Fréttablaðið - 27.10.2004, Side 10

Fréttablaðið - 27.10.2004, Side 10
FISKELDI Það er ekki stefnt að því að eitt fagráðuneyti hafi yfirum- sjón með útgáfu leyfa til fisk- eldis, að sögn Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. „Ég lít ekki á leyfisveitingarn- ar sem eitthvert vandamál,“ seg- ir Árni. „Jafnvel þó það þurfi að sækja um fleiri en eitt leyfi snýr það ekkert að stjórnsýslunni í ráðuneytunum sérstaklega. Það er einfaldlega um það að ræða að atvinnuvegaráðuneytin, um- hverfisyfirvöld og sveitarfélög sjá um þetta. Þetta á ekki að vera neitt stórvandamál.“ - th 10 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR BRÓÐIR STRÍÐSGLÆPAMANNS Luka Karadzic, bróðir hins eftirlýsta stríðs- glæpamanns Radovan Karadzic, heldur á bók bróður síns sem kynnt var í Belgrad fyrir helgi. Bókin nefnist „Undursamleg frá- sögn næturinnar“. Karadzic, sem er eftirlýst- ur af Sameinuðu þjóðunum, kom bókinni í hendur útgefanda með leynilegum hætti. Reykjanes: Lagst gegn sameiningu SVEITARSTJÓRNIR Sveitarstjórnar- menn á Suðurnesjum hafa lagst gegn tillögu Árna Magnússonar félagsmálaráðherra um samein- ingu allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum í eitt. Tillagan er hluti af áætlun um að fækka sveitarfélögum á landinu á næsta ári um 64, úr 103 í 39. Hörður Guðbrandsson, forseti bæjarstjórnar í Grindavík, segir félagsmálaráðherra fullyrða að tillagan sé lögð fram eftir sam- ráð við sveitarstjórnir á svæð- inu. Það standist þó varla skoðun þar sem bæjarstjórnir Grinda- víkur, Garðs og Sandgerðis hafi lagst gegn sameiningu. Aðeins bæjarstjórn Reykjanesbæjar hafi verið henni fylgjandi. „Ég held að ætlunin sé að við greiðum upp skuldir Reykjanes- bæjar því Grindavík stendur mun betur fjárhagslega en við samþykkjum það ekki.“ Hörður segist viss um að Grindvíkingar kjósi gegn sam- einingunni. „Síðast var kosið um sameiningu árið 1993 og þá voru níu af hverjum tíu andsnúnir henni. Ég held að andstaðan í bænum hafi aukist síðan þá og ég heyri engan í bænum mæla með henni.“ Bæjarráð Grindavíkur hefur boðað fulltrúa ráðuneytis- ins á sinn fund í næstu viku vegna málsins. - ghg HÖRÐUR GUÐBRANDSSON Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segir litlar líkur á því að tillögur félagsmálaráðherra um sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesj- um verði að veruleika. M YN D /V ÍK U R FR ÉT TI R Ólafsfjörður: Heilsugæslan á hættusvæði OFANFLÓÐAMAT Stefanía Trausta- dóttir, bæjarstjóri í Ólafsfirði, segir húsið sem hýsir bæði heilsu- gæsluna og dvalarheimili bæjarins vera það eina sem er inni á mesta hættusvæðinu samkvæmt nýju of- anflóðamati. Hún segir rétt að hafa í huga að líkurnar á flóði á húsin séu samt sem áður ekki miklar. Stefanía segir að eftir hálft ár þurfi bæjaryfirvöld í Ólafsfirði að gera umhverfisráðherra grein fyrir hvernig þau ætla að bregðast við. Miðað við reynslu annarra sveitarfélaga verði trúlega reistur varnargarður sunnan við heilsu- gæslustöðina. ■ FISKELDI Einungis 40 prósent starfandi fiskeldisstöðva eru með rekstrarleyfi og af 83 starfandi stöðvum virðast aðeins 70 vera með starfsleyfi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Valdimars Inga Gunnarssonar um stöðu og fram- tíðaráform í íslensku fiskeldi. Skýrslan var unnin fyrir landbún- aðar- og sjávarútvegsráðuneytið. Ástæðan fyrir þessum brotalömum er að leyfisveitingakerfið er bæði flókið og hægvirkt segir í skýrsl- unni. Dæmi eru um að umsóknir hafi verið í vinnslu í meira en ár. Valdimar Ingi telur að íslenska kerfið sé flóknara en kerfið í Nor- egi, Kanada og Skotlandi. Telur hann þetta meðal annars stafa af því að starfsleyfi og rekstrarleyfi eru aðskilin og að þrjú ráðuneyti, fjórar stofnanir og heilbrigðiseftir- lit sveitarfélaganna komi við sögu við leyfisveitingarnar. Komið hafa upp vandamál vegna þess hversu kerfið er flókið. Í Rauðuvík í Eyjafirði sóttu til dæmis tvö fyrirtæki um starfsleyfi á sama svæði til tveggja mismunandi stofn- ana. Brim fiskeldi ehf. sótti um leyfi hjá Umhverfisstofnun en Norður- skel ehf. til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra. Valdimar Ingi segir einnig dæmi um að stofnanir biðji um mismunandi gögn áður en þau gefi út starfsleyfi og það verði að teljast óeðlilegt. Ódýrara er að sækja um starfs- leyfi fyrir eldi undir 200 tonnum og hefur það haft þær afleiðingar að sums staðar hafa fyrirtæki sótt um starfsleyfi fyrir nokkrar 200 tonna fiskeldisstöðvar í sama firðinum. Þannig hafa fyrirtæki komist hjá því að borga hærra gjald og kostnað við að tilkynna framkvæmd til Skipulagsstofnunar. Til þess að bæta úr þessari stöðu leggur Valdimar Ingi til að eitt fagráðuneyti hafi yfirumsjón með útgáfu leyfa til fiskeldis. Telur hann að þannig sé hægt að tryggja markvissari stjórnun, samhæfingu og yfirsýn. Einnig leggur hann til að útbúinn verði leiðbeiningarbæklingur til að staðla og samræma umsóknarferlið. Að lokum telur hann brýnt að gera við- eigandi laga- og reglugerðarbreyt- ingar til að auðvelda skipulagningu strandsvæða. trausti@frettabladid.is FISKELDI Á AUSTFJÖRÐUM Ódýrara er að sækja um starfsleyfi fyrir eldi undir 200 tonnum. Dæmi eru um að fyrir- tæki hafi sótt um starfsleyfi fyrir nokkrar 200 tonna fiskeldisstöðvar í sama firðinum. þú gætir unnið miða fyrir tvo á Edduhátíðina taktu þatt - kjostu núna´ ´ ALLT UM EDDUNA A VISIR.IS´ ÁRNI M. MATHIESEN Ráðherra segir að ekki sé til umræðu að eitt ráðuneyti hafi yfirumsjón með leyfisveitingum. Leyfisveitingar í fiskeldi: Ekkert vandamál Héraðsdómur Reykjavíkur: Stal páskaeggi og átti hass DÓMSMÁL Í Héraðsdómi Reykja- víkur var nítján ára piltur dæmdur í þriggja mánaða skil- orðsbundið fangelsi og sextán ára piltur dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaðarbrot. Mál þriðja piltsins, sem var ákærður fyrir mörg brot sem hann er sagður hafa framið í félagi við piltana tvo, var skilið frá þessu máli. Nítján ára pilturinn var ákærður ásamt þriðja piltinum fyrir innbrot í ellefu bíla á höfuðborgarsvæðinu þaðan sem þeir stálu ýmsum verðmætum. Sá sextán ára er dæmdur fyrir innbrot í bíl sem hann framdi líka í félagi við þriðja piltinn. Þá er hann einnig sakfelldur fyrir að stela páskaeggi og að hafa haft tæpt gramm af hassi í fór- um sínum. ■ Stjórnleysi í útgáfu leyfa til fiskeldis Brotalamir eru á leyfisveitingum til fiskeldisstöðva. Kerfið þykir mjög flókið og hægvirkt. Fyrir- tæki nýta sér gloppur í kerfinu til að minnka kostnað. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.