Tíminn - 13.02.1974, Síða 15

Tíminn - 13.02.1974, Síða 15
Miðvikudagur 13. febrúar 1974. 0 Tommy „Gott félagslif er hefð i Verzlunarskólanum” Verzlunarskólinn hefur á und- anförnum árum tekið fyrir tón- list, sem hefur verið ofarlega i hugum fólks, á hverjum tima. Einn veturinn sungu þau lög úr Oklahoma, annan vetur lög úr rokkóperunni Jesus Christ Super- star og svona mætti lengi telja. Ég náði tali af Sigtryggi Jóns- syni, en hann er forseti nemenda- félagsins. Aðspurður sagði hann, að félagslifið i skólanum hefði verið mjög gott i vetur. Ahuginn væri geysimikill og mikið sjálf- boðastarf hefði verið unnið fyrir nemendamótið. — Segja má, að mikið og gott félagslif sé hefð hjá Verzlunar- skólanum, þvi um langt skeið hefur áhugi og samstarf nemenda veriðmjög mikið. Sagði Sigtrygg- ur, að andinn i skólanum væri einstakur og sennilega ætti stjórnskipulagið mikinn þátt i þvi. í skólanum er niu mana aðal- stjórn og siðan eru fimm meðlim- ir fyrir hvert svið félagslifsins og á þann hátt virðist vera mjög auðvelt að ná til allra bekkjar- deilda. — Annars á kórinn lika mikinnheiður i þessu máli. Hann er I mörgum tilfellum uppsprett- an. Sagði Sigtryggur, að nemendur væru að fá bætta að- stöðu fyrir félagslifið i kjallara húss við Hellusund. Þar er hug- myndin að verði fundarherbergi, auk þess að starfsaðstaða mun breytast til hins betra, með tilkomu húsnæðisins. — Við höfum þurft að biða óhemjulengi eftir þvi, að faglærðir iðnaðar- menn lykju sinum verkum i kjall- aranum, svo við gætum byrjað að mála og koma öllu i sæmilegt horf. — Hvers vegna völduð þið Tommy til flutnings? — Ég hef lengi gengið með þessa hugmynd i maganum, — eða kollinum, réttara sagt. Núna er ég formaður og þvi er meira mark tekið á minum hugmynd- um. Sjálfum finnst mér óperan vera afburðaskemmtileg ög vel gerð, — og þó hún sé samin fyrir nokkrum árum, þá er hún enn geysivinsæl og til dæmis ætlar hinn frægi leikstjóri Ken Russel að kvikmynda hana bráðlega. „Hugurinn hefur verið hjá Tommy” Kolbeinn Kristinsson syngur aðalhlutverkið, Tommy. Hann er ekki með öllu óvanur söngmaður, þvi um tima söng hann með hljómsveitinni Mods. Hann hafði þetta að segja: — — Ég hef haft sérstakt dálæti á Tommy, allt frá þvi óperan kom fyrst fram á sjónarsviðið. Það hefur verið mjög gaman að vinna að þessu verki og ég vona að árangurinn verði i sæmilegu hlut- falli við erfiðið. Æfingarnar hafa ekki komið svo mikið niður á skólanum sjálfum, heldur verða bara önnur áhugamál að vikja. Þvi er þó ekki að leyna, að hugur- inn er oftast hjá Tommy. Leikritið Leynimelur 13 er eftir þá félaga, Emil Thoroddsen, Ind- riða Waage og Harald A. Sigurðs- son, en þeir kölluðu sig Þridrang. Sá orðrómur var á kreiki hér i borg, að fólk i húsnæðisvand- ræðum ætti að fá rétt til þess að koma sér fyrir hjá fólki, sem hefði nóg húsrúm, — og var þessi orðrómur uppsprettan að gerð leiksins. Leikritið fjallar um það ástand, sem skapast þegar óvæntir gestir koma inn i hús, og eru með skjöl upp á það, að hér eigi þeir heima. Leikurinn er mis- skilningur á misskilning ofan, en ekki verður farið út i þá sálma hér. Upprunalega er leikritið þriggja tima verk, en i uppfærslu Verzlunarskólanema tekur það rúma tvo tima. Leikendur eru alls 18, þar af 5 börn. Aðalhlutverkin eru.leikin af Úlfari Steindórssyni og Sigurði Pétri Harðarsyni. Leikhúsið Fjalakötturinn sýndi Leynimelinn fyrst 1943 og þá lék Haraldur Á. Sigurðsson aðalhlut- verkið. Leikritið hefur notið mik- illa vinsælda og verið sviðsett viðs vegar um landið. „Þetta er bullandi farsi” Jón Hjartarson er fastráðinn leikari hjá Leikfélagi Reykjavik- ur. Hann er leikstjóri hjá Verzl- unarskólanemum i leikritinu Leynimelur 13. ____iTÍMTNN_________________________ 15 VERÐUR HÓLASKÓLI TIL- BÚINN NÆSTA HAUST? Hætt við útboð verksins — Kunningjabragur á útboði verksins Var Duióað semja við verktakann, áður en málið kom fyrir borgarstjórn? — Það er mikil vinna og tals- vert nám, sem liggur að baki svona skólaleikhúsi. Nemendur minir hafa verið duglegir og stundað starf sitt af kostgæfni, en mér finnst ranglátt að skólinn skuli ekki standa meira með okk- ur en raun ber vitni. Sagði Jón, að sér fyndist það furðulegt, að nemendur, sem leggja á sig mikla vinnu og mikið erfiði innan félagslifsins i skólan- um, —þeir nytu þess á engan hátt á skjölum skólans við burtför. — T.d. hefur leikritið verið i æfingu fulla tvo mánuði og nú siðast á næturnar upp i Austur- bæjarbiói. Nemendur komast ekki hjá þvi, að þetta bitni beint eða óbeint á námi þeirra við skól- ann. Hafið þið breytt eitthvað út frá Iðnó-uppfærslunni? — Við tökum raunar annan pól i hæðina. t Iðnó reyndu þeir að heimfæra leikritið upp á nútim- ann, en við leggjum aftur á móti aðaláherzluna á tiðarandann, eins og hann var þá, sagði Jón að lokum. „Vildi ekki vera hans manngerð” Kristófer K. Madsen er leikinn af Úlfari Steindórssyni. Þetta er frumraun Úlfars á leiksviði, en hann hefur áður komið fram á skemmtikvöldum i skólanum. Hann hafði þetta að segja: — Þetta er mjög skemmtileg reynsla og þótt leikritið taki allan fritimann frá mér, þá er þeim tima ekki illa varið. Ég mun lita allt öðrum augum á leikhús eftir kynni min af undirbúningi svona verks. Ég hafði aldrei gert mér grein fyrir, hve óskapleg vinna liggur að baki einu leikriti. Kristófer K. Madsen er finn og „pempiulegur,” en samt skemmtileg persóna og mér likar bara vel við hann. En ekki vildi ég vera hans manngerð I raunveru- leikanum. 0 Loðnuaflinn tekið við loðnu til frystingar, þ.e. suðvestanlands. Blaðið hafði i gær samband við nokkra útgerðarmenn, og voru þeir mjög óhressir yfir þeirri mismunun, sem þeir telja eiga sér stað við móttöku loðnu til frystingar á Suðvesturhorninu, einkum i Faxaflóahöfnunum. einnig töldu þeir, að verk- smiðjurnar, sem aðeins taka við úrgangsloðnu frystihúsanna, greiddu fyrir þá loðnu verð, sem taka á gildi 21. febrúar og er 40 aurum lægra á hvertkiló en nú- gildandi verð. Kemur þetta niður á útgerðinni og sjómönnum, en ekki tókst að fá þetta staðfest i gær. Hins vegar sagði Jónas Jóns- son, formaður Sildar- og fiski- mjölsverksmiðjunnar hf i Reykjavik, i viðtali i fyrradag, að þeir myndu halda áfram að taka viö úrgangsloðnu frá frystihúsun- um, með sérstökum skilyrðum um áhættu, sem frystihúsin þyrftu að taka, i hverju svo sem sú áhætta er fólgin. Heildaraflinn frá byrjun þessarar vertiðar var um kl. 18 i gær orðinn um 213 þús. lestir og fer þvi að nálgast helming heildaraflans á allri vertiðinni i fyrra, en hann var um 440 þús. lestir. Þann 10. febrúar i fyrra var aflinn orðinn rúmar 87 þús. lestir, en viku siðar, þann 17., var heildaraflinn orðinn 112 þús. lest- ir. Frá þvi kl. 18 i fyrradag og til miðnættis tilkynntu eftirtalin skip um afla: Venus 170, Hamravik 120, Helga Guðmundsdóttir 300, Bára 100, Sigurbjörg KR 50, Haf- berg 100, Kap II 35, Jóhannes Gunnar 30, Skagaröst 55, Ólafur Tryggvason 15, Hiimir KE 130, Fifill 350, Sigurbergur GK 180, Tungufell 240, Bergur 90, Vonin 120, Guðrún 100, Arsæll 140, Kóp- ur 100, Haraldur 90. Frá miðnætti og fram til kl. 18 i gær tilkynntu svo þessi skip um afla: Sæunn 120, Halkion 280, Steinunn SF 75, Þorbjörn II 70, Albert 120, Sigurvon 65, Gullberg 105, Pétur Jónsson 350, Heimir 420, Kap II 45, Ásborg 70, Höfrungur II 60, Hafrún ÍS 60, Bjarnarey 50, Álftafell 250, Sæ- berg 250, Grimseyingur 100, Bald- ur 50, Oddgeir 140, Ljósfari 230, Hrönn 50, Ottó Wathne 80, Dag- fari 200, Ólafur Magnússon 160, Járngerður 160, Vonin 60, Ársæll Sigurðsson 90 Kap II 20, ísleifur LV 80, Venus 20, Steinunn RE 120. BYGGINGAFRAMKVÆMDIR og búseta fólks i Breiðholti III ættu ekki að koma borgaryfir- völdum á óvart, þótt svo virðist stundum. Þetta hverfi var á sin- um tima skipulagt sem heild, og þá jafnframt gert ráð fyrir opin- berum stofnunum, svo sem skól- um, þar á meðai skóla i norður- bluta hverfisins, sem ráðgert er, að kallaður verði Hólaskóli. Þótt nægur timi hafi verið til undirbúnings að byggingu þessa skóla, er borgarfulltrúum til- kynnt nú, að þar • sem hluti húsnæðisins þurfi að vera tilbúinn næsta haust, ef börnin i hverfinu eigi að fá skólavist næsta vetur, verði að hverfa frá þeirri viðteknu reglu að bjóða framkvæmdir við bygginguna út, og i stað þess gerð tillaga um að semja við ákveðinn bygginga- meistara um verkið. — Þótt ég viti þessi vinnubrögð harðlega, mun ég ekki leggjast gegn afgreiðslu málsins, og geri það með velferð barnanna i Hóla- hverfi i huga og það, að þau geti vonandi hafið eðlilega skólagöngu næsta haust. Þannig komst Kristján Benediktsson borgar- fulltrúi að orði, er flausturslega afgreiðslu I haldsmeirihlutans á málum þessum bar á góma I borg arstjórn Reykjavikur sl. fimmtu- dag. Ataldi Kristján harðlega, hvernig að þessum málum hefði verið staðið, og væri þetta þó eng- an veginn einsdæmi um furðuleg vinnubrögð meirihlutans i sambandi við samninga við verk- taka. Allt sl. ár hefði i borgar- stjórn og borgarráði verið rætt um þörfina á þessum skóla, en nú, á siðustu stundu, væri gripið til þess ráðs að leita samninga við ákveðinn verktaka, I stað þess að bjóða verkið út, sem sé eina eðli- lega leiðin. Þessi vinnubrögð kvað Kristján vera til skammar og sagði, að það liti sannarlega út fyrir, að það væri ákveðin meining meirihlut- ans að hliðra sér við að bjóða verk út, en gauka þeim i staðinn að ákveðnum aðilum, sem halda mætti að væru i náðinni hjá ihaldinu. — Það er ljóst, sagði Kristján, að ágreiningur er hjá ihaldinu um það, hvert starfssvið Innkaupastofnunar borgarinnar skuli vera, og hefur einn fulltrúi þess i borgarstjórn stungið upp á þvi, að Innkaupastofnunin verði lögð niður. Ef til vill er það óskadraumur fulltrúa hinnar frjálsu samkeppni að útiloka samkeppnina. Þá hefði ihaldið frjálsar hendur til að semja við þá aðila, sem eru i náðinni hjá þvi hverju sinni. Það er skylda borg- arstjóra að gera hreint fyrir sin- um dyrum i þessum efnum. — Ég harma þá siendurteknu viðleitni að sniðganga eðlilegan framgangsmáta i sambandi við útboð bygginga á vegum borgar- innar, sagði Kristján að lokum, en sifellt er verið að koma sér hjá þvi að bjóða út verk, en semja þess T stað við ákveðna aðila. Miklar umræður urðu um málið, og tóku fjölmargir borgarfulltrúar til máls. Alfreð Þorsteinsson, sem er fulltrúi Framsóknarflokksins i Fræðsluráði Reykjavikur, minnti á það, að hann hefði flutt tillögu i fræðsluráði fyrir tæpum fjórum mánuðum, þar sem lögð hefði verið sérstök áherzla á að hraða hönnun Hólaskóla i þvi skyni, að útboð gæti farið fram hið fyrsta, en greinilegt væri, að borgar- stjórnarmeirihlutinn hefði ekkert mark tekið á þessari viðvörun. Guðmundur G. Þórarinsson benti á það, er hann ræddi um skipulagsmál yfirleitt og seina- ganginn á þeim, hvernig vita- hringur skipulagsins hefði lokazt af þessum sökum. Skipulagið lægi alltof seint fyrir. t nýju hverfun- um, sem nú væri verið að úthluta lóðum i, hefði skipulagið ekki verið samþykkt fyrr en i ársbyrj- un, en engu að siður væru gatna- gerð, holræsagerð og malbikun þessara hverfa á fjárhagsáætlun þessa árs. Fyrirhyggjan væri slik, að svo væri ráðizt i að húrra framkvæmdum einhvern veginn af, þegar allt væri komið i eindaga. Sigurjón Pétursson lýsti sig sammála þvi, sem kom fram i ræðu Kristjáns Benediktssonar, og átaldi mjög seinlætið i þessum málum, svo og val verktaka. Þó hefði málið litið verr út i upphafi, þegar hugmyndin hefði verið sú að láta umræddan verktaka gera heildartilboð i verkið, þótt horfið O Áta verður, sagði Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur, er við ræddum við hann. Hjálmar kvaðst einnig telja fremur ólik- legt að það væru rækjuseiði, sem væru I maga loðnunnar, þótt ekk- ert gæti hann fullyrt um það, og eins- virtist sér trúlegt, að þessi umrædda loðna með átu i maga hefði veiðzt á einhverju tak- mörkuðu svæði. Getur dregið úr frystingu Reynist nú hins vegar veruleg brögð að átu i loðnunni, getur það dregið þann dilk á eftir sér, að frysting verði minni en ella. Fyrirvari mun þó enginn um þetta atriði i samningum við hina japönsku kaupendur. En jafn- varasamt er fyrir báða aðila, seljendur og kaupendur, að eiga yfir höfði sér, að skemmd komi fram i loðnunni, og getur þess vegna hugsazt, að hik komi á menn við frystinguna, enda hefur þess þegar gætt sums staðar. 0 Sambandslaust Daviðsson, fréttaritari Timans á Akureyri, i gær. Vinna liggur að mestu niðri vegna rafmagnsleys- isins og húsin kólna, þvi þótt flest- ir hafi oliukyndingu, gengur hún fyrir rafmagni. Unnið er dag og nótt að þvi að hreinsa götur. 1 gær var bleytu- hrið á Akureyri og fært orðið um aðalgöturnar. Nægileg mjólk er i bænum, þvi brotizt var á bilum með mjóik úr Svarfaðardal á mánudag og i fyrrinótt. — Það er búin að vera hér bleytustórhrið með hávaðaroki siðan á mánudag, sagði Jóhann Þorvaldsson fréttaritari Timans á Siglufirði. Allar rafleiðslur bil- uðu á mánudagskvöld frá Skeið- fossvirkjun. Við vorum þó ekki rafmagnslaus nema stutta stund, þvi vararafstöðin var tekin i notk- un. I nótt varð rafmagnslaust i Ölafsfirði, eins mun hafa verið rafmagnslaust i Fljótunum, þvi allar linur frá Skeiðfossvirkjun biluðu. Það er kominn geysimikill snjór hér. Kennsla féll niður i barnaskólanum seinni partinn i dag, enda er vonzkuveður. Allir vegir eru tepptir. Eins er um flugsamgöngur. En Drangur er væntanlegur hingað á morgun. Hann kemur tvisvar i viku frá Akureyri, m.a. með mjólk. Hann er eina samgöngutaugin, sem ekki bilar á svona tið. — Astandið hér er ekki veru- iega slæmt, sagði Þormóður Jónsson, fréttaritari okkar á hefði verið siðar að þvi, sem nú er. — Það er einhver kunningja- bragur á þessum viðskiptum, sagði Sigurjón. Borgarstjóri reyndi að halda uppi vörnum, en viðurkenndi óhóflegan seinagang á þessum, og ýmsum öðrum fram- kvæmdum. Nefndi hann til veikindi arkitekts sem aðalorsök þess, að hönnun Hólaskóla hefði dregizt úr hömlu. Húsavik, i simtali i gær. Það gerði norðaustanstórhrið á laugardag, en ekkert varð að i þvi veðri. A mánudagsmorgun slot- aði nokkuð, en herti aftur i gær- kvöldi og var mjög hvasst i nótt. Veður var hlýtt og mikil ising, svo sleit niður loftlinu i bænum. Af þeim sökum er sums staðar raf- magnslaust, þó hefur meiri hluti bæjarins rafmagn. Skólarnir eru báðir rafmagnslausir. Nú er aftur farið að frysta og mikil hrið. Hægt er að aka um aðalgötuna og eitthvað af hliðar- götum, en vel er fært gangandi fólki um allan bæinn. A mánudag átti að fljúga hing- að. En það stóðst á endum, að þegar búið var að ryðja flugvöll- inn, var farið að hriða aftur. Ekki er vitað svo gjörla, hvað er fært út frá Húsavik, enda svo blint, að menn fara ekkert. Ófært er milli Akureyrar og Húsavikur. Á mánudag var reynt að ryðja á Svalbarðsströndinni, en bar litinn árangur, þvi alltaf fennti á ný. Siðustu fréttir. I gærkvöldi hafði Guðjón Petersen hjá Almanna- vörnum samband við blaðið og skýrði frá þvi, að hann hefði náð sambandi við Isafjörð. Allt er i lagi i bænum og rafmagn komst á i Hnifsdal um þrjúleytið aðfara- nótt þriðjudags. 0 Íþróttir væntanlega láta i sér heyra, en hann syngur lag, sem er á hljómplötunni með landsliðs- hópnum. Lag Ómars heitir Valli varamaður, en lagið, sem islenzka liðið syngur, heitir Áfram island. Strax á eftir söngnum mun landsliðið 1964 leika gegn 2. dildar úrvalinu, og mun sá leikur taka 2x20 min. Siðan fá dómarar enn eitt tækifæri til að leggja hina ósigrandi iþróttafréttamenn að velli. iþróttafréttamenn munu flagga leynivopni, en i fyrri leikjum sinum hafa þeir alltaf komið með frábær leynivopn — fyrst Ómar Ragnarsson og siðan Helga Danielsson, en þessir snjöllu leikmenn leika að sjálfsögðu með gegn dómurunum. Leikurinn mun taka 2x10 min., ef úthald dóm- aranna endist svo lengi. Fjáröflunarleikkvöldinu mun svo ljúka með leik is- landsmeistara FH og HM-liðs- ins. Geir Hallsteinsson mun leika með landsliðinu gegn FH, en FH-liðið fær að leika með sina landsliðsmenn. Tekst landsliðinu að sigra FH?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.