Fréttablaðið - 27.10.2004, Side 23
3MIÐVIKUDAGUR 27. október 2004
Sími 588 0303 • www.enskuskólinn.is
Lífið eftir stúdentspróf:
Í millibilsástandi til Möltu
Þuríður Pétursdóttir lauk stúd-
entsprófi frá Verslunarskólanum
síðastliðið vor og vissi eiginlega
ekkert hvað hana langaði að læra
þegar þeim áfanga var náð.
„Eiginlega langaði mig að taka
mér ársfrí, en hálflangaði líka að
læra eitthvað. Ég vissi að minnsta
kosti að ég var ekki tilbúin í
háskólann alveg strax,“ segir
Þuríður. „Ég fór því niður í Stúd-
entaferðir til að athuga með ein-
hverskonar starfsþjálfun í Evr-
ópu eða Bandaríkjunum og endaði
með helling af málaskólabækling-
um í höndunum. Það sem mér
fannst mest spennandi var bæk-
lingur frá EF International, en
þeir eru með skóla um allan heim.
Malta talaði sterkt til mín og ég
ákvað að slá til í níu mánaða pró-
gramm þar, sem felst í að búa hjá
fjölskyldu á staðnum og vera í
skóla í nokkra tíma á dag.“
Þuríður segir að þetta minni
sannarlega um margt á
skiptinemaprógramm en sé þó
ekki það sama. „Dvölinni er skipt
niður í tímabil, mér skilst að fyrra
tímabilið fari mest í enskunám en
seinna tímabilið í fög sem maður
velji á staðnum. Ég er samt
ekkert búin að skoða þetta vel, ég
vil láta koma mér á óvart,“ segir
Þuríður hlæjandi og viðurkennir
að hún viti sáralítið um Möltu.
„Ég veit að eyjan er 354 ferkíló-
metrar og að þar búa tæplega
400.000 manns. Ég veit líka að
höfuðborgin heitir Valeta og bær-
inn sem ég mun búa í heitir St.
Juliens og er rétt hjá höfuðborg-
inni. Ég fer ein því mér finnst
mikilvægt að læra að treysta á
sjálfa mig og læra af reynslunni.
Öll reynsla er góð, hvort sem hún
er skemmtileg eða leiðinleg.“
Þuríður ætlar líka að reyna að
komast til botns í tungumáli Malt-
verja sem heitir maltí. „Það er ein-
hvers konar arabíska með sam-
bland af suður-evrópskum málum
og ég vona að ég verði farin að skil-
ja hrafl í því eftir níu mánuði. En
fyrst og fremst held ég að þetta
verði góður undirbúningur fyrir
framtíðina, sem gæti allt eins orðið
stjórnmálafræði í HÍ.“ ■
Þuríður Pétursdóttir ætlar að upplifa ævintýri á Möltu áður en hún tekur ákvörðun
um háskólanám.
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á ÞRIÐJUDÖGUM
Skólavefir á netinu:
Gagnvirkt námsefni og leikir
Áhugi á vefjum sem bjóða upp á
námsefni hefur aukist nokkuð nú í
verkfalli grunnskólakennara.
Skólavefurinn hefur starfað í
fjögur ár en þar er að finna ýmis-
legt efni fyrir grunnskólabörn,
börn í leikskóla og einnig fram-
haldsskólanema. Vefurinn er
áskriftarvefur og nú eru 5.000
skráðir notendur, en þar fyrir
utan eru 92% grunnskóla landsins
í áskrift.
Ingólfur Björgvinsson, einn
umsjónarmanna vefsins, segir að
nýtt efni sé uppfært á hverjum
degi. „Við reynum að hafa þetta
fjölbreytt þannig að allir aldurs-
hópar finni eitthvað sem þeim lík-
ar. Það sem hefur gerst núna er að
nemendur og foreldrar sækja
mikið til okkar. Hægt er að kom-
ast inn á vefinn með því að slá inn
skolavefur.is.
Námsgagnastofnun er einnig
með vef sem opinn er öllum.
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir
kynningarfulltrúi Námsgagna-
stofnunar segir margt fólk hring-
ja inn með fyrirspurnir, bæði for-
eldrar og nemendur, og þó að vef-
urinn sé fyrst og fremst ætlaður
kennurum sé hann gagnlegur öll-
um. „Við erum með mikið af gagn-
virku efni og verkefnum til út-
prentunar sem börn á öllum aldri
geta nýtt sér. Þá má ekki gleyma
heilmiklu efni fyrir litlu krakkana
sem eru að læra að lesa og reikna.
Fyrir þau er mikið í boði af leikj-
um sem nýtast þeim í náminu.“
Vefur Námgagnastofnunar er
nams.is. ■
Frá vinstri: Júlíus Hjörleifsson, Jean-
Rémi Chareyri og Stefano Rosatti, kenn-
arar við Estudiolatino.
Tungumálakennsla:
Einkatímar
fyrir alla
Estudiolatino er nýstofnað fyrir-
tæki sem býður upp á einkatíma í
frönsku, spænsku og ítölsku. Einnig
standa til boða tveggja og þriggja
manna kennslustundir fyrir þá sem
ekki hentar að læra í stærri nem-
endahópum. Mikil eftirspurn er eft-
ir einkatíma í tungumálum enda
margir kostir við að hafa kennar-
ann algjörlega út af fyrir sig.
Estudiolatino býður einnig upp á
menningarkúrsa þar sem kennari
veitir upplýsingar um viðkomandi
land og fléttar saman sögu og
menningu landsins við skemmtileg-
ar veitingahúsaferðir.
Kennararnir í Estudiolatino eru
Jean-Rémi Chareyri frönskukenn-
ari, Júlíus Hjörleifsson spænsku-
kennari og Stefano Rosatti ítölsku-
kennari.
Nánari upplýsingar er að finna á
estudiolatino.is. ■
Á skólavefnum eru verkefni og fróðleik-
ur fyrir alla aldurshópa.