Tíminn - 15.02.1974, Side 16
16
TÍMINN
Föstudagur 15. febrúar 1974.
örlítill vottur af moskus frá jörðinni eða blómunum eða
haf inu.
Það var farið að nálgast háflæði, og brimið drundi
meðfram ströndinni. Inni á landi heyrðist ekkert nema
kvakið í smáfuglunum.
Nú dró hver Japaninn af öðrum sig í hlé með alls konar
afsökunum. Þegar vinur Eiríks hafði sýnt honum, hvar
hann átti hvílustað og moskítónet í dagstofunni, gekk
hann einnig til náða, og Eiríkur var einn eftir á verönd-
inni með nóttina yfir sér og hafið framundan.
Klukkan var orðin tíu, og utan f rá skipinu sáust aðeins
akkerisljósin og bjarmi frá kortaklefanum.
Þegar Eiríkur gekk of an af veröndinni og steig niður í
sandinn, var rödd eða hugsun innra með honum, sem
sagði honum, að það, sem hann væri að hætta sér út í,
væri ekkert fyrir hann. Þetfa fólk væri ekki eins og ann-
að fólk, og það væri honum sjálf um að kenna, ef það æst-
ist upp á móti honum á þann hátt, að það hygðist kaf færa
hann eða jafnvel drekkja honum.
En þrátt f yrir þetta kom honum ekki til hugar að hugsa
sig um. Hann hélt beina leið yfir sandinn, þangað til
hann kom að þorpinu, þar sem hann stóð grafkyrr
stundarkorn.
Þarna var ekki nokkra sál að sjá. Honum á hægri
hönd voru kofarnir, baðaðir mánaskininu, en þeir, sem
voru honum á vinstri hönd, voru hjúpaðir skuggum. (
görðunum stóðu hvít, stinn blómin, draugaleg og án þess
að bærast.
Kofi ungu stúlkunnar var enn skuggum hjúpaður.
Tunglskinið myndi ekki ná að skína á hann næstu klukku-
stundirnar.
Hann gekk þangað.
Hurðinni hafði verið hallað aftur, án þess að hún
lokaðist. Það var auðvelt að opna hana. Hann barði
hljóðlega á hana og lagði við eyrun. Ekkert hljóð. Hann
bankaði aftur, og nú heyrði hann lágt fótatak á mottunni
innan við. Hann opnaði hurðina það mikið, að hann gat
troðið sér í gegn, og á næsta andartaki hélt hann henni í
faðmi sér.
Hann reyndi að kyssa hana, en hún hafði hjúpað andlit
sitt og höf uð í sjal, sem var þrungið ilmi, sem hann hafði
aldrei áður f undið, furðulegur og dauf ur, en þó áfengur
og hrífandi eins og töframeðal....
Gegnurr dyrnar barst bjarmi af tunglskininu og hvarf
siðan af tur. Það var kominn tími til að f ara.
Hann snéri sér við og við hreyf inguna snerti hönd hans
hönd hennar. Hún kippti hendinni að sér. Hann reis upp
af dýnunni, þriefaði eftir jakkanum sínum og fór í hann.
í vasanum var eldspýtnastokkur, og hann kveikti á eld-
? ýtu.
Hann stóð með brennandi eldspýtuna í hendinni og
horfði framan í stúlkuna, þar sem hún hnipraði sig
saman á dýnunni, eins og hún byggist við því, að hann
myndi drepa hana. I ógnþrunginni skelfingu starði hann
á hana.
Svo brann eldspýtan út, og öskrandi tryllingslega hent-
ist hann á dyr. Hurðin þeyttist í allar áttir, þegar hann
henti sér á hana, og héngu tætlurnar einar eftir.
Hann æddi niður að sjónum, eins og hann ætlaði að
kasta sér út í, og þá var gripið í handlegginn á honum.
Það var japanski vinur hans, sem hafði heyrt ópin í
honum og leiddi hann nú aftur að símakofanum. Eiríkur
skalf og nötraði eins og dauðskelkað barn.
Máninn stóð lágt í vestri og skuggar mannanna
tveggja voru langir, þar semþeir gengu eftir sandinum.
Annar varð að styðja hinn. Frá þorpi kvennanna heyrðist
ekki hið minnsta hljóð, og raunar heldur ekki neins
staðar í námunda við þá. Aðeins hafið muldraði
hljóðlega.
önnur bók
Land teistunnar
I.
Heim!
„Girling forseti" hélt sem leið lá í gegnum Tsu-shima-
sundið, og þaðan framhjá eyjaparadís Indlandshafsins
við Osaka, þar sem háir verksmiðjuskorsteinarnir
gnæfðu við bláma himinsins.
Þarna kom Nielsen um borð, og frá Kaupmannahöfn
var skipinu fyrirskipað að að halda til eyjunnar Yaku til
þess að slæða á milli þeirrar eyju og eyjunnar Shima.
Þar næst lá leiðin milli Pescadoranna og eftir
Hainansundi aftur til Tonkin.
Þar héltskipið kyrru fyrir um jólin, og á nýársdag var
haldið til AAanilla.
Þegar Eiríkur kom aftur um borð eftir leyfið í landi,
hafði hann jaf nað sig það mikið, að engum datt annað í
hug en að hann hefði haft gaman af ferðinni. AAeira að
segja Jónas lét blekkjast, og það var ekki fyrr en nokkr-
um dögum síðar, að hann varð var við breytingu hjá vini
sínum. Eiríkur, sem alltaf hafði verið léttur í skapi, átti
nú til að verða þunglyndur án nokkurrar sýnilegrar
ástæðu. Hann gekk nánast vélrænt að starf i sínu, og væri
komið að honum övörum, mátti sjá í svip hans
örvæntinguna,sem maður sér hjá þeim, sem sífellt þjást
af tilhugsuninni um skuldir, eða þá er nýsloppinn úr lífs-
HVEiy
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
R
''Þarna fer þaðv'
Njósnaaugað okkar
hefur leysjgeisla, J
er það ekki?
fr Lucky verð
,ur þarna
L þangað til við,
hreyfum okkurj
Þettaer sigildN
Daviös-og-Goliats-saga'
Við komumst i^f
skjól, en hvað svo?
Þetta er allt þessum ókunna ao kennfM
___T T_______1-V 1
Hvert fór hann. Hann var hérna
ei, Karl,-
eru vampyr
urnar
liMiIiili
Föstudagur
15. febrúar
7.00 Morgunútvarp. Veður-
' fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10
Morgunleikfimi kl. 7.20.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl), 9.00og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Vilborg Dagbjarts-
dóttir les framhald sögunn-
ar „Börn eru besta fólk”
eftir Stefán Jónsson (12).
Morgunleikfimikl. 9.45. Til-
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.05 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Siðdegissagan: „Dyr
standa opnar” eftir Jökul
Jakobsson. Höfundur les
sögulok (13).
15.00 Miðdegistónleikar.
Paradisarþátturinn úr óra-
toriunni „Friði á jörðu” eft-
ir Björgvin Guðmundsson
við ljóðaflokk Guðmundar
Guðmundssonar. Svala
Nielsen, Sigurveig Hjalte-
sted, Hákon Oddgeirsson og
söngsveitin Filharmónia
syngja með Sinfóniuhljóm-
sveit íslands. Stjórnandi:
Garðar Cortes.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorniö..
17.10 (Itvarpssaga barnanna:
„Jói I ævintýraleit” eftir
Kristján Jónsson. Höfundur
byrjar lesturinn.
17.30 Framburðarkennsla i
dönsku.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veður-
fregnir. 18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá. Fréttaspegill.
19.15 Þingsjá.Ævar Kjartans-
son sér um þáttinn.
19.30 Varnarmálin. Tvö stutt
erindi flytja: Ólafur Ragnar
Grimsson prófessor og Þor-
steinn Eggertsson stud jur.
20.00 Sinfóniutónleikar. Frá
tónleikum Sinfóniuhljóm-
sveitarinnar i Frankfurt i
októbers.l., a. Sinfónia iEs-
dúr (K 543) eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. b.
„Dafnis og Klói”, sinfónisk
atriði Ur samnefndum ball-
ett eftir Maurice Ravel.
20.55 Hálf öld á Hrafnkelsdal.
Kristján Ingólfsson ræðir
við hjónin Aðalstein og Ingi-
björgu á Vaðbrekku.
21.30 Útvarpssagan: „Tristan
og ísól” cftir Joseph Bédier.
Einar Öl. Sveinsson islensk-
aði. Kristin Anna Þórarins-
dóttir les (5).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusáima (5).
22.25 Kvöldsgan: „Skáld
pislarvættisins” eftir Sverri
Kristjánsson. Höfundur les
(4).
22.45 Draumvisur. Sveinn
Arnason og Sveinn Magnús-
son kynna lög úr ýmsum
áttum.
23.45 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
|
iiimi
Föstudagur
15. febrúar
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Að Heiðargarði.
Bandariskur kúrekamynda-
flokkur. 3. þáttur. Skuggi
fortiðar. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
21.25 Landshorn. Frétta-
skýringaþáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður
Guðjón Einarsson.
22.05 Gestur kvöidsins.
Bandariski þjóðlagasöngv-
arinn Pete Seeger syngur
bresk og bandarisk lög og
leikur sjálfur undir á gitar
og banjó. Þýðandi Heba
Júllusdóttir.
22.35 Dagskráriok.