Fréttablaðið - 26.09.2004, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S E G J U M F R É T T I R
Niðurstöður úr launakönnun ársins 2004
LAUNIN OKKAR ERU á vr.is
Starf okkar eflir þitt starfSkoðaðu launin þín í samanburði við laun annarra og meðallauní atvinnugreinum eða eftir störfum. Eins getur þú séð helstu
niðurstöður könnunarinnar og þróun milli ára. Kíktu við til að sjá
hvar þú stendur áður en þú ferð í næsta launaviðtal.
SM Á A U G L Ý S I N G A S Í M I N N E R 550 5000
90%
afslá
ttur
Afturhvarf
Allt ber að sama brunni. Nútíminner svo úr sér genginn hvað fram-
sækni varðar að eina leiðin er aftur-
hvarf til fyrri tíma. Munurinn er að
afturhaldsbúningurinn núna er betri
hjá almenningi og hræsnin faldari
hjá valdhöfum.
Þetta sýnir sig í kennaraverkfallinu.
Orsök þess er lítið annað en landlæg
óvild í garð barnakennara þótt þeir
taki stöðugt meira við því sem ætti
að vera skylda foreldranna.
ÁÐUR eftir að mæður fæddu börnin
gengu þau svo sjálfala að húsdýrin,
einkum kýr í fjósi, sáu um uppeldið.
Nú eru kennarar og skólar komnir í
hlutverk kúa og fjósa. Foreldrar vilja
bara vera að böðlast í vinnu.
STUTT er í það sem áður var sjálf-
sagt, að börn hjálpi strax til við að
hala inn peninga. Að mati flestra tók
námið þau frá bjargráðunum og al-
þýðubörn drifin úr skóla til að bjarga
fiskinum.
Auðvitað þurftu afkvæmi betriborg-
ara ekki að bjarga fiski og heyi. Þau
gengu menntaveginn og tóku við
þjóðarskútu og hlöðu, svo allt lenti
ekki í handaskolum.
ÞEGAR svo er komið aftur í sögunni
er fátt eftir annað en endurheimta
lúsina til að skríða í hári bjánanna.
Þá verða einkaskólar stofnaðir og fín
börn skilin frá hinum til að flýja
óþrifin.
UNDARLEGT er hvað enn er
grunnt á íslenskum hefðum. Andúðin
á kennurum virðist vera jafnt hjá
háum og lágum, hámenntuðum og
skyldulærðum. Þjóðin blossar nú upp
eins og hún var í eymd og fáfræði.
FORDÓMARNIR spretta af frum-
stæðum hvötum: Að hverjum manni
hentar best eigingirni. Svo foreldrar
hafa litlum skyldum að gegna eftir
fæðingu afkvæmis.
ÚTBURÐUR á börnum tíðkast enn,
en með fínni hætti en áður. Jafn-
framt útburði er komið upp barna-
vernd og við hana hafa lærðir at-
vinnu af samúð á hærra kaupi en
kennarar.
FÁIR þora að segja sannleikann
vegna návígis í samfélaginu. Íslensk-
ar gungur voru og eru algengar. Í
landi með engan byltingarsinnaðan
stjórnmálaflokk nema til hægri
hegða menn sér endalaust eins og
þeir sem eru og verða alltaf kúgaðir
komnir í heim og kaghýddir langt
fram í ætt.
EINS og skáldið sagði meðan skáld
þorðu að segja skoðun sína en skört-
uðu ekki hátt á metsölubókalistunum.
BAKÞANKAR
GUÐBERGS
BERGSSONAR
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
48 Bak 25.9.2004 20:06 Page 2