Fréttablaðið - 27.10.2004, Side 14

Fréttablaðið - 27.10.2004, Side 14
14 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR „Jarðböðin hér hafa notið mikillar hylli, jafnvel meiri heldur en menn gerðu ráð fyrir í sínum villtustu draumum,“ sagði Sigbjörn Gunnarsson, sveitarstjóri í Mý- vatnssveit. Hann sagði að um langt skeið hefði Mývatnssveitin verið samfélag í miklum stöðugleika. Ekki hefði verið um veru- lega fólksfækkun að ræða, miðað við það sem víða hefði verið annars staðar. Mývetningar hafa þó séð fram á svartari daga heldur en nú, þegar ákveðið var að loka Kísiliðjunni. Um tíma leit út fyrir að margir myndu missa vinnuna og sveitarfélagið umtalsverðar tekjur, en nú horfir betur en áður, eftir að skriður komst á kísilduftverksmiðju í héraðinu. Sigbjörn kveðst afar ánægur með þá þróun mála. „Annað er einnig ánægjulegt, sem er að þegar þrengingar ganga yfir, þá vill fólkið samt sem áður vera heima. Það segir einhverja sögu. Það er að minnsta kosti betra þegar ekki brestur á flótti, þótt tíðindi geti verið heldur váleg eins og var um lokun Kísilverksmiðj- unnar. Fólk vill fremur þreyja þorrann og búa hér áfram.“ Sigbjörn sagði að sjálfum fyndist sér indælt að búa í Mývatnssveitinni, sam- göngur færu batnandi og mannlíf væri gott. „Mývetningar eru vissulega stoltir og það er allt í góðu lagi,“ sagði hann. „Sem betur fer eru þeir ekki skaplausir. Menn komast ekkert hafi þeir ekki stolt, en séu sjálfstrausti rúnir.“ PYLSA MEÐ ÖLLU KOSTAR 186KRÓNUR Um er að ræða meðalverð tíu pylsusölustaða víða um land. HVAÐ KOSTAR ÞAÐ? Jarðböðin njóta mikillar hylli HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGBJÖRN GUNNARSSON SVEITARSTJÓRI Líklegt er að híbýlin að Uppsölum í Selárdal verði gerð upp og að þar verði safn, helgað minningu einbú- ans Gísla Gíslasonar. Árni Johnsen hefur unnið að hugmyndum um átak í ferðaþjónustu og atvinnu- málum í Vesturbyggð og Tálkna- firði og lýtur ein tillagan að slíku safni. Árni og Ómar Ragnarsson, sem báðir kynntust Gísla og tóku við hann viðtöl, hafa lýst sig reiðubúna til að hrinda verkefninu úr vör og afla til þess fjár. Sjá þeir fyrir sér að safnið standi öllum opið og að gesturinn verði um leið safnvörður og skilji við eins og hann kom að. Íbúðarhúsið er í ágætu ásigkomu- lagi og í raun þarf lítið til að koma safninu á fót. Árna Johnsen er minnisstætt þegar hann hitti Gísla fyrst en síð- an eru liðin mörg ár. „Ég var á skemmtun með Sumargleðinni á Bíldudal og gaf mig á tal við ein- hverja karla. Þeir sögðust halda að það væri skrítinn karl þarna inni í dal og ég bað Ómar um að fljúga með mér þangað.“ Gísli tók Árna heldur fálega í fyrstu en þeir kvöddust sem vinir eftir að Árni hafði setið hjá honum í fimm klukkustundir. „Ég spurði svo hvort ég mætti koma aftur aðeins seinna og þá með Ómar Ragnars- son með mér en honum fannst það ómögulegt og bað mig um að koma ekki aftur það sumarið,“ segir Árni. Ástæðan var sú að Gísli hafði ætlað að hefja slátt þennan dag en heimsókn Árna setti þau áform hans úr skorðum. Taldi hann viss- ara að eiga ekki á hættu að fá slíka heimsókn aftur fyrr en í fyrsta lagi með haustinu. Síðar fregnaði Árni af fólki sem var á ferð í Selárdal og ætlaði að heilsa upp á Gísla á Uppsölum. Hann var fáorður en aðeins lifnaði yfir honum þegar fólkið minntist á að hafa lesið viðtal Árna við hann. Sagði hann þá að til sín hefði kom- ið blaðamaður fyrr um sumarið og lýsti því svo yfir að blaðamaðurinn sá hefði verið skrítinn. Árna er skemmt þegar hann rifjar þetta upp. Gísli á Uppsölum fæddist 29. október 1907 og lést á gamlársdag 1986. Síðustu árin bjó hann á hjúkrunarheimilinu á Patreksfirði. bjorn@frettabladid.is Safn helgað Gísla á Uppsölum: Árni Johnsen er skrítinn ÁRNI JOHNSEN VIÐ UPPSALI Gísla fannst Árni skrítinn. INNAN DYRA Á UPPSÖLUM Húsið er í ágætu standi og munir Gísla varðveittir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M HEIMILISTÆKI Svo virðist sem slokknað hafi á gríðarlegum vin- sældum gaseldavéla – í bili í það minnsta. Seljendum eldavéla sem blaðið hefur rætt við ber saman um það. Ekki er langt síðan að varla var borin ný eldavél í hús án þess að hún væri knúin gasi en það hefur breyst og er rafmagnið komið ofar á vinsældarlistann á ný. Við- mælendum blaðsins bar saman um að engar skynsamlegar skýr- ingar væru á þessari breytingu, nema þá verðið en gaseldavélar eru dýrari. Matgæðingar sem eldað hafa á gasi segja það engu líkt og geta ekki hugsað sér að þurfa að hræra í pottum og pönnum á rafmagns- hellu á ný. Fólk sem alla tíð hefur eldað á rafmagnseldavélum og hyggst gera það áfram, ber yfir- leitt hræðslu við gasið fyrir sig þegar sölumenn reyna að koma því í gasið. Verður engu tauti komið við slíkt fólk, sama hvað reynt er enda ótti eitthvað sem ekki er yfirstiginn í raftækja- verslun. - bþs Rafmagnseldavélar sækja í sig veðrið: Gassóknin stöðvuð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.