Fréttablaðið - 07.11.2004, Qupperneq 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 63 stk.
Keypt & selt 31 stk.
Þjónusta 17 stk.
Heilsa 10 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 14 stk.
Tómstundir & ferðir 4 stk.
Húsnæði 17 stk.
Atvinna 22 stk.
Tilkynningar 4 stk.
26.-28. nóvember
Aðventuferð fjölskyldunnar í Bása
4.-5. desember
Aðventuferð jeppamanna í Bása
30. des. - 2. jan.
Áramótaferð í Bása
Básar í hátíðarskapi!
Laugavegi 178,
sími 562 1000
www.utivist.is
Góðan dag!
Í dag er sunnudagur 7. nóvember,
312. dagur ársins 2004.
Reykjavík 9.31 13.11 16.51
Akureyri 9.28 12.56 16.24
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Ingibjörg Jóhannsdóttir bókbindari er ein
þeirra sem sér til þess að jólabækurnar
komi út á réttum tíma og það hefur hún
gert í 31 ár. Hún starfar í prentsmiðjunni
Odda og stendur þar bak við stóra vél sem
brýtur arkirnar saman. Þessa vél sér hún
um að stilla og mata og stundum smyrja.
Nýja bókin hans Guðbergs Bergssonar er
að renna í gegn hjá henni þegar Frétta-
blaðið mætir á svæðið en hávaðinn er það
mikill að Ingibjörg teygir sig í rofann og
slekkur til að hægt sé að eiga við hana
orð. Og hún gerir betur því hún býður
blaðamanni upp „metorðastigann“ og inn
í „spaugstofuna“, sem er nýjasta fundar-
herbergið í húsinu. Á leiðinni er hún
spurð spauglaust hvort hávaðinn þreyti
hana ekki. Hún svarar óbangin. „Þetta
venst. Við erum með eyrnahlífar.“
Ingibjörg er ekta gaflari og kynntist
bókbandi fyrst í Flensborgarskólanum
þar sem það var meðal námsgreina. „Ég
hafði alla tíð áhuga fyrir handverki,“ seg-
ir hún og kveðst hafa útskrifast 1977 frá
Iðnskólanum í Reykjavík, en lært í Bók-
felli og meistarinn verið Guðmundur Þór-
hallsson, faðir Þórhalls miðils. Þar var
mest gert í höndunum þótt tæknin hafi
líka komið við sögu.
Nú stendur hún við stafræna vél allan
daginn. Hvort finnst henni skemmti-
legra?
„Mér finnst nútíminn skemmtilegur,“
segir hún brosandi. „Auðvitað gátum við
spjallað meira við vinnuna í gamla daga.
En fagið í heild er skemmtilegt. Ferillinn
frá A til Ö. Það er svo gaman að sjá bók-
ina verða til og það er mikil fjölbreytni
hér í Oddanum. Ég er búin að starfa hér í
þrjú ár og er auðvitað bara hlekkur í stór-
ri keðju.“
gun@frettabladid.is
Ingibjörg bindur inn í Oddanum:
Finnst nútíminn
vera skemmtilegur
Á vefsíðu Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur geta full-
gildir félagsmenn sótt um lykilorð
inn á vef félagsins og séð upplýs-
ingar og stöðu sína hjá félaginu.
Þar er til dæmis hægt að sjá yfirlit
yfir greidd félagsgjöld til félagsins
og athuga hvort hægt sé að sækja
um hina ýmsu styrki. Til að sækja
um lykilorðið er farið inn á
heimasíðu félagsins, vr.is.
Lykilorðið er síðan sent í
pósti á lögheimili eða að-
setur félaga eins og það
er skráð í félagaskrá.
Karlar og konur á
norrænum vinnumarkaði
er yfirskrift tveggja daga
málþings sem haldið verður
á Grand Hótel dagana 11.
og 12. nóvember. Fyrri daginn verð-
ur sjónum sérstaklega beint að
körlum í „kvennastörfum“ en þann
seinni verður horft víðar á kynja-
skiptingu á vinnumarkaði. Aðgang-
ur er ókeypis og öllum heimill en
þó er mikilvægt að þátttakendur
skrái sig á heimasíðu Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, bsrb.is.
Heilbrigðisráðuneytið í
Skotlandi hefur sett saman leið-
beiningar um hvernig fyrirtæki geti
varnað starfsmönnum sínum frá
streitu og stressi. Síðasta könnun
ráðuneytisins sýndi að fjörutíu þús-
und Skotar þjást af stressi á vinnu-
staðnum. Leiðbeiningarnar frá ráðu-
neytinu voru settar saman af stjórn-
endum fyrirtækja og starfsmönnum.
Þetta er mjög þarft verkefni því of
mikið álag getur leitt til streitu sem
getur gert fólk veikt og komið
niður á frammistöðu þess í
vinnunni. Í leiðbeiningunum
eru viðmiðunarreglur til að verj-
ast stressi og hefur þessum regl-
um verið komið á í tuttugu
stofnunum á Bretlandseyjum.
Ingibjörg vinnur á brotvél og vinnudagurinn er langur þegar jólabókaflóðið er í ham.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í ATVINNU
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Ég fékk sandala
svo tærnar á mér
geti séð hvert þær
eiga að fara!
Glæsileg fjórhjól á góðu verði. 3 teg-
undir nýrra fjórhjóla með fullri ábyrgð á
verðinu 347-399 þús. Frekari upplýs-
ingar á www.fjorhjol.is og í síma 899
4550
Hvernig verður maður blikk smiður
BLS. 3
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
atvinna@frettabladid.is
19 (01) Allt forsida 6.11.2004 21:55 Page 1