Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.10.2004, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 27.10.2004, Qupperneq 34
27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR10 [ SNIÐUGT Í ELDHÚSIÐ ] Dós undir kaffi. 428 kr. í Byggt & Búið. Doppótt salatskál og salatáhöld. Skál á 5.950 kr. og salatáhöld á 1.290 kr. stykkið í Í húsinu. Segulstál sem nýtist sem blómapottur eða undir sprittkerti. 200 krónur í Tiger. Fyndinn eplaskeri. 565 kr. í Byggt & Búið. Sætur eggjaskeri. 790 kr. í Debenhams. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R GÓÐ RÁÐ VIÐ PLÁSSLEYSI Nýttu eldhúsið betur + Ertu með aukapláss fyrir ofan eldhús- skápana sem gæti nýst betur? Því ekki að byggja ofan á skápana upp í loft og nýta hillupláss undir hluti sem sjaldnar eru í notkun, auk þess að sleppa við að þrífa erfið óhreinindi ofan af skápum. + Hengdu stálrist yfir eldunareyju eða matreiðsluborðið. Á hana má hengja eldhúsáhöld sem annars tækju óþarfa skúffupláss. + Hillur yfir borðplötum eru hentugar fyrir krydd, matreiðslubækur og mat- jurtir. + Gott getur verið að eiga auka borð- plötubút til að leggja yfir eldavélina þegar vinnupláss vantar. Sama má gera yfir vaskinum, þegar hann er ekki í notkun. + Sérstaklega háir undirskápar gefa betri vinnuaðstöðu, auk þess sem plássið í skápunum undir stækkar og rúmar meira. + Hjólaborð eykur borðpláss þegar mik- ið liggur við og er auðvelt í flutningum. Engu breytt í eldhúsi æskuminninganna Soffía Thorarensen flutti með fjölskylduna inn á heimili æsku sinnar og uppvaxtar í Skerjafirðinum Soffía Thorarensen kennari flutti inn á æskuheimilið. Hún flikkaði upp á eldhúsinnréttinguna en breytti engu öðru. Það er þykkt frostteppi á gras- inu fyrir utan húsið hennar Soffíu Thorarensen kennara í Skerja- firðinum. Grátt malbikið í rólegri götunni hefur breyst í glitrandi stjörnuveg. Sléttir tveir mánuðir þar til friðsælasti dagur ársins rennur upp um gjörvalla heims- byggðina; sjálfur jóladagur. Mætti reyndar halda að jólin væru komin í kyrru andrúmi um- hverfisins og hálft í hvoru felst von í því að ilmur af piparkökum eða hangikjöti berist út um dyrnar þegar Soffía opnar mót bleikri morgunsólinni. „Hjartanlega velkomin! Þetta er æskuheimili mitt. Húsið sem foreldrar mínir byggðu. Við pabbi skiptumst á íverustað. Hann fór í íbúðina okkar og við fjölskyldan fluttum hingað á æskuslóðirnar fyrir tveimur árum,“ segir Soffía glöð í bragði. Þegar innfyrir er komið blasir við stílhrein hönnun sjöunda ára- tugarins, en húsið var byggt 1968. Fáu hefur verið breytt að ráði; all- ar innréttingar eru þær sömu og foreldrar Soffíu völdu í húsið fyrir hartnær fjörutíu árum. Eldhúsið er yndislega notalegt; hlaðið töfr- um og áþreifanlegum minningum um glaðværð og gott í matinn. Eld- húsinnréttingin er úr gegnheilu tekki og harðplasti. Hurðirnar höldulausar, efri skáparnir lágir, og ferhyrndar, mosagrænar flísar milli skápa. Gluggarnir stórir og bjartir. Upprunalegur gólfdúkur á gólfinu og borðplöturnar þær sömu og Soffía smurði sér brauð- sneið á þegar hún var lítil stúlka. „Ég á bara góðar minningar úr þessu eldhúsi en við systkinin eyddum drjúgum stundum við eld- húsborðið þar sem við spiluðum, bökuðum og sinntum heimalær- dómnum meðan mamma mín heitin galdraði fram ljúfmeti og pabbi síðar brilleraði í elda- mennsku sem við börnin nutum góðs af. Eldhúsinnréttingin finnst mér falleg og því vildi ég engu breyta nema hvað við létum sprauta grænt harðplastið snjó- hvítt, í stíl við borðplöturnar, jafn- vel þótt fallega grænn liturinn hafi togað í mig lengi.“ Í eldhúsinu eru upprunaleg bak- araofn og eldhúsvifta frá General Electric, frá þeim tíma þegar end- ing, gæði og falleg hönnun voru í hávegi og fóru saman hjá fram- leiðendum eldhústækja. Ofninn og viftan eru svo vel með farin, slá- andi falleg og skínandi hrein, að erfitt er að trúa réttum aldri þeirra sem geymir sögu þúsund bakstra og sunnudagssteikna fjöl- skyldunnar í gegnum áratugina. „Þessi tæki virka alveg eins og ný,“ segir Soffía og kveikir á myndarlegri, innbyggðri loftviftu í eldhúsinu, sem hún segir hreinsa alla gufu á mettíma. Eina raftækið úr línu GE sem tekið var úr um- ferð var ísskápurinn, en þess í stað kom ísskápur sem ekki fyllti alveg út í hólfið. Þar myndaðist auka- pláss sem Soffía fyllti með hentug- um hillum úr Habitat, sem hún nú nýtir undir sprittkerti og annað sem gott er að hafa við hendina. „Við gerðum þannig ekkert við þessa innréttingu annað en að sprauta hurðirnar og viðhalda tekkinu fallegu með tekkolíu. Nokkrar smellur til að opna og loka skápahurðum þurftum við að endurnýja, en flísarnar grænu eru upprunalegar, sem og öll hönnun; eins og hillur í innréttingunni og eldhúsborðið sem foreldrar mínir létu smíða í stíl við innréttinguna.“ Og eldhúsið er enn vinsælasta herbergi fjölskyldunnar. Þar er lært, lesið, spilað, bakað og snætt góðgæti meðan sjórinn utan við Skerjafjörðinn beinir fiskunum í átt að netunum. Líka jólalegt þeg- ar það á við. 1. Þessa fallegu eldhús- innréttingu létu foreldrar Soffíu sérsmíða í eldhúsið árið 1968 og við þessi borð bakaði Soffía kökur og smurði sér brauðsneiðar sem lítil stúlka. Hún vildi engu breyta þegar hún fluttist aftur í húsið fullorðin fjölskyldukona, nema hvað grænar harðplasthurðirnar fengu hvítan lit. 2. Sonurinn Jónas Ingi Kristjánsson og Soffía við eldhúsborðið. 1 2 SVONA MIKIÐ PLÁSS ÞARFTU Nokkrar þumalputtareglur Vinnupláss í eldhúsinu ræðst vitaskuld af stærð þess. Þrátt fyrir það eru þum- alputtareglur til að miða við þegar eld- húsið er skipulagt. + Ísskápar, vaskur og eldavél taka að meðaltali um 60 sentimetra á hvorn veginn. Við ísskápinn er gott að hafa borðpláss til að leggja frá sér hlutina. + Fyrir hverja manneskju sem vinnur við eldhúsborðið þarf að reikna með 100 sentimetrum hið minnsta. Þú skalt auk þess reikna með góðu plássi fyrir eldhústæki eins og brauðrist, kaffivél og fleira sem jafnan er geymt uppi á borð- um. + Hvað ertu með í notkun og hvað ekki, þegar kemur að eldhúsáhöldum? Farðu vel í gegnum þau mál áður en þú hannar nýtt eldhús svo þú gerir þér grein fyrir hversu mikið pláss þú nauð- synlega þarft. HEIMILISBLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.