Fréttablaðið - 29.11.2004, Blaðsíða 18
Vandaðar heimilis og gjafavörur
Kringlunni - sími : 533 1322
Boda Nova
glösin komin aftur
3 litir - 4 í pk. • Verð 2.500 kr.
Fissler
pottar og pönnur
- finndu muninn!
sími 568 6440
Trommusett með öllu,
ásamt kennslu-
myndbandi og
æfingaplöttum
á allt settið.
Rétt verð
73.900.-
Tilboðsverð
54.900.-
Ný diskasería frá
UFIP
„Þessar vélar henta mér ótrú-
lega vel því borðin í eldhúsinu
mínu eru svo lág að venjuleg vél
kemst ekki þar undir,“ segir Að-
albjörg Guðgeirsdóttir, en sök-
um þess að hún er í hjólastól
hentar ekki hvað sem er í eldhús-
ið. „Auk þess held ég að þessar
vélar sem eru við gólfið séu stór-
hættulegar, maður gæti hrein-
lega dottið ofan í þær svona
bograndi yfir þeim,“ segir hún
og skellir upp úr.
Henni þótti þó aldrei neitt mál
að vaska upp þar til hún fékk vél-
arnar en núna getur hún ekki
hugsað sér að vera án þeirra.
„Það eru alger mannréttindi að
eiga uppþvottavél,“ segir Aðal-
björg, sem er alsæl með vélarnar
sínar og segir þær sérstaklega
hljóðlátar og frábærar í alla staði.
„Ég hafði mikið leitað að vél
en villtist svo inn í Eirvík þar
sem hún blasti við mér. Uppsetn-
ingin á vélinni er ótrúlega þægi-
leg og ég í raun hissa að þetta
hafi ekki boðist hérna áður,“ seg-
ir Aðalbjörg. „Ég hef ekkert
nema gott um þessar vélar að
segja og vildi að ég gæti sagt hið
sama um alla hluti.“
kristineva@frettabladid.is
Hér kemur listi af reglum sem gott er
að fara eftir þegar raðað er í vélina.
Algengustu mistökin sem fólk gerir
eru að setja of mikið þvottaefni sem
skilur eftir sig hvíta slikju á öllu, en
vegna þess að vatnið á Íslandi er ekki
eins og þar sem vélarnar eru fram-
leiddar þarf að setja minna þvottaefni
í vélarnar hér á landi.
1. Skafðu matinn af disknum áður
en þú setur hann í vélina en ekki
skola hann sérstaklega. Flestar
uppþvottavélar eru hannaðar til
að takast á við smá matar-
afganga.
2. Settu ofnplötur og stóra diska til
hliðanna svo þeir hindri ekki að
vatnið fari á hina diskanna.
3. Notaðu efri grindina fyrir plast-
hluti, glös og bolla. Settu diska og
skálar í neðri grindina.
4. Gakktu úr skugga um að glösin
hringli ekki í grindinni, til að
koma í veg fyrir að þau brotni.
5. Settu potta og diska með föstum
matarleifum í neðri grindina
þannig að þeir snúi niður og
vatnið nái að sprautast vel á þá.
6. Láttu hnífapörin snúa upp, að
hnífunum undanskildum.
7. Ekki fylla þvottaefnishólfið, því á
Íslandi þarf ekki að nota svo
mikið þvottaefni með vatninu.
8. Sjáðu til þess að alltaf sé nóg af
glansefni í vélinni.
9. Lokaðu hurðinni vel og veldu það
prógramm sem hentar best
hverju sinni.
10. Settu vélina í gang.
Mannréttindi að
eiga uppþvottavél
Aðalbjörg Guðgeirsdóttir fékk sér skúffur sem eru uppþvottavélar og kom þeim fyrir sitt hvoru
megin við vaskinn.
Þrif
Jólin nálgast og hvernig væri að byrja að þrífa? Byrjaðu á leiðinlegustu verkunum.
Þrífðu á bak við ísskápinn og ofninn og eldavélina í leiðinni. Þá er það búið![ ]
Aðalbjörg Guðgeirsdóttir er með skúffur sem eru uppþvottavélar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Raða þarf diskum rétt í uppþvottavél-
ina svo þeir þvoist sem best.
Raðað í vélina
Þó að einfalt sé að henda leirtauinu í uppþvottavélina er gott að vanda til
verks svo vélin nái að hreinsa allt sem best.