Fréttablaðið - 27.10.2004, Síða 37
MIÐVIKUDAGUR 27. október 2004 13
[ SNIÐUGT Í STOFUNA ]
Skemmtilegur bakki sem sómir sér
vel á stofuborði.
200 kr. í Tiger.
Flott box fyrir hvað sem er, prjón,
perlur eða myndir.
200 kr. í Tiger.
Klassískur vasi.
3.490 kr. í Debenhams.
Snakkskál
2.750 kr. í Í húsinu.
Krúttleg nammiskál.
199 kr. í Byggt & Búið.
Hvernig verð ég innanhússarkitekt?
Lágmarkskrafa er fjögur ár í viðurkenndum skóla til að
mega nota starfsheitin innanhússarkitekt og innanhúss-
hönnuður. Enginn viðurkenndur skóli er starfræktur á
Íslandi en margir fara til Bandaríkjanna, Ítalíu, Dan-
merkur eða Þýskalands til að læra. Í janúar árið 2007
verða hins vegar settar nýjar reglur sem ná yfir öll Evr-
ópulöndin. Þá verður kröfum innanhússarkitekta háttað
þannig að skylda verður að læra í fjögur ár og afla sér
tveggja ára starfsreynslu eða setjast á skólabekk í fimm
ár og afla sér eins árs starfsreynslu.
Hvað gera innanhússarkitektar?
„Við aðstoðum fólk við afskaplega margt og starfssvið
okkar er mjög breitt. Aðstoðin getur falist í öllu frá ein-
faldri ráðgjöf um efnisval, lýsingu eða húsbúnað og upp
í stærri verkefni þar sem þarf að hanna rými frá grun-
ni,“ segir Ásta Sigríður Ólafsdóttir, innanhússarkitekt og
ritari Félags húsgagna- og innanhússarkitekta.
„Þegar innanhússarkitektar eru fengnir til að hanna
rými frá grunni hefst ferlið á því að taka út rýmið. Síðan
er gerð svokölluð þarfagreining þar sem farið er yfir
þarfir og óskir verkkaupandans. Þá fer í gang hönnun-
arvinna þar sem innanhússarkitektinn leggur fram
tillögur um teikningar og efni. Teikningarnar eru síðan
unnar, gert aðalskipulag og sérteikningar, þ.e. veggir,
loft, lýsing og innréttingar. Loks fylgir innanhússarkitekt-
inn verkinu eftir, hefur umsjón með framkvæmdum og
samskipti við iðnaðarmenn og tekur verkið út þegar því
er lokið,“ segir Ásta. Innanhússarkitektar veita þannig
mjög alhliða þjónustu þegar kemur að heimilinu og
hanna jafnvel húsgögnin ef þess er óskað.
„Það er mjög mikil eftirspurn eftir innanhússarkitektum
á Íslandi og hún er alltaf að aukast. Sumir vilja aðeins
örlitla ráðgjöf, svona til að skapa réttu stemninguna, og
aðrir taka allan pakkann og nýta sér þjónustu innan-
hússarkitektsins í gegnum allt ferlið. Auk þess að fylgj-
ast vel með nýjungum á byggingarmarkaði eru innan-
hússarkitektar með púlsinn á nýjungum í húsbúnaði og
fylgjast vel með straumum og stefnum.
Ég get lítið sagt um verð á þjónustu innanhússarkitekta
því það fer algjörlega eftir umfangi og stærð verkefnis,
en það borgar sig örugglega að leita til fagmanneskju.
Það eru óendanlegir möguleikar í ráðgjöf okkar,“ segir
Ásta og tekur fram að auðvelt er að setja sig í samband
við innanhússarkitekta. „Það er hægt að hringja í félag-
ið og einnig skoða félagatalið á heimasíðunni okkar,
fhi.is. Við getum veitt minniháttar ráðgjöf í gegnum
síma og alltaf er hægt að senda innanhússarkitektum
skeyti til að finna þann sem getur tekið að sér verk,“
segir Ásta en fólk ætti ekki að hika við að leita sér að-
stoðar, sama hve lítið verkefnið er.
Rammi úr ljósu rúskinni.
3.690 kr. í Debenhams.
Ekkert
verkefni
of lítið
„Það er mjög mikil eftirspurn eftir innanhússarkitektum á Íslandi og hún er alltaf að aukast. Sumir
vilja aðeins örlitla ráðgjöf, svona til að skapa réttu stemninguna, og aðrir taka allan pakkann og nýta
sér þjónustu innanhússarkitektsins í gegnum allt ferlið.“ ÁSTA SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, INNANHÚSSARKITEKT.
INNANHÚSSARKITEKTAR
Starfssvið: Mjög breitt.
Allt frá lítilli þjónustu
upp í heilu rýmin sem
þarf að hanna frá grunni.
Verð: Fer eftir umfangi
og stærð verkefna.
Hvernig hægt er að hafa
samband: Kíkja á félagatal
á fhi.is og senda einhverjum
póst eða hringja á
skrifstofuna, sem er opin
frá 10 til 13
á fimmtudögum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L