Fréttablaðið - 03.11.2004, Síða 33
21MIÐVIKUDAGUR 3. nóvember 2004
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
1
0
1
6
DELL DIMENSION XPS GEN. 3
Verð 219.900,-
• Intel Pentium 4 3.4GHz Prescott örgjörvi með 1MB flýtiminni,
800MHz FSB og Hyper Threading tækni
• 1024MB 533MHz DDR2 vinnsluminni, hámark 4GB
• 250GB 7200 RPM SATA harður diskur (RAID stuðningur)
• 16x DVD/RW Dual layer skrifari - 8,5GB af gögnum
á Dual layer DVD diska
• 256MB ATI X800 XT (DVI/VGA/TV)16x PCI Express skjákort
• Soundblaster Audigy 2 Digital hljóðkort (EAX 4.0)
• Dell 10/100/1000 netkort
• 8 USB 2.0 tengi og 2 FireWire tengi
• Microsoft Windows XP Professional
• 460W aflgjafi í sér hólfi neðst í turninum til að minnka hita
• Turninn er upplýstur að framan og hægt er að skipta á milli
7 lita á ljósinu
• 2ja ára ábyrgð á verkstæði EJS
17” FLATSKJÁR
Tilboðsverð 41.900,-
Áður 49.900,- stgr.
19” FLATSKJÁR
Tilboðsverð 67.900,-
Áður 76.800,- stgr.
• XPS - Nýjasta Dimension-línan frá Dell.
• Pentium 3,4GHz Prescott - einn sá alöflugasti frá Intel.
• DDR2 - Hraðvirkasta minni sem völ er á.
• PCI Express - Glæný tækni, arftaki AGP gefur leikjum alveg
nýja vídd.
• RAID - Harðir diskar með RAID eru hraðvirkari og öruggari en
hefðbundnir diskar og er venjulega að finna í öflugum netþjónum.
• Soundblaster Audigy 2 - THX vottað, 6.1 Surround.
Nú er loksins hægt að leika sér því öflugasta og skemmtilegasta heimilistölva sem Dell hefur
sent frá sér er komin til landsins. Ógnarhraði, yfirburðaskjákort, blikkandi ljós og blái liturinn
sem gerir alla hina græna af öfund!
XPS er komin í EJS
Réttur stéttarfélaga til verkfalla er eitt
áhrifaríkasta tæki þeirra við samn-
ingaborðið líkt og réttur til verkbanna
er mikilvægasta tæki atvinnurekenda.
Þetta má ekki síst merkja á því að oft
dugar að hóta verkfalli til að samning-
ar náist.
Kenningar hagfræðinnar um það
hvers vegna verkföll eiga sér stað eru
margar og margs konar. Margar byggj-
ast á hugmyndum um að samnings-
aðilar búi yfir mismunandi upplýsing-
um um stöðu fyrirtækisins og getu til
að greiða laun. Ef þeir hefðu aðgang
að sömu upplýsingum gætu báðir séð
hvaða laun væru möguleg og samið
áður en til verkfalls kæmi.
Ef verkfall er boðað á almennum
vinnumarkaði og samningar nást ekki
áður en á skellur verkfall, þá tapa báð-
ir aðilar. Starfsmenn tapa launum þar
sem þeir mæta ekki í vinnu og vinnu-
veitendur tapa tekjum þar sem engin
framleiðsla á sér stað. Tap vinnuveit-
enda getur orðið enn meira en beint
tekjutap í verkfalli þar sem viðskipta-
vild getur tapast til langframa. Þrýst-
ingur til samninga er því töluverður.
Þegar verkföll verða hjá hinu opinbera
er önnur staða uppi á teningnum. Þar
sem rekstur stofnunar er fjármagnað-
ur af skatttekjum þá halda tekjurnar
áfram að streyma inn í verkfallinu, en
útgjöldin verða lítil sem engin þar
sem viðkomandi starfsmenn eru í
verkfalli. Vinnuveitandi tapar því engu
í verkfallinu, a.m.k. ekki fjárhagslega.
En væntanlega tapa þá starfsmenn-
irnir, ekki satt? Jú, í flestum tilfellum. Á
hinn bóginn eru stéttir eins og kenn-
arar í þeirri stöðu að þegar verkfalli
lýkur þarf að semja um hvernig nem-
endum er bættur kennslutíminn. Ekki
er hægt að ljúka kennsluári þegar
nokkrar vikur vantar á kennslutímann.
Því er ljóst áður en verkfall hefst að
síðar mun þurfa að semja um að
bæta upp þann tíma sem kennarar
voru í verkfalli. Tapaðar tekjur í verk-
falli eru því jafnan bættar í yfirvinnu
að loknu verkfalli. Því er ekki útlit fyrir
að kennarar tapi miklu á verkfallinu,
a.m.k. ekki í tekjum.
Hverjir tapa þá á kennaraverkfalli?
Ekki sveitarfélögin sem greiða launin
og ekki kennararnir sem þiggja laun-
in. Því er enginn hvati af hálfu þeirra
sem í kjaradeilunni eiga að ná samn-
ingum þrátt fyrir að verkfall sé á skoll-
ið. Nei, verkfallið lendir á þriðja aðila,
þ.e. börnum sem engan þátt eiga í
kjaradeilunni og foreldrum þeirra sem
fæst koma að máli, nema að því leyti
að þeir borga útsvar og þar með laun
kennaranna. Þá töpum við sem þjóð-
félag þar sem verkföll eru aldrei hag-
kvæmur kostur fyrir þjóðarbúið í
heild. ■
ÞJÓÐARBÚSKAPURINN
KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR
Hvers vegna verkföll? Þegar verkföll verða hjáhinu opinbera er önnurstaða uppi á teningnum.
Þar sem rekstur stofnunar
er fjármagnaður af skatt-
tekjum þá halda tekjurnar
áfram að streyma inn í
verkfallinu, en útgjöldin
verða lítil sem engin þar
sem viðkomandi starfs-
menn eru í verkfalli.
Vinnuveitandi tapar því
engu í verkfallinu, a.m.k.
ekki fjárhagslega
MARKAÐSFÓLK Þóra Hallgrímsson tók
við markaðsverðlaunum fyrir hönd sonar
síns Björgólfs Thors Björgólfssonar, stjórn-
arformanns Actavis.
Actavis best
ÍMARK, félag íslensks markaðs-
fólks, valdi Actavis markaðsfyrir-
tæki ársins. Þá var Björgólfur
Thor Björgólfsson, stjórnarfor-
maður Actavis, valinn markaðs-
maður ársins á markaðsverð-
launahátíð félagsins. Herra Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, afhenti verðlaunin á hátíð
ÍMARK.
Actavis og forvera þess hefur
með öflugu markaðsstarfi og
markvissri útrásarstefnu tekist
að byggja upp alþjóðlegt stórfyr-
irtæki í lyfjaiðnaði á nokkrum
árum en starfsmenn þess eru nú
7.000 í 25 löndum.
Róbert Wessman, forstjóri
Actavis, segir að með samstilltu
átaki starfsmanna hafi með
undraverðum hætti tekist að
byggja upp sterkt alþjóðlegt vöru-
merki og styrkja með því stöðu fé-
lagsins á alþjóðamarkaði. ■
VÖXTUR Í KÍNA Samskip hafa opnað
þrjár skrifstofur í Kína. Tvær í viðbót eru á
teikniborðinu.
Útrás í Asíu
Mikill vöxtur er í starfsemi Sam-
skipa í Asíu og var þriðja skrif-
stofa félagsins þar opnuð á mánu-
daginn í Dalian í Kína. Fyrir eru
Samskip með skrifstofu í Pusan í
Suður-Kóreu og Qingdao í Kína. Á
næsta ári bætast við tvær skrif-
stofur Samskipa í Asíu, í Tælandi
og Víetnam.
Aðalstarfsemi skrifstofanna í
Asíu er flutningur á frystum fiski
og hefur magnið aukist stöðugt
frá því fyrsta skrifstofan var
opnuð í Pusan í febrúar á síðasta
ári. „Markmið okkar er að verða
leiðandi í heiminum í flutningi og
tengdri þjónustu við sjávarútveg-
inn,” segir Einar Þór Guðjónsson,
framkvæmdastjóri frysti- og
kæliflutningasviðs Samskipa. ■
32-33 (20-21 Viðskipti 2.11.2004 20:16 Page 3