Tíminn - 15.02.1974, Qupperneq 1
ÆHGIR"
Aætlunarstaðir:
Akranes - Blönduós
Flateyri - Gjögur
Hólmavík - Hvammstangi
Rif - Siglufjörður
Stykkishólmur
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
t?
‘Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga kl. 1 til 3
Sími 40-102
Frakkar hafna
lögsögu Alþjóða
dómstólsins
HHJ-Reykjavlk — FRAKKAR
hafa tilkynnt, að þeir telji sér ekki
lengur skylt að hlita lögsögu Al-
þjöðadómstólsins.
Tilkynning þessa efnis barst
lögfræðideild Sameinuðu þjóð-
anna hinn 10. janúar s.l. Þar
sagði, að af hálfu Frakka væri úr
gildi fallin viðurkenning þeirra á
Alþjóðadómstólnum frá 20. mai
1966.
Þau riki, sem viðurkenna lög-
sögu Alþjóðadómstólsins, eru nú
45 talsins.
Vík í Mýrdal:
Harðar deilur
um elliheimili
Gsal-Reykjavik — Allháværar
deilur eru I Vik i Mýrdal um elli-
heimili, sem þar á að rísa fyrir
héraðið. Forsaga málsins er sú,
að árið 1928 var stofnaður sjóður
til minningar um hjónin Halldór
Jónsson og Matthiidi óiafsdóttur
frá Suðurvik og dætra þeirra
hjóna, Sigurlaugar og Guðlaugar,
til byggingar elliheimilis i Vik i
Mýrdal. t sjóðsskrá var gert ráð
fyrir að rétt til vistar á heimilinu
ætti fóik, sem hefði lögheimili á
svæðinu frá Markarfljóti að Mýr-
dalssandi, en á þeim tima var
áðurnefnt svæði ein félagsleg
lieild, þar sem Markarfljót var
óbrúað.
Tlminn ræddi i gær við Vigfús
Magnússon héraðslækni i Vik, en
hann á sæti i stjórn sjóðsins.
— Við stjórnarmeðlimir erum
afskaplega óhressir yfir þvi,
hvernig staðið hefur verið að máli
þessu af hálfu sýslumannsins, en
hann er formaður sjóðsstjórnar,
sagði Vigfús.
— Sýslumaður lét hanna teikn-
ingar að elliheimili i algjöru
heimildarleysi að okkar áliti, án
vitundar okkar og samþykkis, —
og við hljótum að lita á það sem
nokkuð alvarlegan hlut.
Sagði Vigfús, að kostnaður við
gerð teikninganna hefði numið
hátt I hálfa milljón króna.
— Margoft höfum við beðið
hann aö halda fund um málið með
stjórn sjóðsins og fengum loks
loforð af hans hálfu um, að fundur
yrði haldinn fyrir 16. febrúar.
Samt bólar ekkert á fundarboði
og i dag er sá fjórtándi, sagði Vig-
fús.
Enn er þvi allt á huldu, hvenær
og hverjir eiga að standa að
byggingarframkvæmdum.
Sjóðurinn hefur ekki bolmagn til
aö byggja elliheimili, samkvæmt
teikningum Einars Oddssonar,
sýslumanns, en þar er áætlaður
heildarkostnaður 65 milljónir
króna. 1 sjóðnum eru aðeins 4
Framhald á bls. 6.
Eldurinn I Fóðurblöndunni var ekki mikill, en reykurinn var þvi meiri, og um tima sáu menn ekki handa
sinna skii i næsta nágrenni við húsið. (Timamynd Róbert)
ELDUR í FÓÐURBLÖNDUNNI
Nokkrar skemmdir urðu ó húsi, vélum og fóðri
Klp-Reykjavfk. Um kiukkan
fimm i gærdag kom upp eidur i
Fóðurblöndunni h.f. við Granda-
veg. Eldurinn kom upp i vél, sem
sekkjar iyfrarmjöl, og náði hann
að breiðast út frá henni og i þakið,
áður en slökkviiiðið kom á staðinn
og réð niðurlögum hans.
Verið var að gera við vélina, og
er talið, að neisti frá logsuðutækj-
um hafi komizt I eldfimt efni og
valdið brunanum.
Eldurinn fór upp með vélinni og
komst þaðan i þakið og stokka yf-
ir færiböndum, sem lágu i loftinu
Þegar Slökkviliðið kom á staðinn,
var nokkur eldur i þakinu og
mikill reykur inn i húsinu, sem
var hálffullt af sekkjuðu fóðri.
Vont var að komast að eldinum,
og varð að rjúfa þakið á nokkrum
kafla til að komast að honum.
Eftir það gekk fljótt og vel að
ráða niðurlögum eldsins, og var
þvi verki lokið rúmlega tveim
timum siðar.
Embætti íslenzkuprófess
orsins gleymt í 50 ór
Hallvard Mageröy, nýi prófessorinn.
Norðmenn ætluðu Sigurði Nordal það
órið 1923, en hann fór aldrei
til Oslóar og allt lenti í útideyfu
FYRIR skömmu var Hallvard
Mageröy skipaður prófessor i is-
lenzku við háskólann i Osló. Þetta
væri ekki svo mjög til frásagnar,
ef þetta embætti hefði ekki mátt
heita gieymt i fimmtiu ár, unz
gulnuð skjöl um það
uppgötvuðust fyrir nokkrum
misserum.
Við athugun á skjölum há-
skólans árið 1969 rákust menn á
að þetta prófessorsembætti hafði
verið stofnað árið 1923, og við
könnun sannaðist, að þeirri
ákvörðun hefði aldrei verið
breytt. En á fjárhagsáætlun há-
skólans var þess siðast getið árið
1931.
Þegar þetta embætti var
stofnaö, var þaö ætlun forráða-
manna háskólans að fá Sigurð
Nordal til þess að gegna þvi.
Hann sótti lika um það, og var
skipaður i það, en siðan snérist
honum hugur, enda hefði Is-
lendingum verið mjög nauðugt að
missa hann úr landi. Sigurður
Nordal gegndi embættinu þvi
aldrei, og þá áttu Norðmenn ekki
völ á öðrum manni, sem þá fýsti
að fá að háskólanum til islenzku-
kennslu. Var fjárveitingin til
þessa embættis siðan notuð á
ýmsan hátt fram til 1931. Þá reið
heimskreppan yfir , og stjórnvöld
gripu til hvers konar
sparnaðarráöstafana. Þá var
fjárveitingin til embættis is-
lenzkukennarans felld niður, en
ákvörðunin um slikt prófessors-
embætti þó ekki numin úr gildi. I
fyrirlestraskrám háskólans var
þess meira að segja getið allt
fram á árið 1946. Eftir það var
þess hvergi getið, unz það rann
upp fyrir mönnum nær aldar-
fjórðungi siðar, að það hafði end-
ur fyrir löngu verið ákveðið að
skipa islenzkuprófessor.
Hinn nýi prófessor, Hallvard
Mageröy, mun koma til tslands i
sumar á landnámshátiðina, og
mun þá færa Handritastofnun-
inni veglaga bókagjöf frá Norð-
mönnum.
Hvað
segja
Rauð-
sokkur?
Gsal-Reykjavik — A þeim
tima, þegar konur berjast af
miklum krafti fyrir réttind-
um til jafns við karlmenn, þá
stingur það dálitið i stúf, að i
hópi sem telur rúmlega 280
kvenmenn og aðeins 5 karl-
menn, skuli hópurinn velja
sér einn þessara fáu karl-
manna, — án þess að við sé-
um á nokkurn hátt að van-
meta hann, — sem fulltrúa i
nefnd hjá menntamálaráðu-
neytinu.
Hópurinn, sem hér um
ræðir, eru nemendur við
Hjúkrunarskóla Islands, og
maðurinn heitir Sigurður
Jónsson. Nemendur kusu
hann sem fulltrúa sinn i
nefnd, sem gera á tillögur
um breytingar á hjúkrunar-
námi.
Við ræddum litillega við
Sigurð i gær.
— Jú, það er rétt, að ég hef
verið valinn sem fulltrúi
hjúkrunarnema i þessa
nefnd. En hitt er annað mál,
að mér finnst of mikið gert
úr tilnefningu minni, þvi i
öllum veigameiri embættum
Framhald á bls. 6.