Fréttablaðið - 27.10.2004, Side 28
Íslendingar hafa um árabil haft
ímugust á fataskápum með renni-
hurðum, enda gamla kerfið ekki
beint notendavænt þegar hurð-
irnar hrukku af rennunum eða
urðu of þungar til að ýta til. Síðan
hafa liðið mörg ár og þróun í
rennihurðunum tekið stórstígum
framförum, reyndar svo mjög að
nú vilja húsbyggjendur ekkert
nema rennihurðir á nýju fata-
skápana og helst án hurðahnúða
eða halda.
Líkt og í eldhús- og baðinnrétt-
ingum eru höldulausar hurðir
það sem koma skal og sömuleiðis
fylgja tískustraumarnir í viðar-
tískunni inn í fataskápana. Hvítt-
uð eik og ljós viður eins og birki
eru vinsæl, þótt hefðbundin eik
hafi alltaf vinninginn meðal þjóð-
arinnar. Söluaðilar fataskápa eru
sammála um að smekkurinn kalli
nú á ljósan við, spegla og gler í
bland. Í gleri er sýruþvegið glært
gler vinsælast, en svart gler er að
ryðja sér til rúms og sömuleiðis
gler í fleiri litum. Þá er glerið
sett inn í álramma sem mynda
rennihurðina og ramminn notað-
ur sem grip til að opna og loka
skápunum.
Háar hurðir upp í loft eru val-
kostur sem enn heldur sér í tísku
í stað tvískiptra efri og neðri
skápa. Þá hefur nýting á plássi
fataskápanna verið úthugsuð
með alls konar hillum, skúffum,
hengjum og fellislám sem gera
allt skipulag auðvelt og aðgengi-
legt. Og þótt tískan í hvíttuðum
við og eik sé ráðandi nú á haust-
dögum eru möguleikar á útfærsl-
um skápahurða með fjölbreytt-
ara móti og hægt að velja um
hurðir úr fléttuðu basti, glans-
sprautuðum viðarplötum, plasti
og fleiru. Þannig segja menn í
sölu fataskápa og innréttinga að
allt sé í tísku og Íslendingar séu
að verða áberandi meira sjálf-
stæðari í því vali, en hættir að
mestu að elta almannaróm og val
allra hinna.
Skáparnir á myndunum eru úr
versluninni Axis.
27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR4
[ SNIÐUGT Í STOFUNA ]
1. Svart gler í rennihurðum
er nýjasta nýtt í fataskápum.
2. Stillanlegar, djúpar hillur
eru nauðsynlegar. 3. Skúffur
með gleri í álramma er falleg
lausn og brýtur upp heildarútlitið.
Fallegar lyklakippur, sem hægt er að
nota sem skraut og krækja hvað sem
er í.
890 kr. stykkið í Debenhams.
Litríkur öskubakki.
Tvö stykki fyrir 200 kr. í Tiger.
Litríkar seríur í gluggann eða upp í
hillu.
2.999 kr. í Byggt & Búið.
Hver kannast ekki við smá óreglu í
fataskápnum? Leyndardómurinn á
bak við hinn fullkomna fataskáp er
samt enginn stóri flóki, segir
Guðrún Brynjólfsdóttir sem rekur
fyrirtækið Röð og regla.
„Það er gott að setja sér ákveðnar
vinnureglur þegar raðað er inn í
fataskáp og halda sig við þá upp-
röðun. Buxur fara í neðstu hillurn-
ar og þeim raðað eftir litum; galla-
buxur sér, þá grænar og beige,
aðrir litir og svartar sér.
Langerma- og stuttermabolir fara í
sitt hvora hilluna og er sömuleiðis
raðað eftir litum, því það er bæði
aðgengilegra og fallegra fyrir
augað. Peysum raða ég svo eftir
grófleika; þykkar saman á einum
stað og þunnar annars staðar. Allt
eftir litum og þykkt.““
Á dögunum tók Guðrún fataskápa
heimilisins í gegn og skipti út sum-
arflíkum fyrir vetrarföt. „Nú er vet-
ur skollinn á og þá er talað um að
menn fari að leita að húfum og vett-
lingum. Vetrarfatnaður á ekki að
vera á óljósum stað. Eins með stutt-
buxur. Þær setur maður ofan í kassa
og nýtir pláss í vetrarföt í staðinn.“
Í fataskápum Guðrúnar eru stál-
grindur eins og margir þekkja en
hún segir vondar hirslur fyrir nær-
fatnað og sokka. „Ég mæli því með
sætum kössum sem hægt er að fá í
IKEA fyrir lítinn pening. Það er
líka góð lausn í fataskápum barn-
anna þar sem þau geta um leið
skemmt sér við að velja sokka úr
körfunni á morgnana.“
Þegar talið berst að sokkum segir
Guðrún mikilvægt að fólk geri upp
við sig að kvöldi hvort sokkarnir eigi
að fara í óhreina tauið. „Stakir
sokkar eru dularfullt mál og óskilj-
anlegt. Ég þekki fólk sem á fulla
plastpoka af ósamstæðum sokkum.
Þetta má koma í veg fyrir með því að
setja strax óhreint í þvottinn en ekki
í fatahrúgu á herbergisgólfinu.“
Í þeim skápahluta þar sem fatnað-
ur hangir á slám segir Guðrún
skyrtur, skokka og kjóla eiga
heima saman, og þar þurfi að raða
eftir litum; hvítar skyrtur saman
og svo framvegis. Og jólaföt og
spariföt eigi alltaf að geyma undir
plasti.
„Herðatré eiga að vera sömu teg-
undar og í sama lit, en vírherðatré
úr efnalaugum eru bannvara,
nema til að safna þeim saman og
skila aftur. Herðatré verða öll að
snúa eins í skápum og gott ráð er
að hneppa efstu tölunni á skyrtum
til að þær tolli á herðatrénu. Þá
þarf að setja fylgihluti eins og
töskur, belti, slæður og skó í sér-
stakar skúffur eða hillur, en hrúg-
ur á gólfi fataskáps undir hangandi
sparifötum mega ekki sjást. Ef
þessum ráðum er fylgt eftir geta
allir opnað fataskápinn sinn án
skammar og gengið að hlutunum
vísum.“
Vírherðatré bönnuð og jólafötin í plast
Guðrún Brynjólfsdóttir hefur röð og reglu í fataskápunum
1. Guðrún með kassa sem
henta vel fyrir nærfatnað og
sokka. 2. Snyrtilegur fata-
skápur er aðlaðandi.
Flottir í fataskápar
Rennihurðir með speglum og gleri eru í tísku.
1
2
1
2
3
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HEIMILISBLAÐIÐ