Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 27. október 2004 15
Fallegar flísar í eldhús og á bað
Skærgult og hressandi á 16.303 krónur
fermetrann í Vídd.
Fallegir brúnir tónar á 13.900 krónur
fermetrann í Byko.
Pínulitlar og marglitar Trend flísar á
16.989 krónur fermetrann í Vídd.
Gyllt og hvítt með klassísku yfirbragði á
12.900 krónur fermetrann í Byko.
Blátt, brúnt og ljóst á 13.900 krónur
fermetrann í Byko.
Stórar og veglegar bláar flísar á 4.793
krónur fermetrann í Vídd.
„Uppáhaldsheimilistækið mitt er tví-
mælalaust blandari sem ég fékk frá
systur minni fyrir að passa frændur
mína þrjá,“ segir Þóra Tómasdóttir,
einn af stjórnendum Ópsins á dag-
skrá Sjónvarpsins.
Þóra hefur átt í löngu sambandi við
blandara og er þetta eitt notadrýgsta
tækið á hennar heimili. „Blandara-
áhugi minn kviknaði þegar ég fjár-
festi í Melissa-blandara, því stórkost-
lega heimilistæki, fyrir nokkrum
árum. Hann kostaði bara þrjú þús-
und krónur í Byggt & Búið í Kringl-
unni. Þá áttum við systir mín heima
mjög nálægt Kringlunni. Við fórum
því í verslunarleiðangur, ég keypti
blandarann og við keyptum síðan
fullt af vörum til að láta í blandarann
góða. Það endaði með því að við
keyptum svo mikið að við gátum
ekki gengið aftur heim þannig að við
þurftum að taka leigubíl. Síðan rúst-
aðist sá blandari samt,“ segir Þóra,
sem syrgir hann ekki því nú á hún al-
vörublandara. „Þessi nýi er úr gleri
og svona fullorðins. Ég nota hann
mikið til að búa til ískrap og hægt er
að blanda mjög góðar margarítur í
honum. Þetta er samt æðistæki og
ég fæ iðulega æði fyrir blandaranum
sem stendur lengi. Ég er í lægð núna
en hæðin er á leiðinni.“
Þóra er afskaplega sæl með blandarann sinn enda er hann mjög notadrjúgur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
ÞÓRA TÓMASDÓTTIR ÞÁTTAGERÐAMAÐUR
Blandarinn það besta í búinu
HEIMILISBLAÐIÐ
Fallegar flísar eru alltaf klassískar og gaman að lífga upp á hversdagsleikann með
fallegum litum og formum. Mósaíkflísar eru vinsæll kostur um þessar mundir. Oft
er þeim blandað samn við hefðbundnari flísar til að brjóta upp rými. Mósaíkflísar
eru vinsælar inn á baðherbergið, fyrir ofan baðið eða í kringum spegil og einnig í
eldhúsi við fallega eldhússkápa.