Fréttablaðið - 27.10.2004, Qupperneq 8
8 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
Leiðbeinendur í 122 af 179 grunnskólum landsins:
Fækkar vegna mögu-
leika á fjarkennslu
SKÓLAMÁL Leiðbeinendur, það er
þeir sem ekki hafa lokið kennara-
námi, starfa í rétt tæplega 70 pró-
sentum grunnskóla landsins.
Þeim hefur fækkað um 216 milli
áranna 2003 og 2004 og eru sam-
þykktar umsóknir menntamála-
ráðuneytisins í ár 406 miðað við
622 í fyrra.
Hanna S. Hjartardóttir nýend-
urkjörinn formaður Skólastjórafé-
lags Íslands segir ýmsar ástæður
skýra breytingarnar. Hún nefnir
tvær helstar:
„Þegar þrengir að vinnumark-
aði koma kennarar aftur í skólana.
Einnig má horfa til þess að eftir því
sem árin líða hefur möguleiki leið-
beinenda til að afla sér réttinda
orðið meiri.“
Samkvæmt upplýsingum hefur
leiðbeinendum sem eru í fjarnámi
þegar þeir hefja kennslu einnig
fækkað milli ára. Í fyrra voru þeir
137 en nú 70. Hanna segir skýring-
una geta verið að mikill meirihluti
þeirra leiðbeinenda sem starfi í
skólunum hafi þegar leitað rétt-
inda. Sjá megi að fleiri réttinda-
kennarar séu úti á landi en áður
vegna fjarnáms. - gag
Sjálfstæðismenn rétta
R-listanum ekki litlafingur
Óánægja vex meðal sveitarstjórnarmanna vegna þess hve viðræður ríkisstjórnarinnar og
sveitarfélaganna um tekjuskiptingu ganga hægt. Stefán Jón Hafstein segir andúð sjálfstæðis-
manna á R-listanum stöðva málið. Borgarstjóri leitaði á náðir fjárlaganefndar.
TEKJUSKIPTING Sveitarfélögin fá
ekki auknar tekjur á meðan
Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkis-
stjórn og Reykjavíkurlistinn er
við völd í Reykjavík. Þetta segir
Stefán Jón Hafstein, borgarfull-
trúi Reykjavíkurlistans og for-
maður framkvæmdastjórnar
Samfylkingarinnar.
Hann segir fjölda fólks hafa
kvartað yfir því að ríkisstjórnin
fáist ekki í viðræður um verkefni
í borginni af því að Reykjavíkur-
listinn sé við völd. „Meint
fjármálaóstjórn Reykjavíkurlist-
ans hefur verið aðalstefið hjá
sjálfstæðismönnum í minnihluta
borgarstjórnar og á meðan svo er
munu ráðherrar sjálfstæðis-
manna ekki hreyfa litla fingur til
að auka tekjur sveitarfélaganna.
Það gæti veikt málstað flokks-
bræðra þeirra í borginni.“ Þetta
segir Stefán vera misbeitingu
ríkisvaldsins. Fjármálaráðstefna
sveitarfélaganna fer fram næsta
mánudag og er búist við því að
þar verði hart deilt á ríkisstjórn-
ina vegna tekjuskiptingar ríkis
og sveitarfélaga.
Í minnisblaði sem Þórólfur
Árnason, borgarstjóri, sendi fjár-
laganefnd Alþingis í haust, rekur
hann þau atriði sem að hans mati
mættu betur fara í tekjuskipt-
ingu ríkisins og borgarinnar. Þar
kemur fram að kennsla í grunn-
skólum Reykjavíkur hafi aukist
um sem svarar tveimur árum
vegna lengingar skóladags og
skólaárs. Á meðan hafi ríkið
sparað sér ríflega 700 milljónir
króna á ári með því að láta grunn-
skólana taka að sér verkefni
framhaldsskólans.
Þá segir borgarstjóri að til-
teknar ríkisstofnanir séu undan-
þegnar fasteignaskatti. Með því
verði borgin af skatttekjum sem
nemi tæpum hálfum milljarði
króna frá ríkinu á ári. Húsaleigu-
bætur hafi líka í auknum mæli
lent á borginni eftir að ríkið hóf
að greiða fasta árlega upphæð í
stað ákveðins hlutfalls af bótun-
um eins og tíðkaðist áður. Útgjöld
borgarinnar verði því 720
milljónir á þessu ári og hafa
hækkað um sjötíu prósent frá
árinu 2002. Borgarstjórinn telur
einnig til skuldbindingar ríkisins
vegna EES samningsins og segir
þær hafa kostað borgina mikið
fé. Að lokum telur borgarstjórinn
upp ný lög um einkahlutafélög
sem leiði til þess að sveitarfélög-
in verði af rúmum milljarði
króna á ári.
ghg@frettabladid.is
Þýskt par handtekið:
Sjálfsvígi
forðað
NOREGUR, AP Lögreglan á Kristjáns-
sandi stöðvaði ungt þýskt par sem
hafði áætlað að fremja sjálfsvíg
með því að stökkva fram af
Prekestolen, 600 metra háu bjargi
sem er vinsæll ferðamannastaður á
vesturströnd Noregs. Rannsókn
leiddi í ljós að parið hafði kynnst á
spjallsíðu á sem helgað er sjálfsvíg-
um og sammæltist þar um að stökk-
va hina hinstu ferð saman.
Fyrir fjórum árum frömdu aust-
urrísk kona og norskur maður
sjálfsvíg með sama hætti. Leikgerð
af sögu þeirra, „Norway.today.“ hef-
ur verið sýnt í leikhúsum víða um
Þýskaland. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
SVONA ERUM VIÐ
ÞRÓUN Á SÖLU LYFJA
Ár Verðmæti (milljónir)
1998 8.262
1999 9.176
2000 10.462
2001 13.005
2002 13.675
Taflan tekur til seldra lyfja sem ætluð eru mönnum og
eru á sérlyfjaskrá.
Heimild: Hagstofa Íslands.
ÚR BORGARSTJÓRN
Í bréfi borgarstjóra til fjárlaganefndar Alþingis segir að tilteknar ríkisstofnanir séu undanþegnar fasteignaskatti. Með því verði borgin af
skatttekjum sem nemi tæpum hálfum milljarði á ári.
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
Meint fjármálaóstjórn Reykjavíkurlistans
hefur verið aðalstefið hjá sjálfstæðismönn-
um í borgarstjórn. Þess vegna samþykkir
ríkisstjórnin ekki auknar tekjur til sveitarfé-
laganna að mati Stefáns.
TEKJUSKIPTING Stefán Jón Hafstein
er að snúa málum á haus með því
að saka ríkisstjórnina um að halda
Reykjavíkurborg og sveitarfélög-
unum í fjársvelti að sögn
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, borg-
arfulltrúa og þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins.
„Það stenst enga skoðun því
ríkisstjórnin hefur dælt pening-
um í Reykjavíkurlistann,“ segir
Guðlaugur Þór. „Ríkið keypti til
dæmis Borgarspítalann af borg-
inni og framkvæmdir við sam-
göngumannvirki í Reykjavík hafa
aldrei verið meiri en í tíð þessarar
ríkisstjórnar. Það er meira að
segja svo komið að Reykavíkur-
listinn hafnar fjármunum sem
ríkisstjórnin hefur boðið. Meðal
annars í mislæg gatnamót við
Kringlumýrarbraut og Miklu-
braut.“
Guðlaugur segir að tekjur
borgarinnar af hverjum íbúa hafi
aukist meira en tekjur ríkisins. Í
fyrsta lagi vegna bætts efna-
hagsástands og í öðru lagi vegna
hækkunar fasteignamats. „Þrátt
fyrir þetta hefur forysta Reykja-
víkurlistans nýlega gengist við
því að fjárhagsstaðan sé slæm.
Það er síðan alveg á skjön við það
sem þeir sögðu við kjósendur fyr-
ir síðustu kosningar.“ - ghg
Sameinaður skóli:
Nýtt
háskólaráð
MENNTAMÁL Gengið hefur verið frá
skipan stjórnar í nýjum samein-
uðum háskóla sem tekur yfir alla
starfsemi Háskólans í Reykjavík
og Tækniháskóla Íslands. Hún
mun jafnframt gegna hlutverki
háskólaráðs, Stjórnarmenn eru
tilnefndir af stofnendum einka-
hlutafélags um eignarhald á hin-
um nýja skóla.
Í nýju háskólaráði sitja eftir-
greindir: Ásdís Halla Bragadóttir,
Elfar Aðalsteinsson, Finnur
Geirsson, Jón Ágúst Þorsteinsson,
Jón Sigurðsson, Katrín Péturs-
dóttir og Sverrir Sverrisson, sem
verður jafnframt formaður há-
skólaráðs. Varamenn eru Guðný
Káradóttir, Kristín S. Hjálmtýs-
dóttir og Sjöfn Sigurgísladóttir. ■
LEIÐBEINENDUR Í GRUNN-
SKÓLUM LANDSINS
2004 2003 2002
Samþykktar umsóknir 406 622 679
Þar af í fjarnámi 151 231 168
Synjanir 70 137 168
Vísað frá 7 3 2
Samtals 37 768 849
Heimild: Menntamálaráðuneytið
Talning 25. okt. 2004
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON
Ekki sammála Stefáni J. Hafstein um að
ráðherrar Sjálfstæðisflokks beiti sér fyrir því
að efla ekki tekjustofna Reykjavíkurborgar.
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks:
Ríkið hefur dælt
peningum í borgina
HAMID KARZAI
Karzai hefur hlotið 55,4 prósent taldra at-
kvæða.
Augljóst kosningasvindl:
Kosningar
standa
AFGANISTAN, AP Þó að kosninga-
svindl hafi augljóslega átt sér stað
í kosningunum í Afganistan er
nánast útilokað að kosningarnar
verði dæmdar ógildar að sögn
kosningaeftirlitsmanns.
Ljóst þykir að átt hafi verið
ólöglega við nokkra kjörkassa.
Eftirlitsmaðurinn, sem ekki er
nafngreindur, segir hins vegar að
þótt öll atkvæðin úr þeim yrðu
dæmd ógild myndi Hamid Karzai,
bráðabirgðaforseti Afganistans,
samt áður verða kjörinn forseti.
Þegar búið er að telja 97 prósent
atkvæða hefur Karzai fengið 55,4
prósent þeirra. ■
BILUN Í FLUGVÉL Metro-flugvél á
leið frá Akureyri til Reykjavíkur
var snúið við vegna viðvörunar-
ljóss um bilun í hreyfli vélarinnar
í gærmorgun. Sjö farþegar auk
áhafnar voru í vélinni sem var
lenti heilu og höldnu á Akureyrar-
flugvelli. Farþegarnir fóru með
næsta flugi til Reykavíkur.