Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 38
Art Nouveu
Þessi franska og belgíska framúrstefna í
byggingarlist og innanhússarkitektúr frá
síðari hluta 19. aldar var viss ádeila á
fjöldaframleiðslu iðnvæðingarinnar. Það
sem einkennir stílinn er flókin smáatriði
og lífræn form en innblástur stílsins var
kvenmannsformið, goðafræði og
japönsk menning.
Art Deco
Art Deco er dýrðar-
legur stíll í bygging-
arlist og innanhúss-
arkitektúr. Art Deco
hafnar hefðbundn-
um klassískum
áhrifum en hneigist
til straumlínulag-
aðra og rúmfræði-
legra forma. Notast
er við nútíma iðn-
tækni og efni.
Evrópskur stíll
Fágaður og glæsilegur stíll með afskap-
lega stórum hlutföllum. Í evrópskum stíl
er mikið af skrauti og þægindi sem
minna helst á
slökunarstað
eða snyrti-
stofu. Það sem
einkennir stíl-
inn er hefð-
bundið tré-
verk, útskornar
höggmyndir, flísar og marmaragólf,
vandaður frágangur, hvelfingar og
tunnuhvelfingarloft, ríkmannleg áklæði,
hamrað járn og afslappað andrúmsloft.
Litirnir eru þægilegir og lýsing einnig.
Skandinavískur stíll
Danskir og sænskir hönnuðir bjuggu til
þennan stíl til að blása lífið í innan-
stokksmuni á
tímum dimmu
og erfiðra að-
stæðna. Skand-
inavísk hönnun
varð vinsæl um
1930 en nytja-
húsgögnin eru
mjög létt en
samt afskaplega
fallega útskorin. Það sem einkennir stíl-
inn eru glæsilegar, einfaldar línur ásamt
mjúkum sveigjum og efnin eru helst
birki, fura og beygður krossviður.
Mynstrin í stílnum eru minimalísk,
aukahlutirnir fallegir og viðargólfin bera
yfirleitt fallega mottu.
Feng Shui
Feng Shui þýðir vindur og vatn á kín-
versku. Feng Shui er listin að skipu-
leggja rými sem er rúmlega þrjú þús-
und ára gömul og markmiðið er að
skapa jafnvægi og samhljóm á milli
náttúru og manns. Samkvæmt Feng
Shui er allt í náttúrunni tengt; við höf-
um áhrif á umhverfið og það hefur áhrif
á okkur. Feng Shui kemur einnig reglu á
orkuflæði. Heilunartæki Feng Shui eru
speglar, vindbjöllur, gæludýr, plöntur,
bambusflautur, steinar, litir og lampar.
Vindbjöllur og bambusflautur hjálpa
fólki til dæmis að uppgötva persónu-
lega orku. Litir tákna nærveru og jafn-
vægi og suma liti verður að nota á viss-
um stöðum. Til dæmis þýðir fjólublár
ríkidæmi og blessun, bleikur táknar
einkalíf og grár táknar gefanda. Þess
vegna er bleikur oftast notaður í svefn-
herbergjum.
Minimalíski stíllinn
Allt er mjög einfalt
og litlaust. Brúnn,
ljósbrúnn og álíka
mjúkir litir eru
áberandi. Hlutir
notaðir til skreyt-
inga verða að vera
kubbslegir í formi
og einfaldir.
Minimalíski stíllinn
virkar best á stórum svæðum eins og
borðstofu eða galleríum. Með því að
nota mjúka brúna tóna með hvítu í her-
bergjum verður andrúmsloftið mjög
tært og afslappandi. Lýsing er mikilvæg
og er létt, hvít lýsing best. Mynstruð
gluggatjöld eru ekki við hæfi en gott er
að nota litrík nútímamálverk á einfalda
veggi til að skapa líflegt andrúmsloft.
Sveitastíll
Sveitastíllinn er mjög náttúrulegur.
Heimili í sveitastíl eru mjög afslappandi
og laga sig að þörfum hvers og eins.
Sterk og auðhreinsanleg efni eru notuð
enda oft gæludýr í húsinu. Allir gluggar
eru opnaðir á vorin til að færa ilm vor-
blómanna inn á heimilið. Á heimilinu
eru handgerð húsgögn úr viði, náttúru-
steingólf, teppi úr hreinni ull og glugga-
tjöld allt árið um kring. Litirnir eru nátt-
úrulegir og æpandi litir aldrei notaðir í
þessum stíl. Fersk blóm úr sveitinni eru
aukahlutir sem má ekki vanta í sveita-
heimilum. Ekkert postulín er að finna á
sveitaheimilunum heldur handunnar
körfur og pottar.
Miðjarðarhafsstíll
Húsin í þessum stíl eru mjög stór og
fjarri svæðum þar sem harðir vetrar
geisa. Veggirnir eru úr steini og glugga-
rnir eru úr viði. Húsin eru byggð í kring-
um sameiginlegan garð. Á gólfum eru
rauðbrúnar flísar, náttúrusteinn, ópúss-
aður marmari og fléttaðar strámottur.
Miðjarðarhafsstíllinn getur vel keppt við
nútíma tækni því hann býður upp á
svöl og hrein rými með hjálp náttúru-
legra lausn.
Bauhaus-stíllinn
Bauhaus-form eru einföld, létt og bera
engar skreytingar. Vinsæl efni í
Bauhaus-stíl eru pípulaga stál, krossvið-
ur, leður og plast. Litaspjaldið er tak-
markað við svartan, hvítan, brúnan og
gráan. Sam-
kvæmt hugsjón-
um Bauhaus-
stíls á hvert hús-
gagn að hafa
mjög nytsamleg-
an tilgang, vera
fallegt, ódýrt,
langlíft og líka
hæft til fjölda-
framleiðslu.
27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR14
Hönnunarstílar
Sæktu innblástur að innréttingu heimilisins í ólíkum
stefnum og straumum.
[ SNIÐUGT Í BAÐHERBERGIÐ ]
Röndótt stórt handklæði.
1.890 kr. í Debenhams.
Vanillusápa, body lotion og freyðibað.
1.690 kr. í Debenhams.
Blómaljósasería, tilvalin til að lífga upp
á baðherbergið.
1.390 kr. í Debenhams.
Bleikur úðabrúsi sem er líka með viftu
til að lofta um fallegu baðherbergis-
blómin.
400 kr. í Tiger.
Falleg lukt til að lýsa upp baðherbergið.
200 kr. í Tiger.
HEIMILISBLAÐIÐ