Fréttablaðið - 21.11.2004, Side 18
Þ að kom í ljós árið 1990 aðRob Pilatus og FabriceMorvan höfðu aldrei sungið í
lögunum sem hljómsveitin gaf út.
Þeir voru í rauninni bara módel
sem voru fengin til að hreyfa var-
irnar með lögunum og vera gríma
hljómsveitarinnar. Fólkið sem í
rauninni söng lögin var víst ekki
nógu fallegt til að selja plötur. Þeir
voru fyrstir til að þurfa að skila
Grammy-verðlaununum til baka og
voru í rauninni tákn fyrir allt það
sem fólk hatar við danstónlist. Hún
var verksmiðjuframleiðsla og svo
steríl að fólkið sem vann við fram-
leiðsluna þurfti að ráða fyrirsætur
til þess að gefa tónlistinni mann-
eskjulegt útlit. Yfirborðsmennskan
var slík að fólk keypti tónlistina
einungis vegna sætu strákanna.
Það sem pirraði almenning mest
þegar komst upp um Milli Vanilli
var að Rob og Fab voru orðnir gríð-
arlega frægir. Af hverju ættu þeir
að fá að öðlast frægð ef þeir gátu
ekki einu sinni sungið? Einnig
skammaðist fólk sín sennilega fyr-
ir að hafa gleypt við markaðssetn-
ingunni á þessari vitleysu.
Framleiðandi Boney M
Milli Vanilli var uppfinning þýska
framleiðandans Frank Farian, sem
hafði áður sett saman diskógrúpp-
una Boney M. Farian hóaði saman
nokkrum söngvurum og meðal ann-
ars einum rappara og tveimur mið-
aldra bandarískum mönnum. Þegar
hann áttaði sig á því að plata hóps-
ins var grípandi en ekki ytra útlitið
réð hann tvær fyrirsætur og fyrr-
um breikdansara, Rob Pilatus og
Fabrice Morvan, til þess að þykjast
vera hópurinn í myndböndum, á
tónleikum og í viðtölum.
Þeir áttu nokkra slagara sem
fóru beint í fyrsta sæti á vinsælda-
listanum eins og „Girl You Know
It's True,“ „Blame It on the Rain“
og „Baby Don't Forget My Num-
ber“ og frægðin fór fljótlega að
stíga þeim til höfuðs.
Betri en Bob Dylan
Pilatus var sérstaklega slæmur og
var kominn í kókaínneyslu og far-
inn að bera sig og Fab saman við
listamenn eins og Bob Dylan, Elvis
Presley, Paul McCartney og Mick
Jagger, sem var samlíking sem fór
illa í marga.
Þeir unnu svo Grammy-verð-
launin árið 1989 fyrir besta nýja
listamanninn og unnu þá meðal ann-
ars Indigo Girls, Neneh Cherry,
Soul II Soul og Tone-Loc. Rob og
Fab fóru svo að þrýsta mikið á Fari-
an að leyfa þeim að syngja allt sjálf-
ir á næstu plötu og á endanum
ljóstraði Farian upp leyndarmálinu
um bandið árið 1990, dauðþreyttur á
stælunum í fyrirsætunum. Þeir
voru svo neyddir til að skila
Grammy-verðlaununum og almenn-
ingur var brjálaður vegna svikanna.
Pilatus deyr
Farian reyndi svo að setja Milli
Vanilli aftur saman með raunveru-
legu söngvurunum en platan þeirra
floppaði algerlega í sölu. Pilatus
höndlaði frægðarmissinn illa og
reyndi að fremja sjálfsmorð. Hann
og Morvan reyndu einnig fyrir sér
saman sem söngvarar en voru ekki
samþykktir aftur í tónlistarsenuna
og diskurinn þeirra seldist ekkert.
Árið 1995 var Pilatus svo handtek-
inn og þurfti að dúsa nokkra mán-
uði í fangelsi, meðal annars fyrir
eiturlyfjabrot. Hann framdi svo
sjálfsmorð árið 1998, aðeins 32 ára,
og fannst lík hans á hóteli í Frank-
furt þar sem hann hafði tekið ban-
væna blöndu af lyfjum og víni.
Fabrice Morvan er enn að reyna að
slá í gegn sem sólótónlistarmaður
og gengur víst ekkert of vel.
hilda@frettabladid.is
18 21. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
Svikadúettinn Milli
Vanilli afhjúpaður
Það eru nú fjórtán ár síðan komst upp um svikin á bak við
hljómsveitina Milli Vanilli.
GERT GRÍN AÐ DÚETTNUM Milli Vanilli var þekkt fyrir bleika og bláa jakka sem hafa orðið uppsprettan að mörgum grímuballsbúningunum.
Milli Vanilli er orðið
eins konar hugtak
sem lýsir svikum og óheið-
arleika. Þegar Bush var sak-
aður um að hafa upptöku-
tæki innan á sér í kosninga-
ræðu sinni var hann til
dæmis kallaður Milli Vanilli.
Einnig var Blair og Bush líkt
við tvíeykið svikula.
,,
SMS LEIKU
R
Sendu sm
sið
JA BSF
á númeri
ð
1900
og þú gae
tir unnið!
Bíómiðar
, DVD myn
dir
og margt
fleira!
HONUM ER ALVEG SAMA HVORT ÞÚ SÉRT STILLTUR EÐA EKKI.
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
HANN KEMUR TIL BYGGÐA OG MISSIR SIG 18. NÓVEMBER
HANN KEMUR TIL BYGGÐA OG MISSIR SIG 18. NÓVEMBER
HANN KEMUR TIL BYGGÐA OG MISSIR SIG 18. NÓVEMBER
ROB PILATUS
FABRICE MORVAN
18-31 (18-19) Helgarefni 20.11.2004 19:36 Page 2