Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 46
Hugarangur vegna KB banka
Gengi hlutabréfa í breska bankanum Singer and
Friedlander hefur lækkað töluvert í kjölfar þess að
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður
bankans, lét í það skína að hátt verði
dragi úr áhuga KB banka á yfirtöku.
Breskir fjölmiðlar velta nú vöngum yfir
því hvort KB banki hyggst selja hlut sinn í
Singer and Friedlander og hætta við yfir-
töku. Í breskum fjölmiðlum er lækk-
unin skýrð með því að spá-
kaupmenn nenni ekki að
bíða eftir ákvörðun KB
banka.
Margir eru þeirrar skoð-
unar að til þess sé leikur
KB banka gerður.
Burðarás á ríflega 8
prósenta hlut í Singer
and Friedlander og
urðu þau kaup til að
hækka verð á bankanum. KB bankamenn eru ekki
búnir að gleyma því að aðkoma Landsbankans að
kaupum á FIH kostaði þá nokkra milljarða. Þeir
ætla ekki að láta Björgólfsfeðga hækka verð fyrir
sér við kaup á Singer and Friedlander.
Hollur er heimafenginn...
Það vakti athygli sumra á markaði að Greiningar-
deild Landsbankans gefur út vogunarráðgjöf á
bréf Burðarás. Þar eru fjárfestar kvattir til að hafa
Burðarás í markaðsvægi í vel dreifðum hluta-
bréfasöfnum. Landsbankinn er stór eigandi í
Burðarási og kjölfestueigendur Landsbank-
ans ráða um 40 prósenta hlut í Burðarási.
Greining Landsbankans er því að mati
margra fyrst og fremst naflaskoðun,
nema ef líta mætti á hana sem róttæka
sjálfsgagnrýni. Greiningardeild Lands-
bankans telur þó að sama gildi um
bróðurinn Burðarás og flest önnur fé-
lög; verðið sé hátt.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.550
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 2.024
Velta: 10.201 milljónir
-4,23%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
22 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
Straumur hagnaðist um ríf-
lega 3,1 milljarð á síðasta
ársfjórðungi. Forstjórinn
segir verkefnastöðuna betri
en nokkru sinni fyrr.
Fjárfestingarbankinn Straumur
skilaði níu mánaða uppgjöri í gær.
Hagnaður fyrirtækisins á þriðja
ársfjórðungi nam 3.141 milljónum
króna. Þetta er nokkuð umfram
þær væntingar sem greiningar-
deildir bankanna höfðu. Það sem
af er ári hefur Straumur skilað 6,3
milljarða króna hagnaði.
Þórður Már Jóhannesson, for-
stjóri Straums, er mjög ánægður
með uppgjörið. „Það hefur tekist á
fyrstu níu mánuðum ársins að
breikka tekjugrunninn sem bank-
inn starfar á,“ segir hann.
Hann segir að Straumur hafi
búið við töluverðan gengishagnað,
eins og aðrar fjármálastofnanir,
vegna góðs gengis á hlutabréfa-
mörkuðum. Hann segir að aðrir
tekjustofnar hafi verið efldir og
verði byggðir upp enn frekar á
næstunni. „Ég er því algjörlega
ósmeykur um framtíðina,“ segir
Þórður.
Hann segir að rekstur fjárfest-
ingarbanka sé að nokkru leyti frá-
brugðinn rekstri viðskiptabanka.
„Afkoman byggist að nokkru leyti
á óreglulegum tekjum, eins og í
samrunum og yfitökum fyrir-
tækja, en ekki á hefðbundnum út-
lánatekjum,“ segir hann.
Þórður segir að verkefnastaða
fyrirtækisins sé betri nú en
nokkru sinni fyrr.
Hagnaður Straums er umfram
væntingar allra greiningardeilda.
Íslandsbanki hafði spá félaginu
3.117 milljón króna hagnaði, KB
banki spáði 3.105 milljónum og
Landsbankinn 2.945. - þk
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 47,00 -4,67% ... Bakkavör
25,70 -6,20% ... Burðarás 13,60 -2,86% ... Atorka 5,30 -3,64% ... HB
Grandi 7,40 -3,90% ... Íslandsbanki 10,85 -4,41% ... KB banki 463,00 -
3,64% ... Landsbankinn 13,40 -6,62% ... Marel 49,40 -3,52% ... Medcare
6,00 -2,44% ... Og fjarskipti 3,66 -1,61% ... Opin kerfi 26,90 +0,75% ...
Samherji 12,20 -4,31% ... Straumur 8,80 -8,33% ... Össur 93,50 +0,54%
Straumur um-
fram væntingar
Rekstur Íslandsbanka gekk
vel á þriðja ársfjórðungi og
skilaði bankinn 3,3 milljörð-
um í hagnað.
Íslandsbanki græddi tíu milljarða
króna á fyrstu níu mánuðum árs-
ins. Hagnaður þriðja ársfjórðungs
var 3,3 milljarðar króna og í sam-
ræmi við spár greiningardeilda.
Bjarni Ármannsson segir
niðurstöðuna blöndu af hagstæð-
um ytri skilyrðum og góðum rek-
stri. „Kröftugur vöxtur hefur ver-
ið í efnahag bankans og góður
hagnaður af reglulegri starfsemi
fyrstu níu mánuðina. Útlit er fyrir
að 2004 verði enn eitt metárið hjá
Íslandsbanka.“ Hann segir bank-
ann stefna að frekari erlendum
vexti. Norska fjármálaeftirlitið
hefur samþykkt yfirtöku Íslands-
banka á Kreditbanken.
Eignir bankans jukust um 44
milljarða á síðasta ársfjórðungi
og munar mestu um 30 milljarða
útlánaaukningu. Gengishagnaður
skýrir töluverðan hluta hagnaðar
bankans. Bankinn hefur hins veg-
ar selt og innleyst hagnað af
hlutabréfum, meðal annars með
sölu á hlut í Straumi fjárfesting-
arbanka. Áhætta bankans af
sveiflum á hlutabréfamarkaði er
því minni en hún var í upphafi
árs. -hh
Tíu milljarðar í hagnað
SH 3,07%
Flugleiðir 0,94%
Opin kerfi 0,75%
Straumur -8,33%
SÍF -7,50%
Jarðboranir -6,98%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
!
"
#
$
#
$
%
&
'
!
(
)
*
"
"
"
#$
!
' #
+
,
,
-
!.
/00
1232
'%".
/00
1433
5
/
$
!
'
6
#
!
%$
"
713
8
!
"
!
%
9
4/
%
4332
*
:
;"
"
"'
)
:
"
"
=66)
' >
!
" #
-:
%
,?
>
6 @
'
$ %
)
:
"@
"
"
?@
= $
@""
"
)
8 >
:@@" &%
)
"
,?
*
'
)
"
,?
*
A
#
(
)!
)
:
"@
"
"
9
$
"
@)
-! *
""
Við vinnslu fréttar um kaup
Haga á Skeljungi urðu þau tækni-
legu mistök að röng mynd birtist
með fréttinni. Með fréttinni átti
að birtast þessi mynd af Pálma
Haraldssyni og Jóni Ásgeiri Jó-
hannessyni. Baugur Group á um
28 prósent í Högum, en félög
tengd Pálma Haraldssyni rúm 27
prósent.
■ MYNDALEIÐRÉTTING
■ VIÐSKIPTI
FJÁRFESTINGARTÆKIFÆRI Hannes
Smárason segir Flugleiðir sjá tækifæri í
Easy Jet og juku hlut sinn í félaginu í gær.
Flugleiðir
kaupa meira
Flugleiðir juku í gær hlut sinn í
breska lággjaldaflufélaginu Easy
Jet. Hlutur Flugleiða er nú rúm
tíu prósent.
Hannes Smárason, stjórnarfor-
maður Flugleiða, segir engu við
fyrri yfirlýsingar að bæta þegar
félagið keypti ríflega átta pró-
senta hlut í Easy Jet fyrir
nokkrum dögum. Kaupin sýni trú
á að þetta sé góð fjárfesting.
Flugleiðir sögðu fjárfesting-
una til langs tíma og í samræmi
við stefnu félagsins að fjárfesta í
greinum sem félagið hefði góða
þekkingu á. Fyrir eru sterkir kjöl-
festufjárfestar í Easy Jet og því
ólíklegt að Flugleiðir stefni að
yfirtöku félagsins. -hh
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
GOTT UPPGJÖR Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, segir góðan hagnað bankans
sambland af hagstæðum ytri skilyrðum og góðum rekstri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Væntingavísitala Gallup lækkaði
milli mánaða. Vísitalan stendur nú í
116,6 stigum og lækkaði um þrettán
stig frá fyrri mánuði. Vísitalan hafði
fram til þessa hækkað þrjá mánuði í
röð. Skýringin kann að vera kennara-
verkfallið og það að atvinnuleysi hef-
ur ekki minnkað þrátt fyrir hagvöxt.
Í kjölfar sölu SÍF á eignarhlut sín-
um í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hafa stjórnarmennirnir Árni Tómas-
son og Hjörleifur Jakobsson sagt
sig úr stjórn félagsins. SÍF átti ríflega
22 prósenta hlut í SH.
Gengi krónunnar lækkaði um
0,62% í gær. Gengisvísitalan sveiflað-
ist á bilinu 120,80 til 121,55 í mikl-
um viðskiptum. Nokkuð miklar
sveiflur hafa einkennt gjaldeyris-
markaðinn og hefur gengi krónunnar
lækkað um 0,91% það sem af er vik-
unni
ÞÓRÐUR MÁR JÓHANNESSON Forstjór-
inn er ánægður með uppgjörið og telur
framtíðina bjarta hjá Straumi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
TM UNDIR VONUM Hagnaður
Tryggingamiðstöðvarinnar á
þriðja ársfjórðungi var 97 millj-
ónir. Greiningardeild KB banka
hafði búist við 154 milljóna hagn-
aði en greiningardeild Íslands-
banka spáði TM 369 milljóna
hagnaði.
GOTT UPPGJÖR HJÁ ÖSSURI Stoð-
tækjaframleiðandinn Össur skil-
aði hagnaði upp á 4,7 milljónir
Bandaríkjadala á þriðja ársfjórð-
ungi. Það samsvarar um 330
milljónum króna. Landsbankinn
hafði spáð 3,6 milljóna dala hagn-
aði, Íslandsbanki 3,7 og KB banki
3,9. Hlutabréf í Össuri hækkuðu
á markaði í gær.