Fréttablaðið - 27.10.2004, Page 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Húsagi
enn í gildi
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR
SMS
LEIKUR
EINTAK Á 199 KRÓNUR?
199 kr/skeytið
Kem
ur 5.
nóv.
PC CD-ROM
PC CD-ROM
Orðið húsagi merkir einfaldlegaagi eða reglufesta á heimilum,
og fyrr á tímum taldist það í verka-
hring húsbóndans að halda uppi
húsaga á sínu heimili. Þetta var fyrir
daga ryksugunnar meðan ennþá
tíðkaðist að sópa gólf með vendi.
Þessi frumstæðu hreingerningatæki
reyndust einnig afarhentug áhöld til
að halda uppi húsaga og góðir og
samviskusamir húsbændur hýddu
bæði börn sín og hjú vel og vandlega
með hrísvendi oft og lengi ef þeir
töldu þeim hafa orðið á einhverjar
yfirsjónir.
SÍÐAN á þessari fjarlægu tíð hefur
margt breyst. Ryksugur eru komnar
inn á hvert heimili og hrísvendir
þekkjast ekki lengur, og svonefndir
húsbændur eru ekki lengur til í
hinni fornu merkingu orðsins.Eigin-
lega hélt maður að þetta væri öllum
ljóst í nútímanum, en þó kom í ljós í
síðustu viku að þessar miklu þjóðfé-
lagsbreytingar hafa farið algjörlega
fram hjá fílabeinsturni íslenskra
dómstóla. Á þeim bæ virðast gamlar
reglur um að misþyrmingar og lík-
amsárásir á varnarlaust fólk og
minnimáttar ennþá vera í fullu gildi,
og hýðingar og barsmíðar í nafni
húsaga réttlætanlegt verkfæri í
höndum ofbeldisfullra karlmanna
sem nefna sig húsbændur.
Í SÍÐUSTU VIKU var nefnilega
kveðinn upp óvæntur dómur þar
sem karlmaður var sakfelldur fyrir
að ráðast á konu sína (og hafði áður
verið sakfelldur fyrir aðra árás á
aðra konu) - en þrátt fyrir þetta var
manninum sleppt við refsingu af því
að dómarinn í óendanlegum vísdómi
sínum leit svo á að sambúð hjónanna
hefði verið stormasöm (konan ekki
manninum nægilega undirgefin?) og
konuskepnan sjálf hefði valdið of-
beldinu með því að vekja hjá hinum
elskandi eiginmanni sínum grun-
semdir um framhjáhald.
SAMKVÆMT þessu er það skoðun
íslenska dómkerfisins að það sé full-
komlega eðlilegt og sjálfsagt að karl-
menn, unnustar, sambýlismenn og
eiginmenn gangi í skrokk á kven-
fólki með hnúum og hnefum eða bar-
eflum ef þeir finna til afbrýðisemi.
Nú þurfum við bara að fá prófmál
um hvort atvinnurekendum sé heim-
ilt að lumbra á starfsfólki sínu – að
minnsta kosti kvenfólkinu. Húsaginn
blífur að mati dómstólanna! ■