjáum við að fleiri ár-
angurslaus fjárnám eru á hvern
einstakling heldur en verið hefur
síðustu ár. Aukningin liggur ein-
nig í því. Hún er nokkuð jöfn í öll-
um aldurshópum, þó að 26 til 30
ára hópurinn standi greinilega
upp úr. Neyslulánin virðast hafa
aukist.“
„Það getur verið allnokkuð
átak að snúa þróuninni við þegar
svona er komið í fjármálum
fólks“, sagði Björk ennfremur.
„Sumu fólki finnst ef til vill erfitt
að setja sig í samband við kröfu-
hafa og bíður of lengi með það. Á
meðan rúllar boltinn og vefur
utan á sig uns fólki finnst sem því
séu allar bjargir bannaðar.“
Björk sagði að aukning árang-
urslausra fjárnáma væri einnig til
staðar hjá fyrirtækjum. Þar hefðu
þau aukist um fjörutíu prósent á
fyrstu níu mánuðum 2004 miðað
við sama tímabil 2003.
Síðastliðinn vetur fóru starfs-
menn frá Lánstrausti hf. með
stuðningi banka og fjármálafyrir-
tækja í tíunda bekk grunnskóla á
höfuðborgarsvæðinu og héldu
stutt námskeið um forvarnir í
fjármálum. Lánstraust hf og
stuðningsaðilar ætla sér að halda
þessum námskeiðum áfram.
jss@frettabladid.is
4 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
Framsóknarfélag Dalasýslu lýsir stuðningi við
Kristin H. Gunnarsson:
Vill að þingflokkur
biðjist afsökunar
STJÓRNMÁL Málflutningur Kristins
H. Gunnarssonar, þingmanns
Framsóknarflokksins, er í fullu
samræmi við almennan vilja kjós-
enda flokksins. Þetta kemur fram
í ályktun aðalfundar Framsóknar-
félagsins í Dalasýslu. Á fundinum
var stuðningsyfirlýsing við Krist-
in samþykkt einróma.
„Aðalfundurinn skorar á þing-
flokk Framsóknarflokksins að
endurskoða þá ákvörðun sína að
vísa Kristni H. Gunnarssyni úr
öllum nefndum á vegum Alþingis
og lítur á slík vinnubrögð sem
mannréttindabrot gagnvart hon-
um og kjósendum flokksins í kjör-
dæminu,“ segir í ályktun félags-
ins. „Þetta er atlaga að almennu
lýðræði í Framsóknarflokknum,
og væri ekki til of mikils ætlast að
þingflokkurinn bæðist afsökunar
á framkomunni.“
Framsóknarfélagið Dalasýslu
er fjórða félagið til að mótmæla
þeirri ákvörðun þingflokks Fram-
sóknarflokksins að útiloka Kristin
H. Gunnarsson frá setu í fasta-
nefndum Alþingis. Hin félögin
sem mótmælt hafa eru Framsókn-
arfélag Barðastrandarsýslu, Bol-
ungarvíkur og Hólmavíkur-
hrepps.
- th
DÆMDUR FYRIR FJÁRDRÁTT
Maður á fimmtugsaldri var Í
Héraðsdómi Reykjavíkur
dæmdur í 30 daga skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa
dregið sér tæpar 56 þúsund
krónur þegar hann starfaði
sem bifreiðastjóri hjá fyrir-
tæki. Maðurinn hafði ekki
áður gerst sekur um refsi-
verða háttsemi.
KÝLDI LÖGREGLUMANN Tæp-
lega fimmtugur maður var í
Héraðsdómi Reykjaness
dæmdur í 30 daga skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að slá
lögreglumann með krepptum
hnefa í andlitið. Lögreglumað-
urinn marðist í andliti, tönn
brotnaði og fjarlægja þurfti
tönn sem losnaði.
■ DÓMAR
Léstu sprauta þig gegn flensu?
Spurning dagsins í dag:
Óttastu hrun á íslenska hlutabréfa-
markaðnum?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
16%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
ANDRÉS JÓNSSON
Á fundi Samfylkingarfélags Reykjavíkur í
gærkvöld þar sem rætt var um framtíð
Reykjavíkurlistans.
Reykjavíkurlistinn:
Staða Sam-
fylkingar er
óásættanleg
STJÓRNMÁL Staða Samfylkingarinn-
ar innan Reykjavíkurlistans er óá-
sættanleg miðað við fylgi flokks-
ins í borginni. Þetta kom fram í
máli Andrésar Jónssonar, for-
manns Ungra jafnaðarmanna, á
fundi Samfylkingarfélags Reykja-
víkur í gærkvöld.
Andrés segir að miðað við fylg-
ið í kosningunum megi búast við
því að flokkurinn fengi sex borg-
arfulltrúa af fimmtán en nú eru
tveir borgarfulltrúar Reykjavík-
urlistans frá Samfylkingu. Miðað
við sömu forsendur fengi Sjálf-
stæðisflokkur einnig sex fulltrúa
og Framsóknarflokkur, Vinstri
grænir og Frjálslyndir einn borg-
arfulltrúa hver.
„Þetta hlýtur að vera eitthvað
sem Samfylkingarfólk í Reykja-
vík þarf að skoða vandlega þegar
tekin verður afstaða til þess hvort
við höldum áfram samstarfi um
R-lista,“ segir Andrés. - ghg
KRISTINN Á ÞINGFLOKKSFUNDI
Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður sat
sinn fyrsta þingflokksfund hjá Framsóknar-
flokknum 6. október eftir að ákveðið var
að hann sæti í engum þingnefndum fyrir
flokkinn.
84%
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
TVÖ INNBROT Brotist var inn í
bílskúr á Álfaskeiði og inn í bíl
við Austurgötu í Hafnarfirði
fyrrinótt. Verkfærum var stolið
úr bílskúrnum og hljómflutnings-
tækjum úr bílnum. Málin eru í
rannsókn.
Einkaneysla leiðir til
árangurslausra fjárnáma
Árangurslaus fjárnám á einstaklinga hafa aukist um rúmlega 50 prósent á fyrstu níu mánuðum
þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra. Mest er aukningin hjá aldurshópnum 26 til 30 ára.
BÍLALÁN
Nokkuð algent er að bílakaup með bílalánum valdi því að fólk kemst í fjárhagsvandræði.
2004
2003
A
ld
ur
60+
56-60
51-55
46-50
41-45
36-40
31-35
26-30
21-25
18-20
0 100 200 300 400 500 600
Fjöldi
ÁRANGURSLAUS FJÁRNÁM SAMANBURÐUR
Á 2003 OG 2004 ALDURSKIPT
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004
2.
69
5
3.
30
0
4.
12
1 5
.9
13 7
.3
19 8.
21
0
12
.4
21
ÁRANGURSLAUS FJÁRNÁM
1998-2004 FYRSTU 9 MÁN.