Fréttablaðið - 27.10.2004, Side 53

Fréttablaðið - 27.10.2004, Side 53
MIÐVIKUDAGUR 27. október 2004 Óttar Felix Hauksson hjá Zonet- útgáfunni hefur verið duglegur að garfa í gömlum upptökum og gef- ið út margt athyglisvert efni. Nú eru komnar frá Zonet upptökur með KK frá árinu 1989 þegar KK hafði ekki enn sent frá sér efni á plötu en verið duglegur að leika á tónleikum við mjög góðar undir- tektir. Óhætt er að segja að KK hafi verið orðinn vel þekktur þegar hann gaf út fyrstu plötu sína, Lucky One. Ekki er að undra þegar maður heyrir þessa nýút- gefnu plötu með KK sem ber heit- ið Upphafið. Þarna er á ferð þræl- skemmtilegur ryþmablús með til- heyrandi munnhörpu- og þvotta- brettasólóum. Lögin eru flest í hressari kantinum og spilagleðin er ósvikin. Ennfremur er KK einn allra besti ryþmablússöngvarinn sem við Íslendingar höfum haft og er hann í fínum gír á plötunni. Með KK á plötunni eru félagar hans í hljómsveitinni Grinders sem KK starfrækti þegar hann bjó úti í Svíþjóð. Ennfremur tekur þátt í helmingi laganna Þorleifur Guðjónsson sem varð stoð og stytta KK á næstu árum. Á plötunni eru mestmegnis lög eftir aðra, þekkta menn eins og John Mayall og J.J. Cale. Þó eru engir margtuggnir slagarar á ferð heldur lög frá ýmsum tímum ryþmablúsins eftir bæði aldnar hetjur og efnilega blúsara. Fræg- asta lagið er líklega Mystery Tra- in eftir Junior Parker. Tvö frum- samin lög eru þó á plötunni; hið fræga True to You og Going Back Home, bæði vel flutt. Pétur Atli Lárusson Blús í K KK UPPHAFIÐ NIÐURSTAÐA: Lögin eru flest í hressari kantin- um og spilagleðin er ósvikin. KK er einn af okk- ar allra bestu ryþmablússöngvurum og er hann í fínum gír á plötunni. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN                                                !          "                  # $      %        &'     (           )    !   !   ! # !             $       *             !         %#    )'     !  +   !  %         ,     %# !   -                        Fyrrverandi söngvari h l j ó m s v e i t a r i n n a r Libertines hefur verið bannaður úr Groucho- klúbbnum í London fyrir að eyðileggja nýstárlegt listaverk sem kostaði heil 100.000 bresk pund. Doherty reif málmskúlpt- úrinn úr loftinu sem hrundi á gólfið og brotn- aði. Atvikið varð þegar Doherty, ásamt hljóm- sveit sinni Baby- shambles, spilaði á styrktartónleik- um á laugardaginn. Þegar söngvar- inn var beðinn um að róa niður tón- leikagesti neitaði hann og stökk af litlasviðinu í áhorfendahópinn. Það- an stökk hann upp og greip eitthvað, sem hann hélt vera ódýr skreyt- ing, sem datt í gólfið og brotnaði. „Þetta er ekki stór staður en Babys- hambles breytti því í líf- legan tónleikastað. Pete var út um allt og stökk út í áhorfendahópinn og greip í skúlptúrinn sem brotnaði,“ sagði áhorf- andi. Eigendur staðarins voru ekki sáttir með söngvarann. „Pete fór strax eftir tónleikana og lét starfsfólkið það greinilega í ljós að það vill aldrei sjá hann aftur í klúbbnum,“ sagði heim- ildarmaður. ■ Þótt hjónakornin Madonna og Guy Ritchie hafi framleitt eina verstu mynd síðari tíma stefna þau óðfluga á að gera nýja mynd saman. Hjónakornin sendu myndina Swept Away frá sér fyrir tveimur árum en hún hlaut hvorki náð gagn- rýnenda né áhorfenda. Myndin hreppti meira að segja fimm verð- laun á Razzie- verðlaunahátíð- inni; versta l e i k k o n a n , versta leik- stjórnin, vers- ta myndin, versta end- urgerðin og versta parið á kvikmynda- tjaldinu. Nú ætla Madonna og Ritchie hins vegar aðhefja tök- ur í London á nýrri glæpamynd sem heitir Revolver. Hjónakornin hafa fengið Jason Statham til liðs við sig, en hann vann meðal annars með Ritchie að Lock, Stock And Two Smoking Barrels og Snatch, sem og Goodfellas leikar- ann Ray Liotta. Madonna hefur áður unnið með unn- ustum sínum að kvik- myndum. Hún lék með- al annars á móti Sean Penn í myndinni Shanghai Surprise og Warren Beatty í Dick Tracy. ■ FJÖLHÆF Madonna er ákaflega fjöl- hæf kona, hefur skrifað bækur, samið lög og leikið í bíómyndum. Hún hefur ekki lagt árar í bát þótt illa hafi gengið síðast þegar hún sendi kvikmynd frá sér. ■ KVIKMYNDIR ■ FÓLK Madonna og Ritchie með nýja mynd Eyðilagði dýrmætt listaverk PETER DOHERTY Var mun rólegri í febrúar þeg- ar hann spilaði fyrir gesti kaffihússins Bergerac í París.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.