Tíminn - 20.01.1974, Qupperneq 26
„SVO AÐ
ÞIÐ ERUÐ
FRA
EYJUNNI,
SEM BOBBY
FISHER
GERÐI
FRÆGA"
Hilmar Viktorsson skrifar
um Bandaríkjaför íslenzka
landsliðsins í körfuknattleik
A feröalaginu um Bandarikin fengu islenzku landsliöspiltarnir aö skoöa mörg iþróttamannvirki. A
þessari mynd sést greinarhöfundur ánýjum knattspyrnuvelii.
Eflaust halda margir, að
íslenzka landsliðið í körfu-
knattleik haf i staðið sig illa
í nýafstaðinni Bandaríkja
ferð. Má hver sem vill
dæma um árangurinn. Þrír
fyrstu leikirnir gefa að
vísu tilefni til þess, að
menn dæmi hart, því að þá
var tapið stórkostlegt.
Mótherjana þekkja fáir
hér heima, en þessi þrjú
háskólalið, Maryland,
Duke og Wake Forest eru í
hópi þeirra beztu í USA.
Maryland-liðið er um þessar
mundir mjög sterkt og tapaði til
dæmis með aðeins eins stigs mun
á útivelli fyrir UCLA-háskólan-
um, en lið hans hefur sigrað i
bandarisku háskólakeppninni sl.
8 ár.
Leikirnir, sem UCLA hefur
unnið i röð á heimavelli nálgast
óðum töluna hundrað. Þessum
leik var sjónvarpað um öll
Bandarikin.
Nokkrir áhangendur Mary-
lands-liðsins komu til okkar eftir
leikinn og létu i ljósi hrifningu yf-
ir að við skyldum ekki hreinlega
gefast upp, þvi að munurinn var
það mikill á liðunum. Jafnframt
reyndu þeir að afsaka óiþrótta-
mannslega framkomu þjálfara
Marylands, og sögðu að i höfði
hans rúmaðist ekkert nema
körfubolti. Hann lét fimm beztu
menn liðsins leika svo til allan
leikinn gegn okkur. Nokkrir af
leikmönnum Marylands eru i
Ólympiuliði USA.
Til gamans má geta þess, að
faðir bakvarðar að nafi Lucas i
Maryland-liðinu fylgir syninum
hvert sem er i USA aðeins til að
sjá hann leika.
Hvarvetna voru móttökurnar
frábærar þar sem við komum.
Duke-háskólinn tók bezt á móti
okkur, ef Luther er undanskilinn.
Þar bjuggum við á fyrsta flokks
móteli með litsjónvarpi og fleiri
þægindum á herbergjunum. Að-
stoðarþjálfari Duke, Paul að
nafni, átti aðeins að aka okkur til
og frá leiknum við Duke, en ein-
hverra hluta vegna var hann með
okkur allan timann, sem við
dvöldumst þar. Paul fór með okk-
ur meðal annars á fótboltaleik.
l
Nokkrir fsl. leikmenn slappa af milli leikja. Prógramiö var óvenju þungt.