Fréttablaðið - 17.11.2004, Blaðsíða 41
MIÐVIKUDAGUR 17. nóvember 2004
fös. 19. nóv. kl. 20. laus sæti.
lau. 20. nóv. kl. 20. laus sæti.
Hjá Máli og menninguer komin út skáldsag-
an Svartur á leik eftir
Stefán Mána. Svartur á
leik er glæpasaga sem
markar tímamót í íslenskri
glæpasagnaritun. Hér dregur höf-
undur upp afar trúverðuga og ótrú-
lega sannfærandi mynd af undirh-
eimum Reykjavíkur, sem er byggð á
umfangsmiklum athugunum. Hraði
og spenna eru í fyrirrúmi, lesturinn er
sannkölluð rússibanareið gegnum ís-
lenska glæpi síðustu áratuga.
NÝJAR BÆKUR
Breyttir tímar
Það mætti líkja opnunargleðskapnum
um helgina saman við heilmikla sjálf-
sprottna myndlistarmessu hlaðna
kynngikrafti ef allt væri tekið saman.
Fimmtudagskvöldið var opnaði þessi
Vetrarmessa sem er reyndar titill á
sýningu yngstu kynslóðarinnar í Nor-
ræna húsinu. Það var nú bara fyrsta
opnunin á þessu óopinbera festívali
sem nú virðist standa yfir. Síðdegis á
föstudag opnaði svo einn merkileg-
asti myndlistarmaður þjóðarinnar Dr.
„Vísi“ 16. sjónþing sitt á Grand Rokk.
Í kjölfarið á föstudagskvöldið kom
svo Listasafn Íslands með fyrstu sýn-
inguna í röð um íslenska samtímalist.
Haft var eftir ónefndum listamanni
við opnun „að líkja hefði mátt nota-
gildi Listasafnsins við allgóða 50
metra keppnissundlaug en aðeins
með 25 sentímetra vatnsdýpt“ og svo
bætti hann við „að með þessari
sýningu hefði hækkað í lauginni um
að minnsta kosti 15 sentímetra, hún
væri alveg við það að verða sprettfær
allavega fyrir þá fimustu.“
Forseti Íslands ávarpaði sýningar-
gesti með þeim orðum að framrás
íslenskra samtímalista væri að ná því
stigi sem bókmenntir okkar og rokk-
menning hefði þegar náð í athygli
umheimsins. Væri það ekki bara sín
skoðun heldur hefði hann þetta eftir
forstöðumönnum helstu sjón-
menntastofnana í Evrópu. Merkilegt
nokk hefur forsetaembættið, af hálfu
opinberra aðila, verið nánast eini
stuðningsaðili útrásar íslenskra nýlista
í verki. Á meðan láta ráðherrar heima-
stjórnarinnar helst sjá sig í skrautvöru-
versluninni Gallerí Fold. Fjölmenni var
við opnun og skemmtilegt á að horfa
hvernig sýningargestir hneyksluðust
eða dáðust af og nutu listaverka sem
hingað til hafa af mörgum ekki verið
talin hæf sem stofuprýði hvað þá til
landkynningar. Annmarkar sýningar-
innar eru að flest öll verkin hafa verið
sýnd áður - reyndar á fáfarnari slóð-
um. Líklega væri til of mikils mælst að
Listasafn Íslands hefði þá dirfsku að
bjóða uppá ný óséð verk. En þeir
tímar munu koma.
Það var líka tímanna tákn að við
opnun veisluhalda Félags íslenskra
gullsmiða í Gerðarsafni á laugardag-
inn fengu þeir sem til þekktu déjà-vu
tilfinningu. Opnunarathöfnin minnti
á gerning úr nýlistardeild Magnúsar
Pálssonar fyrir 30 árum. Gullsmiðirn-
ir sátu sem lifandi myndastyttur við
dúkað borð með verk sín fyrir framan
sig undir ræðuhöldunum. Gaman var
svo að sjá endurnýjun myndmálsins
á 30 ára afmælissýningu Textílsfé-
lagsins á Kjarvalsstöðum. Þar er á
ferðinni kraftmikil sýning á endurlífg-
un nýlistarfólks á textíl-handverki. At-
hyglisvert hvernig íslensku þátttak-
endurnir standa uppúr. Það eru
breyttir tímar í gangi og gróskan og
gerjunin sem átt hefir sér stað á und-
anförnum árum í kringum Listahá-
skólann er að skila sér. Það er orðið
ljóst hverra framtíðin er og hverjir
sitja eftir sem steinrunnin náttröll.
MYNDLIST
GODDUR
Vetrarmessa
Íslensk samtímalist
Textíllist
Gullsmíði
ÍSLENSK SAMTÍMALIST Líklega væri til
of mikils mælst að Listasafn Íslands hefði
þá dirfsku að bjóða uppá ný óséð verk.
En þeir tímar munu koma.
40-41 menning (32-33) 16.11.2004 18:46 Page 3