Fréttablaðið - 21.11.2004, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
FER‹ALEIKURINN ER
Á VISIR.IS – TAKTU fiÁTT!
Þú gætir unnið ferð til
Kaupmannahafnar eða London!
BAKÞANKAR
GUÐBERGS
BERGSSONAR
Munnurinn
Munnurinn á íslenska þjóðarlík-amanum er yfirleitt alltaf í
lagi. En stundum mætti halda að
tennurnar í honum ætli að segja upp
störfum og ákveða að kjósa frelsið.
Aldrei er að allar ákveði í skyndi að
rífa sig upp með rótum í einum rykk
heldur sumar af sömu gerð. Reglan
er sú að hvössu tennurnar skekkj-
ast. Þær bera sig, taka af skarið,
stíga fyrsta skrefið og skrölta
þannig að ylhýra tungan er í hættu.
Við að heyra lætin langar ekki aðrar
að vera eftirbátar. Jaxlarnir innst í
gómnum vita að þótt flatir séu eru
þeir meiri jötnar við að merja undir
sig en vígtönn, þótt beitt sé.
FRAMTENNURNAR vilja ekki
láta sitt eftir liggja og líta stórt á
sig, fremstar meðal jafningja. Þær
bíta fyrst, bæði frá sér og til sín, ef
svo má segja, og undirbúa tugguna.
Ekki gera jaxlarnir það. Þeir bara
auka maukið.
Þannig heldur lífræna þróunin
áfram meðan á andlegri og líkam-
legri máltíð okkar Íslendinga stend-
ur.
UGGVÆNLEGT er þegar allar
tennur gera sig líklegar til að kjósa
frelsið, þótt auðsætt sé að þær eiga
eftir að renna niður í rassgat. Áður
en það gerist hættir þeim til að
skrölta hamslausar hver innan um
aðra: Jaxl riðlast á framtönn og
framtennur veltast innan um augn-
tennur í haug. Verði þetta langvinnt
vita tennurnar varla hvað þær eru
að gera í trantinum eða hver til-
gangur þeirra hafi verið af hendi
guðs.
ÞÆR ÞEKKJA ekki upprunalegt
hlutverk, hvort það var eitthvert eða
varð að engu í munnvaðlinum.
Er til frelsi hvað tennur varðar?
Var réttast að vera kyrr á sínum
stað? Hefðum við þá ekki vitað hvað
eða hvort við vorum að tyggja, okk-
ur og öðrum til góðs, í stað þess að
bryðja hver aðra? Ef svo heldur
áfram, brotnum við og molnum.
Það eina sem þannig tennur hafa
upp úr krafsinu er að komast niður í
maga þjóðarlíkamans og ganga
niður af honum með harðlífi, niður-
gangi eða enn einu viðbótarprumpi.
SVO KOMA tannlæknar og skola
og festa tannagreyin með spöng.
Með henni getur munnurinn gegnt
áfram sínu hlutverki, látið þær
tyggja látlaust sömu tugguna af
hlýðni við óþreytandi athafna- og
matargatið, þótt ekki sé heil brú í
höfðinu.
48 (36) Bak 20.11.2004 19:34 Page 2