Fréttablaðið - 17.11.2004, Blaðsíða 2
2 17. nóvember 2004 MIÐVIKUDAGUR
ÍRAK, AFP Á annað þúsund banda-
rískir og íraskir hermenn réðust
gegn vígamönnum í Mosul til að
koma á kyrrð í borginni. Víga-
menn réðust á lögreglustöðvar í
borginni meðan athygli Banda-
ríkjahers beindist að mestu að
Falluja og náðu lögreglustöðvun-
um á sitt vald.
1.200 bandarískir hermenn
réðust inn í Mosul og nutu að-
stoðar herþotna og þyrlna sem
skutu á vígamenn úr lofti og
vörpuðu sprengjum á þá. Áfram
er barist í Falluja og Baquba.
Fáir vígamenn hafa gefist upp í
Falluja en 1.200 eru sagðir hafa
fallið í bardögum við bandaríska
og íraska hermenn. Engar upp-
lýsingar eru að hafa um mannfall
meðal almennings. Talið er að
150 vígamenn hafi tekið sér
stöðu í Baquba, sótt hefur verið
að þeim síðustu daga og tugir
fallið.
Bandarískir hermenn og íbúar
Falluja unnu að því að grafa lík
Íraka sem féllu í borginni. Þrátt
fyrir að stærstur hluti borgar-
innar sé á valdi hermanna er enn
barist þar. ■
STJÓRNMÁL Enginn ráðherra ríkis-
stjórnarinnar var við umræðu á
Alþingi í gær, þar sem ríkisstjórn-
in var sökuð um að bera ábyrgð á
stríðsglæpum sem framdir væru
þessa dagana borginni Falluja í
Írak. Til umræðu var tillaga for-
manna allra stjórnarandstöðu-
flokkanna um að hætta stuðningi
við innrás Bandaríkjamanna og
Breta í Írak og stofna rannsóknar-
nefnd til að grafast fyrir um orsök
stuðnings Íslands við stríðið.
„Ég kenni til að vera Íslending-
ur og bera siðferðilega ábyrgð.
Voðaverkin í Falluja eru á ábyrgð
allra þeirra 30 þjóða sem eru á
lista yfir hinar viljugu þjóðir,“
sagði Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar.
Sólveig Pétursdóttir, formaður
utanríkismálanefndar, varð til
andsvara af hálfu stjórnarliða.
Sagði hún að Ísland hefði treyst
því mati bandamanna að heims-
friðnum hefði stafað hætta af ógn-
arstjórn Saddams Hussein. „Við
erum ekki í stakk búin til að vé-
fengja slíkar upplýsingar, við höf-
um ekki leyniþjónustu.“
Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Samfylkingu, gagnrýndi málflutn-
ing Sólveigar og spurði hvort
henni væri ekki kunnugt um að
engin gereyðingarvopn hefðu fun-
dist í Írak og viðurkennt væri að
al-Kaída ætti ekki „lögheimili“ í
Bagdad eins og fullyrt hefði verið
fyrir innrás.
Hvössustu orðaskiptin urðu
þegar Ögmundur Jónasson,
Vinstri grænum, líkti framferði
Bandaríkjamanna í Írak við nas-
ista í síðari heimsstyrjöldinni.
Sagði að hann að Bandaríkjamenn
væru að fremja stríðsglæpi í
Falluja og kallaði George W. Bush
forseta stríðsglæpamann: „Í
Falluja er verið að fremja stríðs-
glæpi á ábyrgð íslenskra stjórn-
valda.“
Einar K. Guðfinnsson, Sjálf-
stæðisflokki, gerði harða hríð að
Ögmundi og benti á að hann hefði
verið andsnúinn bæði innrásinni
og viðskiptaþvingunum Samein-
uðu þjóðanna gegn Írak: „Hann
vildi una því að Saddam Hussein
yrði harðstjóri um ókomin ár.“
a.snaevarr@frettabladid.is
STÓRNMÁL Ný-
leg skoðana-
k ö n n u n
Gallup um af-
stöðu Íslend-
inga til flótta-
manna og
málefna út-
lendinga varð
tilefni til
utandagskrár-
umræðna á
Alþingi í gær.
Niðurstöðurn-
ar benda til að
Íslendingum
sem taka vilja
við fleiri
flóttamönnum hefur fækkað um
18% á 5 árum. Þá hefur þeim
sem telja að útlendingar sem
flytji til Íslands megi halda eigin
siðum og venjum hafi fækkað
um 13%.
„Ég tel það verulegt áhyggju-
efni að sjá þessa þróun í viðhorfi
Íslendinga og ég óttast að víða sé
pottur brotinn í félagslegri að-
lögun þeirra,“ sagði málshefj-
andinn Bryndís Hlöðversdóttir,
Samfylkingu.
Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra sagði að niðurstöðurnar
væru umhugsunarefni. Hann
benti á að öfugt við nágranna-
löndin væru flestir flóttamenn
og útlendingar á Íslandi í vinnu.
Hann sagði að flóttamannaráð
væri nú að kanna hag flótta-
manna sem hingað hefðu komið
og ástæða væri til að kanna al-
mennt stöðu útlendinga. Þá sagði
hann að félags- og dómsmála-
ráðuneyti væru að fara yfir
hvernig einfalda mætti stjórns-
ýslu við útgáfu atvinnuleyfa til
útlendinga.
- ás
TF-LIF
Þyrla Landhelgisgæslunnar var send til
bjargar línubáti sem rak stjórnlaust upp í
Skarðsfjöru.
Línubátur:
Rak upp að
fjöru
BJÖRGUN Línubátinn Stellu NK-12
rak stjórnlaust upp í Skarðsfjöru
skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
LIF, fór í loftið rétt fyrir klukkan
eitt og þurfti áhöfn þyrlunnar að
notast við nætursjónauka þar sem
dimm él gengu yfir á Suðurlandi.
Fiskibáturinn Sæmundur tók
Stellu í tog og var þá hætt við að
senda þyrluna á svæðið. Lóðsinn í
Vestmannaeyjum tók við þegar bát-
arnir komu að Dyrhólaey og komu
bátarnir til hafnar í Vestmannaeyj-
um um miðjan dag í gær. ■
Já, það fór verulega í taugarnar á mér.
Í sjónvarpsauglýsingu segir Viggó Sigurðsson, nýr
landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins í handbolta,
að hann þoli ekki að tapa. Íslenska liðið tapaði
leik í gær gegn Þjóðverjum með einu marki á
World Cup í Svíþjóð.
SPURNING DAGSINS
Viggó, fór í taugarnar á þér að tapa?
Þjófnaður:
Stal sex
hnökkum
LÖGREGLUMÁL Fullum pappakassa af
nýjum reiðhnökkum var stolið við
vegamót að býlinu Króki í Ása-
hreppi síðdegis í fyrradag. Flutn-
ingabílstjóri skildi kassann eftir
við vegamótin en hann var horfinn
þegar eigandi kassans ætlaði að
nálgast hann skömmu síðar.
Hnakkarnir voru sex og af gerð-
inni Top Reiter sem eigandinn
hafði flutt inn frá Þýskalandi. Lög-
reglan biður alla þá sem búa yfir
einhverjum upplýsingum varðandi
þennan kassa eða sem hafa séð til
mannaferða við umrædd vegamót
um klukkan hálf fjögur í fyrradag
að hafa samband í síma 488 4111. ■
Skjalafals:
Angólsk kona
í fangelsi
DÓMSMÁL Angólsk kona var í Hér-
aðsdómi Reykjaness dæmd í
tveggja mánaða fangelsi fyrir þrjú
skjalafalsbrot.
Konan braut fyrst af sér þegar
hún stofnaði kennitölu með fölsuðu
vegabréfi hjá Hagstofu Íslands.
Aftur framvísaði hún fölsuðum
skilríkjunum þegar hún stofnaði
bankareikning og einnig á leið
sinni út úr landinu en hún var á leið
til Bretlands. Konan kom til lands-
ins frá Hollandi í byrjun ársins.
Hún hóf afplánun í kvennafangels-
inu í Kópavogi í gær. ■
Tvær skýrslur um
olíufélögin:
Ein fyrir
dómstóla
OLÍUFÉLÖGIN Samkeppnisráð lét út-
búa tvær útgáfur af olíuskýrsl-
unni. Opinberu skýrsluna má
nálgast á heimasíðu Samkeppnis-
stofnunar en hin útgáfan verður
eingöngu afhent áfrýjunarnefnd
samkeppnismála og dómstólum.
Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs
Samkeppnisstofnunar, segir að
óopinbera skýrslan sé með ýms-
um trúnaðarupplýsingum. Til
dæmis séu þar rekstrarlegar og
viðskiptalegar upplýsingar um fé-
lögin sem trúnaður ríki um.
- th
Tékkland:
Fyrrverandi
fangar fá
skaðabætur
PRAG, AP Tékknesk stjórnvöld hafa
ákveðið að bæta Tékkum það upp
að hafa verið teknir til fanga fyrir
stjórnmálaskoðanir sínar þegar
ríkið var undir stjórn kommúnista.
Fyrrverandi pólitískir fangar
munu fá aukalega um 150 krónur
fyrir hvern mánuð sem þeir voru í
fangelsi eða fangabúðum. Makar
fyrrverandi fanga sem eru látnir
munu fá aukalega allt að 5.600
krónur á mánuði.
Þúsundir Tékka voru sendir í
fangelsi eða í fangabúðir fyrir að
berjast gegn kommúnistastjórn-
inni.
Talið er að um 6.000 fyrrverandi
pólitískir fangar séu enn á lífi í
Tékklandi. ■
SJÖ ÁREKSTRAR Sjö árekstrar
urðu í Kópavogi frá klukkan þrjú
í gærdag til klukkan níu í gær-
kvöld. Engin slys urðu á fólki en
nokkurt eignatjón varð á bílun-
um.
VÍGAMAÐUR NÆRRI MOSUL
Vígamenn réðust að olíustarfsemi nærri
Mosul og kveiktu í mannvirkjum.
BRYNDÍS HLÖÐ-
VERSDÓTTIR
Segir könnun Gallup
áhyggjuefni en: „Enn
er vandamálið ekki
svo risavaxið að við
getum ekki tekist á
við það.“
Afstaða til útlendinga:
Áhyggjur á Alþingi
Ísland ber ábyrgð
á stríðsglæpum
Stjórnarandstaðan krafðist þess á Alþingi í gær að Ísland segði sig úr
bandalagi hinna staðföstu í Írak. Ísland var sagt bera ábyrgð á stríðs-
glæpum Bandaríkjamanna í Falluja sem líkt var við framferði nasista.
ENGINN RÁÐHERRA VIÐSTADDUR
Össur Skarphéðinsson sakaði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um að „skammast sín“ svo mikið að hann „legði ekki í“ að ræða
Íraksmálin í þinginu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Harðir bardagar geisa í nokkrum borgum Íraks:
Herliði fylkt til Mosul
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
02-03 16.11.2004 22:22 Page 2