Fréttablaðið - 29.11.2004, Page 21
Jólahreingerningin er framundan
hjá þeim sem tíma hafa til, áhuga
og orku. Það er ávallt mikið verk að
taka allt í gegn og þrífa glugga,
veggi og skápa, taka niður glugga-
tjöld og annaðhvort þvo þau sjálfur
og strauja eða setja í hreinsun.
Þetta gera samt margir einmitt á
þessum árstíma til að bjóða jólun-
um inn í hrein híbýli sín. Sá siður
hefur fylgt þjóðinni lengi þótt að-
stæður hafi breyst í aldanna og ár-
anna rás. Í þjóðháttabók Jónasar
Jónssonar frá Hrafnagili segir m.a.
svo:
„Víða var til siðs að þrífa allt
hátt og lágt fyrir jólin. Menn
skiptu um nærföt og stundum var
skipt á rúmunum og jafnvel mestu
sóðar brutu venjur sínar og voru
hreinir og vel til hafðir um jólin.
Samkvæmt gamalli þjóðtrú lét Guð
alltaf vera þíðviðri rétt fyrir jólin,
til þess að fólk gæti þurrkað plögg-
in sín fyrir hátíðina og var þessi
þurrkur kallaður fátækraþerrir.“
Þeir sem steikja laufabrauð í
heimahúsum ættu að láta eldhús-
hreingerninguna bíða þar til sú
stóraðgerð er yfirstaðin því henni
fylgir óhjákvæmilega lykt og fita.
Þeim sem eru með efri skápa sem
safna fitu og ryki er bent á að til að
komast hjá stanslausum stórþrif-
um þar uppi er upplagt að setja
pappír (t.d. dagblöð) ofan á skáp-
ana og skipta um með reglulegu
millibili. Þess þarf aðeins að gæta
að pappírinn standi ekki fram af!
Fátt er heimilislegra á síðkvöldum
en snarkandi arineldur og á síðari
árum hafa arnar og kamínur orðið
æ vinsælli hér á landi. Því þótt upp-
hitun húsa sé hér yfirleitt góð þá er
það stemningin og slökunin sem
fylgir eldinum sem fólk er helst að
sækjast eftir. Ekki veitir okkur nú
af í öllu stressinu! Ylurinn er svo
auðvitað bónus. Að sögn Maríu
Guðmundsdóttur hjá Arinbúðinni á
Stórhöfða 17 eru rafmagnsarnar að
sækja í sig veðrið í vinsældum enda
eru ýmsir sem vilja ekki opinn eld
og svo taka þessir rafmagnsarnar
nánast ekkert pláss. „Ef þú hefur
veggpláss og innstungu þá er málið
leyst,“ segir hún og segir raf-
magnsarna geta verið einkar eðli-
lega með reyk og öðrum arinein-
kennum. Sérstakur takki er fyrir
hitann og hægt að stilla hann eftir
þörfum. „Þetta eru breskir arnar og
Bretar eru auðvitað fyrst og fremst
að hugsa um að kynda með þeim,“
segir hún brosandi. Viðarbrennslu-
ofnarir í Arinbúðinni eru frá Spáni.
Þeir eru tilbúnir með öskuskúffu,
reykspjaldi og öllum græjum og
María segir lítið mál að setja þá
upp, svo framarlega sem hægt sé
að koma reyknum út. „Það fer
svona dagur í að tengja hann,“ seg-
ir hún. Verðið á örnunum er frá 150
þúsund upp í 6-700 þúsund. Flestir
eru frá 230 þúsund upp í 300.
Bjarni Bjarnasonar rennismiður
rekur fyrirtækið Arinvörur á Krók-
hálsi. Hann selur alls konar fylgi-
hluti við arna svo sem neistagrind-
ur, trekkspjaldastillingar og ösku-
skúffur sem Bjarni smíðar, meðal
annars eftir pöntunum. Hann selur
líka kamínur, bæði úr potti og stáli
og spurður um verðið á þeim svar-
ar hann. „Það er hægt að fá þær í
mörgum tegundum og stærðum og
verðið hleypur svona frá 70 upp í
180 þúsund. Þær hafa verið afar
vinsælar í bústaðina enda sóma
þær sér vel þar.“
gun@frettabladid.is
Hér er verið að þvo ofan af efri skápunum. Þegar því er lokið er upplagt að leggja pappír þar og láta óhreinindin safnast á hann.
Það sparar okkur handtök við hreingerningar síðar meir.
Jólahreingerningin framundan
Léttum okkur störfin með því að hafa pappír ofan á efri skápunum.
4 MIÐVIKUDAGUR 24. nóvember 2004
ECC ehf
Skúlagötu 17
101 Reykjavík
Sími 511 1001
ecc@ecc.is
www.ecc.is
Kröftugt jónastreymi
Bakteríudrepandi
útfjólublár lampi
Kröftug ryksöfnun
Mikill orkusparnaður
Lofthreinsitæki
hreinsar loftið, eyðir
lykt og drepur sýkla
Nýtt!
Upplýsingar í síma 511 1001
Opið frá 09.00 til 18.00
Leiðrétting
Í síðustu viku, fimmtudaginn 25.
nóvember, birtist grein á Allt-síð-
unum um verslunina Rúm.is. Þar
kom fram að verslunin hefði ver-
ið opnuð 7. nóvember en það var
4. nóvember. Sonja Þórisdóttir er
ennfremur ekki eini eigandi
verslunarinnar heldur er Hilda
Eichmann það einnig. Að lokum
eru rúmin sérsaumuð í verk-
smiðjum í Brasilíu en ekki Banda-
ríkjunum. Fréttablaðið biðst vel-
virðingar á þessum mistökum.
Rafmagnsarinn sem kostar kr. 216.000 í Arinbúðinni.
Dina viðarbrennsluarinn með hurð sem
kostar kr. 239.900 í Arinbúðinni.
Stór viðarofn í Arinhlutum. Verðið er
180.000 kr.
Kamína á löngum löppum sem fæst í
Arinhlutum og kostar kr. 99.800.
Arineldur fyllir húsið af friði og ró
Margir eiga eflaust eftir að orna sér við elda frá örnum og kamínum í vetur, njóta þess að
hlusta á snarkið og horfa í glæðurnar.