Fréttablaðið - 29.11.2004, Side 64

Fréttablaðið - 29.11.2004, Side 64
22 29. nóvember 2004 MÁNUDAGUR HANDBOLTI Það var líf og fjör í leik Þórs og Fram í norðurriðli Ís- landsmótsins á laugardag. Upp úr sauð í lokin þegar Framarinn Ingólfur Axelsson braut illa á Þórsaranum Gorani Gusic. Ingólf- ur uppskar rautt spjald fyrir vikið og á leið sinni til búningsher- bergja stjakaði Ingólfur við leik- mönnum 3. flokks Þórs sem ögr- uðu honum. Þá var fjandinn laus eða eins og heimildamaður Frétta- blaðsins orðaði það: „Það var allt vitlaust í Höllinni.“ Leikmenn hópuðust á staðinn og nokkrir áhorfendur stukku einnig úr stúkunni til þess að taka þátt í fjörinu. Tók þó nokkurn tíma að róa mannskapinn og klára leikinn en fimm sekúndur voru eftir af leiknum er Ingólfur braut á Gusic sem reyndar skoraði þrátt fyrir brotið og tryggði Þór þar með jafntefli í leiknum, 28-28. Sögur fóru af stað þess efnis að Ingólfur hefði gengið ansi hraust- lega fram gegn 3. flokks strákun- um og að hann hefði hreinlega lamið mann og annan. Það segir Ingólfur ekki vera alveg rétt. „Þetta var nú bara þannig að ég átti færi á að jarða Goran í hraða- upphlaupinu. Ég ýtti aðeins í mjöðmina á honum með þeim af- leiðingum að hann missir aðeins jafnvægið en hann skoraði samt. Ég fékk rautt fyrir brotið sem ég sætti mig alveg við. Goran meidd- ist ekkert en hann mætir til mín alveg brjálaður er ég fæ rauða spjaldið og byrjar að svívirða mig. Ég sagði honum bara að þetta væri handbolti og ýtti honum frá mér,“ sagði Ingólfur og þegar þarna er komið við sögu er enn allt rólegt í húsinu en það breytt- ist er hann reyndi að ganga til búningsherbergja. „Strákarnir í 3. flokki Þórs byrja að ögra mér, þegar ég geng í átt að klefanum, og stíga fyrir mig. Þá ýtti ég þeim bara í burtu en um leið sé ég að allt verður vit- laust. Ég var sjálfur alveg róleg- ur. Ég ýti bara í hópinn en lamdi ekki neinn. Það er af og frá. Mér finnst líka alveg fáranlegt að áhorfendur í húsinu geti verið að labba í veg fyrir mig og ausa yfir mig svívirðingum þegar ég er á leið út af vellinum,“ sagði Ingólf- ur sem er fyrrum KA-maður en það hefur oft verið grunnt á því góða á milli Akureyrarliðanna. Annar fyrrverandi KA-maður sem einnig leikur með Fram, Arn- ar Þór Sæþórsson, fékk einnig að líta rauða spjaldið sem og Þórsar- inn Bjarni Gunnar Bjarnason. „Þeir voru eitthvað rífast og voru ansi heitir. Áhorfendur mættu á svæðið og héldu í Arnar og Bjarna og þetta var ansi fjörugt,“ sagði Ingólfur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem allt verður vitlaust í heima- leik Þórs í vetur og Einar Þorvarð- arson, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að Þórsarar hafi fengið að- vörun fyrr í vetur vegna skipu- lagningar á heimaleikjum sínum. „Í umgjörð leikja á að vera gæsla og það á að passa upp á að svona lagað gerist. Það eiga að vera menn til staðar sem hindra það að leikmenn verði fyrir áreiti á leið sinni af leikvelli. Það hefur verið sett út á gæsluna hjá Þór fyrr í vetur og ég vissi ekki betur en að þeir hefðu lagað sína hluti. Við fengum til að mynda skýrslu eftir leik þeirra gegn KA þar sem talað var um að gæslan hefði verið í mjög góðu lagi,“ sagði Einar. Skapti Hallgrímsson, formaður handknattleiksdeildar Þórs, varð ekki vitni að þessum atburðum en segir hlutina ekkert vera öðruvísi hjá Þór en annars staðar og segir Þórsara ekki ætla að grípa til neinna sérstakra aðgerða. Hann gefur lítið fyrir ásakanir Fram- ara. „Þetta er bara della. Svona er þetta bara alls staðar. Ekki hann- aði ég þetta hús. Menn hafa áður fengið rautt hérna án þess að allt hafi orðið vitlaust eins og Viggó Sigurðsson sem fékk einu sinni rautt hérna en settist bara upp í stúku með krökkunum,“ sagði Skapti. henry@frettabladid.is ÚT AF MEÐ ÞIG VINUR Bjarni Viggósson dómari vísar hér Ingólfi Axelssyni (númer 7) af velli við litla hrifningu Arnars Þórs Sæþórsson- ar sem fékk að líta sama spjald skömmu síðar. Goran Gusic nálgast Ingólf á myndinni en hann var ekki ánægður með meðferðina sem hann fékk hjá fyrrverandi KA-manninum Það var allt vitlaust í Höllinni Það sauð upp úr í leik Þórs og Fram á laugardag. Þrír leikmenn fengu rautt spjald og áhorfend- ur blönduðu sér í hasarinn. Framarar eru ósáttir við skipulagningu leiksins og framkvæmdastjóri HSÍ segir Þórsara hafa fengið aðvörun fyrr í vetur. Þeir vísa ásökunum um skipulagsleysi á bug. Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reyk- ingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: Verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsing- ar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar auka- verkanir og aðrar upplýsingar. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeining- um í fylgiseðli. Örsmá tafla meðstórt hlutverk HASAR Það gekk mikið á undir göngunum í lok leiksins og Bjarni dómari heldur hér aft- ur af Arnari Þór Sæþórssyni en fjöldi manna tók þátt í hasarnum eins og sjá má. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P ED RO M YN D IR /Þ Ó R IR T RY G G VA SO N FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P ED RO M YN D IR /Þ Ó R IR T RY G G VA SO N LEIKIR GÆRDAGSINS Enska úrvalsdeildin TOTTENHAM–MIDDLESBROUGH 2–0 1–0 Defoe (49.), 2–0 Kanoute (76.). NEWCASTLE–EVERTON 1–1 1–0 Craig Bellamy (5.), 1–1 Lee Carsley (56.). LIVERPOOL–ARSENAL 2–1 1–0 Xabi Alonso (41.), 1–1 Patrick Vieira (57.), 2–1 Neil Mellor (90.) STAÐAN CHELSEA 15 11 3 1 27–6 36 ARSENAL 15 9 4 2 39–20 31 EVERTON 15 9 3 3 17–12 30 MAN. UTD. 15 7 6 2 19–10 27 MIDDLESBR.15 7 4 4 24–18 25 A. VILLA 15 6 6 3 20–16 24 LIVERPOOL 14 7 2 5 23–16 23 BOLTON 15 6 5 4 22–19 23 NEWCASTLE 15 5 5 5 27–17 20 MAN. CITY 15 5 5 5 19–14 20 PORTSM. 14 5 3 6 18–20 18 CHARLTON 15 5 4 7 17–27 18 TOTTENHAM15 4 4 7 14–17 16 BIRMINGH. 15 2 8 5 12–15 14 FULHAM 15 4 2 9 17–27 14 C. PALACE 15 3 4 8 17–23 13 BLACKB. 15 2 7 6 16–29 13 SOUTHAMT. 14 2 6 7 15–21 12 NORWICH 15 1 9 5 14–25 12 WBA 15 1 7 7 13–28 10 Spænska úrvalsdeildin REAL BETIS–VILLAREAL 2–1 DEPORTIVO–REAL SOCIEDAD 2–2 MALAGA–ALBACETE 0–2 NUMANCIA–REAL ZARAGOZA 2–1 OSASUNA–SEVILLA 4–1 REAL MADRID–LEVANTE 5–0 VALENCIA–MALLORCA 2–0 Ítalska úrvalsdeildin INTER–JUVENTUS 2–2 ATALANTA–REGGINA 0–1 BOLOGNA–LECCE 0–0 BRESCIA–PALERMO 0–2 CHIEVO–AC MILAN 0–1 0–1 Hernan Crespo (50.). LAZIO–CAGLIARI 2–3 MESSINA–FIORENTINA 1–1 SAMPDORIA–PARMA 1–0 Bikarkeppni KKÍ BREIÐABLIK B.–ÞÓR AK. 51–110 VALUR–UMFG 89–108 KEFLAVÍK B.–STJARNAN 69–74 LEIKNIR R.–BREIÐABLIK 61–97 SKALLAGRÍMUR–ÍR 83–79 KEFLAVÍK–SNÆFELL 102–86 Stigahæstir hjá Keflavík: Magnús Þór Gunnarsson 27, Anthony Glover 24, Gunnar Einarsson 15, Nick Bradford 11 (13 frák,/9 stoðs.), Elentínus Margeirsson 9, Sverrir Sverrisson 6, aðrir færri. Stigahæstir hjá Snæfell: Desmond Peoples 25 (14 frák.), Sigurður Á. Þorvaldsson 20, Pierre Green 16, Hlynur Bæringsson 15 (19 frák.), Pálmi Sigurgeirsson 10 (9 frák./10 stoðs.). Liverpool tók öll þrjú stigin á Anfield Road þegar Englandsmeistarar Arsenal komu í heimsókn: Fleiri stig í súginn hjá meisturum Arsenal FÓTBOLTI Titildraumar Arsene Wen- ger og leikmanna hans í Arsenal dvínuðu enn þegar liðið tapaði á útivelli fyrir Liverpool en sigur- markið kom á lokasekúndu í upp- bótartíma leiksins. Var þar um að ræða Neil Mellor en unglingurinn sá var að skora sitt fyrsta mark fyrir Liverpool í úrvalsdeildinni. Leikurinn sjálfur var býsna fjörugur enda var lögð áhersla á sóknarleikinn hjá báðum liðum. Liverpool komst yfir með fallegu marki Xabi Alonso en fyrirliði Arsenal, Patrick Vieira, jafnaði fyrir gestina snemma í síðar hálfleik. Þegar átta sekúndur voru eftir áður en dómari leiksins flautaði leikinn af tók Mellor lang- skot utan af velli sem endaði í net- möskvum Jens Lehman mark- varðar. Liverpool stjórnaði leiknum á löngum köflum og var ekki að sjá að Arsenal væri fyrir ofan Liver- pool á töflunni enda virðast leik- menn þess enn vera að átta sig á að löngum sigurkafla liðsins lauk fyrir allnokkru. Hefur Arsenal að- eins unnið einn leik af síðustu átta og er liðið nú fimm stigum á eftir Chelsea á toppi ensku úrvalsdeild- arinnar. Er ljóst að mikið verk bíður Wengers að endurvekja það sjálfstraust innan liðsins sem leikmenn þess höfðu þegar þeir léku 49 leiki án taps en síðan Arsenal tapaði fyrir Manchester United hefur leiðin legið niður á við og stig hafa tapast gegn ólík- legustu aðilum á borð við WBA og Southampton. Á meðan hefur lið Chelsea tekið við kyndlinum og er erfitt að sjá það lið sem tekur stig af þeim bláu meðan þeir leika eins og sakir standa. Liverpool á hinn bóginn hafa glímt við meiðsli og úrslit undan- farinna vikna ekki verið alveg að óskum en þessi sigur kemur liðinu í sjöunda sæti deildarinnar og þeir eiga leik til góða á liðin í grenndinni. - aöe MELLOR STAL SENUNNI Neil Mellor stal senunni á Anfield Road í gær þegar Liverpool lagði meistara Arsenal, 2–1. Sigurmark Mellors kom í blálokin.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.