Fréttablaðið - 27.10.2004, Qupperneq 49
AFMÆLI
Guðfinna Bjarnadóttir, rektor Háskól-
ans í Reykjavík, er 47 ára.
Jens Hansson saxófónsleikari, 41 árs.
Gullveig Sæmundsdóttir
ritstjóri, 56 ára.
Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður,
54 ára.
ANDLÁT
Þórunn Oddsdóttir, Merkigerði 8,
Akranesi, lést 22. október.
Auður Eiríksdóttir, Langholtsvegi 122,
Reykjavík, lést 23. október.
Katrín Andrésdóttir, Árskógum 6,
Reykjavík, lést 23. október.
Árni Björnsson,læknir, Blátúni 4,
Álftanesi, lést 24. október.
Halldór Ingólfsson, fyrrv. flugstjóri, lést
24. október.
Helga Sveinsdóttir, Mýrargötu 18,
Neskaupstað, lést 24. október.
Kristján Björn Guðmundsson, frá
Ísafirði, lést 24. október.
Björn B. Tryggvason, fyrrv. aðstoðar-
bankastjóri Seðlabanka Íslands, lést 25.
október.
JARÐARFARIR
11.00 Hilmar Ólafsson, Berjarima 10,
Reykjavík verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju.
13.30 Gunnar Kristinsson, Reynimel
80, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju.
MIÐVIKUDAGUR 27. október 2004 25
Þriðja ljóðabók Rúnu K.Tetzschner er komin út. Í bók-
inni, Í samræðum við þig, eru hnit-
miðuð smá-
ljóð sem flest
fjalla um sam-
skipti kynj-
anna, valda-
baráttu, ást og
vináttu; ljóð-
rænar setning-
ar sprottnar úr
s a m r æ ð u m
skáldsins við
s a m f e r ð a -
menn daglegs
lífs. Í samræðum við þig er gefin út
í 125 eintökum og handskreytir
Rúna hvert einasta eintak eftir
prentun. Jafnframt hefur fyrsta
ljóðabók hennar, Kveðja til engils,
verið endurprentuð. Hún fjallar um
ástvinamissi og hefur hjálpað fólki í
sorg. Rúna er sérfræðingur á Þjóð-
minjasafni Íslands og starfar sjálf-
stætt við ljóðagerð, skrautritun og
skreytilist.
NÝJAR BÆKUR
Verð-
sprengja
Tilboðin gilda meðan birgðir endast
4.999kr
155/70R13
155/80R13
165/70R13
175/70R13
175/65R14
175/70R14
185/65R14
185/70R14
185/65R15
195/65R15
205/75R15
205/55R16
235/70R16
Dekkja-
stærð
verð frá
kr/stk.ónegld
4.499kr
5.499kr
Úlpa
13"
14"
15"
16"
hágæða ónegld og negld vetrardekk. Mikið skorin með
grófu munstri og nöglum sem henta vel í snjó og hálku.
6.499kr
9.999kr
Póstverslun Hagkaupa sími: 568 2255
grænt númer: 800 6680 fax: 568 9330
í Hagkaupum Skeifunni
Ekki orð af viti
Ragnar Ingi Aðalsteinsson, aðjúnkt
við KHÍ, fagnaði 60 ára afmæli sínu
í ársbyrjun og af því tilefni gaf
hann út vísnakverið „Ekki orð af
viti“ í vor. Tilefni útgáfunnar var í
raun tvöfalt þar sem í ár eru liðin 30
ár frá því fyrsta bók Ragnars kom
út.
„Ég safnaði vísum sem ég hef ort
í gegnum árin saman í kverið en sú
elsta er ort þegar ég var í Mennta-
skólanum á Akureyri, rétt rúmlega
tvítugur upp úr 1960,“ segir Ragnar
um vísnaúrvalið.
Kverið seldist fljótt upp hjá
Ragnari sem er að undirbúa endur-
prentun þannig að „Ekki orð af viti“
ætti að verða aðgengilegt á ný á
næstunni.
Ragnar segir að oftast séu það
atburðir líðandi stundar sem verði
kveikjan að vísunum en hann lesi þó
ekki fréttir og horfi almennt á lífið í
gegnum vísnaformið. „Þetta form
hefur samt alltaf verið mér afskap-
lega nærtækt og ég var byrjaður að
yrkja sjö eða átta ára gamall og var
tilbúinn með bók tíu ára. Hana eyði-
lagði ég svo þegar ég var þrettán
vegna þess að mér fannst hún svo
léleg. Það er mikil hefð fyrir þessu í
fjölskyldunni minni og báðir for-
eldrar mínir voru afskaplega mikið
fyrir kveðskap.“
Ragnar segir að það sé mesti
misskilningur að Íslendingar hafi
verið að missa brageyrað og bendir
á að gróskan í vísnagerðinni sé mik-
il í dag og hún sé að koma aftur sem
aldrei fyrr. ■
RAGNAR INGI AÐALSTEINSSON
Hefur tekið saman úrval vísna sinna í kver-
inu Ekki orð af viti og lætur ýmsar athuga-
semdir fylgja með kveðskapnum. Um vís-
una hér til hliðar segir hann til dæmis:
„Mikið hefur verið ritað og rætt (og ort)
um erótískan dans, eðli hans, tilgang og
tilurð. Ég reyndi að gera mér grein fyrir
hverjir það væru sem hefðu svona gaman
af að horfa á þetta og hvers vegna.“
Aular með óeðli sitt
sem eigra hér drekkandi spritt,
góna með glýjum
að glenntum danspíum -
hættir að gera hitt.