Tíminn - 15.02.1974, Page 10
10
iTÍMINN
Föstudagur 15. febrúar 1974.
VERÐUR EFNT TIL HUGMYNDA-
SAMKEPPNI UM SKIPULAG ALÞING-
ISSVÆÐISINS?
Tillaga Eysteins Jónssonar, forseta sameinaðs
Alþingis, í ,,þinghúsnefnd"
Til umræðu var á Alþingi i gær
þingsályktunartillaga Ragnars
Arnalds og Svövu Jakobsdóttur
um val á nýju byggingarsvæði
fyrir Alþingi, rikisstjórn og helztu
stjórnarstofnanir rikisins. Ragn-
Halldór Kristjánsson
Varamenn
taka sæti
t gær tók Halldór Kristjánsson,
bóndi á Kirkjubóli, sæti Stein-
grims Hermannssonar á Alþingi.
Halldór er fyrsti varamaður
þingmanna Framsóknarflokksins
I Vestfjarðakjördæmi. Steingrim-
ur er i opinberum erindagjörðum
erlendis.
Þá tók Hjördis Hjörleifsdóttir
sæti Hannibals Valdimarssonar á
Alþingi i gær.
ar Arnalds hafði framsögu fyrir
tillögunni, sem er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að kjósa 7
manna milliþinganefnd til að
gera um það tillögur i samráði við
skipulagsyfirvöld, hvar hag-
kvæmast sé að velja nýjum bygg-
ingum stað fyrir æðstu stjórn
landsins, þar sem ljóst er orðið,
að á núverandi miðbæjarsvæði i
Reykjavik verður ekki i framtið-
inni nægilegt landrými fyrir
helstu stjórnarstofnanir rikisins.
Á þvi svæði, sem valið yrði,
skal m.a. gera ráö fyrir bygging-
um fyrir Alþingi, rikisstjórn og
ráðuneyti, Seðlabanka tslands, og
aðrar rikisstofnanir, eftir þvi sem
þurfa þykir. Þó skal gert ráð fyr-
ir, að rikisstofnunum, sem ekki
eru háðar æðstu stjórn landsins i
daglegum störfum sinum, verði i
framtiðinni valinn staður i þétt-
býliskjörnum úti um land utan
höfuðborgarsvæðisins.
Forsætisráðherra kallar nefnd-
ina saman til fyrsta fundar, en
nefndin kýs sér sjálf formann.
Nefndin skal hafa lokið störfum,
áður en Alþingi kemur saman til
fundar i október 1974.”
Eysteinn Jónsson kvað þetta
athyglisverða tillögu, og væri
nauðsynlegt að taka þessi mál til
nýrrar skoðunar. Það væri sin
skoðun, að ekkert hæfilegt rúm
væri fyrir stjórnarráðshús i mið-
bænum. Hins vegar teldi hann
enga ástæðu til að hnýta Alþingi
og húsnæðismálum þess saman
við húsnæðismál stjórnarráðsins
og helztu stjórnarstofnana ann-
arra. Hann vildi skilja þarna milli
Alþingis og annarra stofnana
rikisins.
Eysteinn minnti á þingsálykt-
un, sem samþykkt var 1961, þar
sem forsetum Alþingis var falið,
MlilFll—
■
ásamt fulltrúum þingflokkanna,
að gera tillögur um framtiðar-
húsnæði Alþingis. Þótt þessi
nefnd hefði setið svo lengi að
störfum, hefði sáralitlu verið
komiö áleiðis i þessum málum.
Hefði þessi þinghúsnefnd verið i
eins konar sjálfheldu vegna
þeirra skipulagsáforma, sem i
gildi væru hjá Reykjavikurborg.
Enn væri i gildi sú ákvörðun
Reykjavikurborgar að byggja
ráðhús við norðurenda Tjarnar-
innar, og ennfremur stæði það
enn i aðalskipulagi borgarinnar,
að framlengja ætti Grettisgötu
vestur á bóginn og gera hana að
meiri háttar umferðaræð, sem
lægi um miðbæinn á milli Austur-
vallar og Alþingishússins. Nú
mætti ráða i það, að horfið yrði að
fullu frá þvi að reisa ráðhús I
Tjarnarendanum, og Eysteinn
kvaðst vona, að einnig yrði horfið
frá þeim áformum að láta meiri-
háttar umferðaræð skera á milli
Austurvallar og Alþingishússins.
Þinghúsnefndin hefði sótt um
það til borgaryfirvalda, að
Kirkjustræti yrði lokað fyrir bif-
reiðaumferð, og þannig gert frið-
sælla f kringum Alþingi. Þá
skýrði hann frá þvi, að hann hefði
á fundi þinghúsnefndar 25. f.m.
lagt fram tillögu um húsnæðismál
Alþingis, svohljóðandi:
„Þinghúsnefnd Alþingis efni, i
samráði við skipulagsyfirvöld
Reykjavikur og Arkitektafélag
íslands, til samkeppni um hús-
næði fyrir Alþingi á þinghús-
lóðunum á milli Kirkjustrætis og
Vonarstrætis annars vegar og
Tjarnargötu og Templarasunds
hins vegar, og nýtingu svæðisins
alls. Samkeppnin fari fram skv.
samkeppnisreglum A.l.”
Eysteinn sagði, að þessi tillaga
hefði verið lögð fram til kynning-
ar á þessum fundi nefndarinnar.
Skoðanir væru nokkuð skiptar um
framtiðarstefnuna i þessu máli,
og myndu nú þinghúsnefndar-
menn huga að þessari tillögu um
hrið, þar til hún yrði tekin til af-
greiðslu. Það væri sin skoðun, að
gera ætti svæðið i kringum Al-
þingi og Dómkirkjuna að friðsæl-
um reit og fögru almennings-
svæði i miðborginni. Alþingi ætti
nú öllhús og lóðir á milli Tjarnar-
götu, Lækjargötu, Vonarstrætis
og Kirkjustrætis, að Oddfellow-
húsinu undanskildu, og þyrfti Al-
þingi einnig að eignast það. Ey-
steinn taldi enga ástæðu fyrir Al-
þingi að flytjast af glæsilegasta
stað miðborgarinnar.
Eysteinn Jónsson — forseti sam-
einaðs Alþingis
Auk þeirra Ragnars og Ey-
steins tóku þátt i þessum umræð-
um Svava Jakobsdóttir og Asberg
Sigurðsson.
Iðnaðarmenn leigja út
Gsal-Reykjavík — i dagblöðum á
miövikudaginn s.l. birtist
auglýsing frá Landssambandi
iðnaðarmanna, þess efnis, að til
leigu væri verzlunarhúsnæði að
Hallveigarstig 1 (Iðnaðarhúsinu)
Frumvarp Steingríms Hermannssonar:
Heimilt verði að stöðva
byggingu fiskvinnslustöðva
Steingrimur Ilermannsson
mælti á miövikudag fyrir frum-
varpi sinu um leyfi til fjölgunar
vinnslustöðva sjávarafla við viss
skilyrði. Frumvarp þetta flutti
Stcingrímur á siðasta þingi, og
endurflytur það nú með nokkrum
breytingum. Frumvarpið varð
ekki útrætt á síöasta þingi, en
sjávarútvegsnefnd bárust
umsagnir fjögurra aðila, og voru
3 jákvæðar.
Máli sínu til stuðnings ræddi
Steingrimur það ástand, er nú
rlkti i rækjuveiðum og vinnslu á
Húnaflóasvæðinu. I máli hans
kom þetta m.a. fram:
„Strandamenn riðu á vaðið
með rækjuveiðar i Húnaflóa eftir
að þorskveiði þar brást. Má segja
aö rækjuvinnsla hafi hreint og
beint haldið byggð við á Hólma-
vik og Drangsnesi, og þá að sjálf-
sögöu á langtum stærra svæði þau
10 ár, sem siðan eru liöin Aðrir
hafa sótt i þessa rækjuvinnslu,
eins og vel er skiljanlegt. Annars
er nú komin vél á Skagaströnd, og
önnur á Hvammstanga. Samkv.
nýlegum upplýsingum er fram-
leiðslugeta þessara véla og
vinnslustöðva nú samstals 4215
tonn á ári. Hins vegar hafa fiski-
fræðingar ekki taliö öruggt að
leyfa veiði nema á 1700 tonnum á
vertiðinni 1972-1973, og sömuleiðis
sama magn á þeirri vertið, sem
nú stendur yfir. Þetta er aðeins
41.2% af framleiðslugetu þessara
vinnslustöðva. Nú hefur frétzt,
m.a. birzt i fjölmiðlum, að til
standi að setja upp jafnvel tvær
stórvirkar vinnsluvélar á Blöndu-
ósi. Mér sýnist að menn geti ver-
iþ samamála um, að þá muni
keyra um þverbak. Framleiðslu-
Steingrlmur Hermannsson.
getan verður þá orðin margfalt
meiri heldur en það rækjumagn,
sem fiskifræðingar telja, að veiöa
megi. Þvi lagði ég fram fyrir-
spurn til sjávarútvegsráðherra
um þetta mál fyrir nokkrum dög-
um. Þar komu fram ýmsar at-
hyglisverðar upplýsingar. Sjálfur
hæstvirtur ráðherra lýsti þvi, að
hann væri sammála þvi, að þarna
þyrfti að verða samræming á.
Hann lagði hins vegar áherzlu á,
að ekki væri til staðarlagaheimild
sem gerði sjávarútvegsráðuneyt-
inu kleift að takmarka vinnslu-
stöðvar, þótt það heföi samkvæmt
lögum um botnvörpuveiðar heim-
ild til að setja ýmis skilyrði við
þeim undanþágum, sem ráðu-
neytið veitir samkvæmt 10. gr.
þeirra laga til rækjuveiða. Ég
varð fyrir nokkrum vonbrigðum .
með þetta svar, þvi að ég taldi
mig hafa ástæðu til að ætla að
unnt væri að koma i veg fyrir
óeðlilega fjölgun vinnslustöðva
með þeim takmörkunum, sem
sjávarútvegsráðuneytið getur
sett fyrir leyfum til rækjuveiða.
Menn eru nokkuð óákveðnir um
það atriði, hvernig beri að tak-
marka byggingu vinnslustöðva,
hvort það beri að gera með leyf-
um eins og lagt er til eða gegnum
lánastofnanir. Nú er hins vegar
ljóst, að lánastofnanir hafa ekki
aö öllu leyti vald á þessu. Sumar
slikar stöðvar eru reistar án þess
að leita þurfti eftir fjármagni til
lánastofnana og er þá ljóst, að
ekki verður með þvi móti komið i
veg fyrir, að þær verði reistar.
Einnig kemur fram hjá þessum
aðilum, að þarna þurfi að verða
nokkur samræming á. Sömuleiðis
er ljóst, að byggðasjónarmiö þarf
að taka inn i þessa mynd, og það
verður að likindum ekki vel gert i
sambandi við stofnlánasjóöi, sem
starfa ekki samkvæmt þeim regl-
um, sem um það veröa að gilda.
Þvi er það meginbreyting, sem
ég hef gert á þvi frumvarpi, sem
ég flutti i fyrra, að ég geri nú ráð
fyrir þvi, að þriggja manna
nefnd, sem sjávarútvegsráðherra
skipar, afgreiði umrædd leyfi. Ég
gerði ráð fyrir þvi, að einn verði
skipaður samkvæmt tilnefningu
stjórnar Framkvæmdastofnunar
rikisins, annar samkvæmt til-
nefningu stjórnar Fiskveiðasjóðs
Islands sá þriðji án tilnefningar.
Mér virðist að með þessu móti fái
öll þau sjónarmið aðgang að slikri
leyfisveitingu, sem nauðsynleg
eru, þ.e.a.s. það fáist samræm-
ing milli þeirra fjármálastofn-
ana, sem veita fjármagn til
byggingar vinnslustöðva, þar
komi inn byggðasjónarmið, sem
fulltrúi Framkvæmdastofnunar
rikisins hlýtur að hafa mjög i
huga og þar komi inn sjónarmið
sjávarútvegsráðuneytis sem það
hefur lagt til grundvallar leyfis-
veitingum til veiði á viðkomandi
svæði.
Það er aldrei eftirsóknarvert að
þurfa að binda framtak manna
leyfum, en þvi verður ekki komizt
hjá, m.a. vegna þess, að sá afli,
sem fiskimiðin gefa okkur, er
takmarkaður. Við höfum
samþykkt hér allir háttvirtir
þingmenn, aö svo þurfi að verða
(im ýmsar þessar veiðar, eins og
t.d. rækju, humar, skelfisk annan
o.s.frv. Þessar veiðar eru tak-
markaöar og þvi jafnframt eðli-
legt I þessu tilfelli, að byggingar
vinnslustöðva séu samræmd
þeim leyfum, sem veitt eru til
veiða. Þessar veiðar eru ákaflega
mikilvægar vi_ðkomandi byggðum
eins og I þvi'dæmi, sem ég hef
hér sérstaklega nefnt. Má segja,
að heil byggðarlög byggist að
meira eða minna leyti á þessum
veiöum. Þvi er alls ekki þolandi,
að utanaðkomandi aðilar, e.t.v.
án nokkurra hagkvæmnistenglsa
við byggðarlögin sem slik fari þar
inn og ofbjóöi þeim náttúruauöæf-
um, se hér er um að ræða, og
vinni ómetanlegt tjón viðkomandi
byggöarlögum á þessu svæði. Allt
örðu máli gildir um það, ef
byggðarlög á sliku svæði, sem eru
i erfiðleikum, sæki um leyfi til að
reisa vinnslustöð. Þá koma
byggðasjónarmiðin þar inn i og
þá þarf að meta það, hvort rétt
mætt sé að skipta þeim afla, sem
til skipta er með tillit til slikra
þarfa og byggðasjónarmiða.
Blaðinu lek forvitni að vita,
hvernig málinu væri háttað og
leitaði upplýsinga hjá Þórleifi
Jónssyni, framkvæmdastjóra
Landssambandsins. Sagði hann,
að húsnæði þetta væri nokkuð
stórt, 1000 fm væru á jarðhæð, en
auk þess 500 fm i kjallara.
— Við erum svona að athuga
okkar gang, þreifa fyrir okkur og
sjá hver viðbrögð manna eru.
Húsnæðið er ekki bundið þvi, að
einn aðili noti það, allt eins kemur
til greina að skipta húsnæðinu, —
i tvennt, þrennt, eftir þvi sem
verkast vill.
Sagði Þórleifur, að þeir hefðu
lengi daðrað við þá hugmynd, að
nota kjallaraplássið sem
sýningaraðstöðu fyrir islenzkan
iðnað, — og sú hugmynd væri ekki
dauð. Hins vegar hefðu þeir ekki
útfært hana til hlitar, enn sem
komið væri.
— Við erum mjög opnir fyrir
öllum nýtingarhugmyndum á
þessu stigi málsins, sagði Þórleif-
ur.
Þegar blaðið hafði samband
við Þórleif á miðvikudaginn,
höfðu margir spurt um húsnæðið.
Framkvæmdastjórn hússins mun
taka endanlega ákvörðun um
hvernig húsnæðið verður notað.
Afftur akfært
milli Sauðár-
króks og Hofsós
GÓ.— Sauöárkróki. — Undan-
farna daga hfa allar samgöngur
um byggöarlögin austan Skaga-
fjarðar teppzt vegna óveöurs og
snjólaga, og f gærmorgun var
ekki heldur komiö á slmasam-
band milli Suöárkróks og
Hofsóss. Þá var veriö aö ryöja
veginn um Hegranes. Fram I
Lýtingsstaðahrepp og Blönduhllö
hefur aftur á móti veriö fært, þvl
aö þar hefur minna snjóaö.
Fyrri hluta dags i gær opnaðist
svo leiðin milli Hofsóss og Suðár-
króks, og var þegar byrjað að aka
fiski úr togaranum Skafta til
vinnslu I frystihúsinu á Hofsósi.
En sem kunnugt er hafa Sauðár-
krókur og Hofsós samtök um út-
gerð hinna sakgfirzku skipa, og er
nokkrum hluta aflans ekið til
vinnslu á Hofsósi, þar eð skipin
geta ekki lagzt þar að enn sem
komið er.