Fréttablaðið - 17.11.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.11.2004, Blaðsíða 4
Glitnir kemur flér í samband vi› rétta bílinn – traustur samstarfsa›ili í fjármögnun 4 17. nóvember 2004 MIÐVIKUDAGUR SKÓLAMÁL Kennarar Lágafellsskóla og Varmárskóla í Mosfellsbæ gengu út úr grunnskólunum tutt- ugu mínútur yfir ellefu í gærmorg- un og funduðu í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ. Fimmtán kennarar af 45 í Lága- fellsskóla og tíu af 68 í Varmár- skóla hafa sagt upp störfum, samkvæmt vitneskju bæjaryfir- valda. Fleiri uppsagnir bárust í gær en höfðu ekki verið taldar. Fleiri kennarar íhuga uppsagnir. Kennarar höfðu gert skóla- stjórnendum og bæjaryfirvöldum viðvart og vildu sjá þau þrjú atriði af fjórum sem Kennarasambandið lagði fyrir launanefndina og hún hafnaði samþykkt: Óskert desem- beruppbót, laun skerðist ekki yfir sumartímann vegna verkfallsins og 5,5 prósenta launahækkun strax. Í yfirlýsingu kennaranna segir: „Við hörmum það ástand sem nú hefur skapast í grunnskólum bæj- arins en lýsum jafnframt fullri ábyrgð á hendur stjórnvöldum.“ Björn Þráinn Þórðarsson, sviðs- stjóri fræðslu- og menningarsviðs Mosfellsbæjar, segir engar ákvarð- anir bæjaryfirvalda liggja fyrir vegna uppsagnanna. Beðið sé eftir niðurstöðu funda launanefndarinn- ar og sveitarfélaganna. - gag SKÓLAMÁL Fimm af níu kennurum grunnskólans á Hólmavík hafa sagt upp störfum sem og allir fimmtán kennarar grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Skólastjórar skólanna segja að líta megi á upp- sagnirnar sem þrýstiaðgerðir. Kennurum sé þó full alvara. Þeir haldi uppsögnunum til streitu náist ekki samkomulag um viðunandi laun. Victor Örn Victorsson, skóla- stjóri grunnskólans á Hólmavík, er sannfærður um að lág laun kenn- ara verði landsbyggðinni blóðtaka: „Ég er klár á því að landsbyggðin á eftir að fara miklu verr út úr mál- unum en Reykjavíkursvæðið vegna þess að það er miklu verra að fá kennara út á land heldur en að ráða í Reykjavík.“ Victor segir fórnir kennaranna sem segja upp úti á landi meiri en þeirra á höfuðborgarsvæðinu: „Þeir hverfa ekki svo auðveldlega að annarri vinnu. Hér hafa kennar- arnir sagt upp með tárin í augun- um,“ segir Victor. Allir kennararnir fyrir utan einn eigi húsnæði á staðnum. Þau séu ekki auðseljanleg. Kennararnir hafi þegar hafið leit að öðrum störfum. Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, skólastjóri grunnskóla Fáskrúðs- fjarðar, segir starfsfólkið mjög ósátt. Það komi fram í uppsögnun- um. Reiðin sé mikil, þá sérstaklega með hvernig staðið var að laga- setningu stjórnvalda á deiluna. Þórhildur segir að hverfi kenn- ararnir frá störfum séu engar lík- ur á að nýir kennarar fáist til starfa. Leiðbeinendur tækju við kennslu nemendanna. Hún gæti ekki sætt sig við það og myndi þá einnig hverfa á braut. Óánægja kennara er víða um land. Skólastjórar sem Fréttablað- ið ræddi við sögðu kennarana íhuga sína stöðu. Þeir útilokuðu ekki uppsagnir kennara. Auður Hrólfsdóttir, skólastjóri Brekku- bæjarskóla á Akranesi, segir óvissuna kennurum erfið. Fundað hafi verið um líðan fólks. Það sé slegið. Uppsagnir kennara taka gildi 1. desember. Þeir hafa þriggja mán- aða uppsagnarfrest. Vinnuveitend- ur geta einnig framlengt uppsagnarfrestinn um þrjá mán- uði. Uppsagnirnar gætu því orðið í lok júní. gag@frettabladid.is FÓR ÚT AF SPORINU Vonast er til að svarti kassinn sem náðist heill úr lestinni varpi ljósi á hvað gerðist. Lestarslys í Ástralíu: Mildi að enginn lést ÁSTRALÍA, AP Ástralska lögreglan tel- ur mikla mildi að enginn skyldi hafa látist þegar lest með 163 farþegum fór út af sporinu við bæinn Bunda- berg um 400 kílómetra norður af Brisbane. Meira en 150 manns slösuðust í slysinu, þar af 35 alvarlega. Ekki er vitað nákvæmlega á hversu mikilli ferð lestin var þegar hún fór út af sporinu, en hún nær allt að 160 kíló- metra hraða á klukkustund. Að sögn lögreglu er ekki heldur ljóst hvers vegna lestin fór út af sporinu. ■ Á að banna spilakassa í sjoppum landsins? Spurning dagsins í dag: Óttastu upplausn í Palestínu í kjölfar andláts Jassers Arafat? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 22% 78% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun SKÓLASTARF HAFIÐ Nemendur jafnt sem kennarar verða lengi að jafna sig eftir verkfallið. Sálfræðingur: Erfitt að jafna sig KJARAMÁL Kennarar hafa gengið í gegnum kreppu í verkfallinu, bæði persónulega og líka vegna þeirra viðhorfa sem þeir hafa mætt hjá stjórnmálamönnum og samfélag- inu. Búast má við að verkfallið hafi áhrif á skólastarfið og móralinn innan skólanna næstu mánuði. Við bætist að jólin nálgast auk þess sem verkfallið hefur áhrif á fjár- hagslega stöðu kennaranna. Þetta er mat Bjarna Ingvarssonar sál- fræðings. „Þessi löngu verkföll eru krísa. Kennarar eru ekki öfundsverðir að vera í þessari stöðu. Mannfólkið er misjafnt í kennarastétt eins og öðr- um stéttum og misjafnt hvernig menn ráða fram úr svona en varð- andi móral á vinnustað þá er þetta afar erfitt og verður lengi að jafna sig. Allir finna fyrir því, nemendur sem starfsmenn, en hver skóla- stjórnandi verður að finna út úr því. Margir eiga örugglega um sárt að binda,“ segir Bjarni. - ghs KVEIKTI Í SÉR Maður kveikti í sér fyrir framan Hvíta húsið. Öryggis- verðir brugðust skjótt við og náðu að bjarga manninum sem slasaðist nokkuð. Maðurinn var uppljóstrari fyrir bandarísku alríkislögregluna og var ósáttur við að komast ekki til Jemen þar sem fárveik eigin- kona hans býr. KENNARAR Í BÆJARLEIKHÚSI MOSFELLSBÆJAR Kennararnir hafa fundað fjórum sinnum um stöðuna frá því á sunnudag. Yfir 25 kennarar bæjarins hafa sagt upp störfum. Fleiri íhuga uppsagnir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Fjórðungur kennara í Mosfellsbæ hefur sagt upp: Fleiri kennarar íhuga uppsagnir ■ BANDARÍKIN Strokufangi: Áfram í varðhaldi DÓMSMÁL Gæsluvarðhald yfir 19 ára pilti, sem ákærður er fyrir vopnað rán í Hringbrautarapóteki í september, hefur verið fram- lengt þar til dómur fellur en þó ekki lengur en til 4. janúar. Aðal- meðferð verður í lok mánaðarins. Pilturinn notaði gasskamm- byssu og hótaði starfsfólki lífláti þegar hann rændi apótekið. Hann er líka ákærður fyrir að hafa lagt haglabyssu að andliti manns í heimahúsi. Lögreglan auglýsti eftir piltinum þegar hann strauk úr fangelsi. Þá var hann ekki sagður vera hættulegur. ■ KRAKKAR Í GRUNNSKÓLA HÓLMAVÍKUR Fimm af níu kennurum grunnskólans á Hólmavík hafa sagt upp störfum. Sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps hefur boðað til fundar með kennurum á mánudaginn. Allir kennarar grunnskóla Fáskrúðsfjarðar hafa einnig sagt upp. Kennarar víða íhuga uppsagnir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K R IS TÍ N E IN AR SD Ó TT IR Blóðtaka fyrir landsbyggðina Kennarar á Hólmavík og Fáskrúðsfirði hafa sagt upp störfum. Kennar- ar um allt land íhuga uppsagnir. Þeir eru slegnir yfir stöðunni í kjara- viðræðunum og ósáttir við lagasetningu stjórnvalda. 04-05 16.11.2004 21:46 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.