Tíminn - 15.02.1974, Síða 19
Föstudagur 15. febrúar 19^74.
TÍMINN
19
Umsjón og ábyrgð: Samband ungra framsóknarmanna.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn fyrir hönd stjórnar SUF: Ölafur Ragnar
Grimsson, Pétur Einarsson.
Hernám Tímans
Það hefur valdið Framsóknarmönnum viða um
land sárum vonbrigðum siðustu vikur og mánuði,
hvernig aðalmálgagn Framsóknarflokksins —
Timinn — hefur þotið áfram með vaxandi hraða
eftir þeirri óheillabraut sem núverandi ráða-
menn blaðsins mörkuðu sér fyrir rúmu ári.
í grein, sem birtist á SUF-siðunni, sem er að
öllu leyti á vegum SUF-stjórnarinnar, i nóvem-
bermánuði — eftir að blaðstjórn Timans hafði
með fjórum atkvæðum gegn þremur neitað að
birta hana i Timanum sjálfum — var það rakið
með 22 skýrum dæmum, hvernig þessi óheillaferð
hafði þróazt fram til þess tima. Sýndi sú grein
glögglega, með hverjum hætti málgagninu var
beitt i innanflokksátökunum, og þá ritskoðunar-
stefnu, sem virðist ráðamönnum blaðsins ekki sið
ur töm en kollegum þeirra i Kreml.
Ekki er ætlunin hér að rekja öll þau mörgu
dæmi, sem siðan hafa bætzt við um mistnotkun á
'Timanum. Það verður vafalaust gert siðar.
Hins vegar verður ekki lengur hjá því komizt
að benda á þann þátt þessara mala, sem snýr að
þvi baráttumáli, sem nú ber hæst i isienzkum
stjórnmálum — þ.e. framkvæmdinni á skýlausu
fyrirheiti málefnasamnings stjórnarflokkanna
um að herinn fari úr landinu fyrir lok kjörtima-
bilsins.
Fyrsta alvarlega hneykslið varðandi skrif Tim-
ans um herstöðvarmálið var forystugrein sú, sem
Tómas Karlsson ritaði i blaðið 1. desember
siðastliðinn. Sú forystugrein vakti réttilega svo
mikla almenna reiði meðal flokksmanna, að bú-
ast hefði mátt við einhverjum ráðstöfunum af
hálfu flokksforystunnar, bæði til þess að leiðrétta
þá forystugrein, og eins til að koma i veg fyrir, að
slik afglöp yrðu endurtekin.Ekkertslikt var gert.
Þvert á móti hefur Tíminn siðan sifellt fjar-
lægzt meir og meir það eðlilega hlutverk sitt að
vera skeleggt málgagn flokks og rikisstjórnar,
sem hefur það sem eitt af meginstefnuatriðum
sinum að koma hernum úr landi.
Þessi þróun er að skálfsögðu sök þeirra manna,
sem blaðinu ráða. Það þyrfti þvi ef til vill fáa að
undra, að einn af ritstjórum blaðsins, Tómas
Karlsson, skyldi vera i fararbroddi þeirra 32
„170-menninga”, sem skoruðu opinberlega — og
það m.a. með fimm dálka frétt á forsiðu Timans
— á ráðherra flokksins að svikja þá stefnu, sem
flokksþing hafa markað i herstöðvarmálinu.
Hið alvarlegasta i þvi máli er.þósú staðreynd,
að þessi árás ritstjórans á stefnu flokksins hefur
ekki haft meiri áhrif á forystumenn flokksins en
svo, að hann er áfram látinn skrifa forystugrein-
ar um herstöðvarmálið!
Niðurlæging Timans i herstöðvarmálinu er, af
þessum sökum og öðrum, orðin slik, að alls ekki
verður lengur við unað.
Það verður haft til marks um raunverulegan
hug forystumanna Framsóknarflokksins, hvort
sú niðurlæging verður látin halda áfram án nokk-
urra aðgerðaaf þeirra hálfu — eins og reyndin
hefur verið hingað til.
Flokksmenn munu fylgjast vel með þvi, hvort
róttækar aðgerðir, eða þegjandi samþykki, verð-
ur inntakið i svari þeirra, þvi það mun sýna,
hvort hernám Tímans er þeim raunverulega á
móti skapi eða ekki.
Verði svar þeirra þegjandi samþykki, hljóta
herstöðvaandstæðingar innan Framsóknar-
flokksins að draga af þvi rökréttar ályktanir, og
gera nauðsynlegar ráðstafanir i samræmi við þá
niðurstöðu. — E.J.
LÝST YFIR STUÐN-
INGI VIÐ TILLÖGUR
SUF í HERMÁLINU
Ljóst er, að tillögur þær um
lausn herstöðvarmálsis, sem
framkvæmdastjórn SUF
samþykkti 29. jan. siðastlið-
inn, hafa hlotið góðan hijóm-
grunn meðal herstöðva-
andstæðinga í landinu. Þykja
þær eðiileg framkvæmd á fyrir-
heiti málefnasamnings . . :
stjórnarflokkanna um brottför
hersins á kjörtimabilinu.
Hér á eftir fara tvær
samþykktir, sem gerðar hafa
veriðsiðustu daga um hermálið,
þar sem þessi afstaða tillagna
SUF kemur skýrt fram.
Á fulltrúaráðsfundi ÆSl 9.
febrúar 1974 var samþykkt
yfirlýsing ,,i tilefni þeirra
tillagna og ályktána, sem fram
hafa komið á siðustu dögum
varðandi lausn herstöðvarmáls-
ins”. Þar segir m.a.:
1. Fundurinn visar algerlega
á bug hugmyndum Einars
Ágústssonar utanrikisráðherra,
sem hann kynni að hluta til I
sjónvarpi 25. janúar s.l. Þar
virðist vera um að ræða tilraun
til að slá ryki i augu
almennings, m.a. með tali um
svokallaða hreyfanlega flug-
sveit, þar sem i raun er aðeins
um að ræða, að hér yrði skipt
um flugsveit með reglubundnu
millibili. Tillögur Einars
Ágústssonar fela þvi ekki i sér
brottför hersins og afnám her-
stöðvarinnar, heldur fyrst og
fremst endurskipulagningu
bandarisku NATO-herstöðvar-
innar á Islandi.
2. Fundurinn hafnar þeim
undanslætti frá ákvæði mál-
efnasamningsins um brottför
hersins á kjörtimabilinu, sem
felst i ályktun miðstjórnar
Alþýðubandalagsins frá 28.
janúar siðastliðinn. Sérstaklega
lýsir fundurinn furðu sinni á þvi,
að miðstjórnin skuli fallast á
frestun á brottför hluta herliðs-
ins fram yfir lok kjörtimab
3. Fundurinn bendir á tiilögur
framkvæmdastjórnar SUF sem
rökrétta lausn á herstöövarmál-
inu innan ramma málefna-
samningsins. Þar er gert ráð
fyrir algerri brottför hersins
fyrir 1. marz 1975, og að her-
stöðvarsamningurinn frá 1951
falli úr gildi. Þá er ekki gert ráð
fyrir neinni sérstakri aðstöðu
fyrir Bandarikjaher né NATO á
islandi.
I framhaldi af þessu krefst
fulltrúaráðsfundurinn tafar-
lausrar uppsagnar herstöðvar-
samningsins og itrekar stefnu
Æskulýðssambands Islands:
ísland úr NATO, herinn burt.”
Þá hefur SÍKN —Samtök is-
lenzkra kennaranema — sent
frá sér yfirlýsingu.þar sem
segir, að á fundi StKN 4. febrúar
s.l. hafi verið gerð samþykkt,
þar sem lýst sé yfir samþykki
við tillögur SUF sem skref i
rétta átt.
Stjórn FUF á Akureyri.
Aðalfundur FUF á Akureyri:
Næsti áratugur verði
tímabil félagshyggju
Aðalfundur FUF á Akureyri var nýlega haldinn.
Formaður félagsins, Ingvar Baldursson, gerði
grein fyrir starfinu á siðasta starfsári, en það var
með fjörugra móti, og þess að vænta að enn aukist
starfsemin á nýbyrjuðu ári, m.a. vegna bæjar-
stjórnarkosninganna. Var mikill hugur i fundar-
mönnum að gera hlut flokksins á Akureyri sem
mestan í þeim kosningum.
A fundinum voru gerðar eftir-
farandi samþykktir með sam-
hljóða atkvæðum:
„Aðalfundur FUF á Akureyri
haldinn 28. des. 1973 skorar á allt
félagshyggjufólk að standa i hvi-
vetna vörð um vinstri stjórn þá,
er nú situr að völdum og tryggja
með þvi að málefnasamningurinn
nái fram að ganga. Fundurinn
skorar á félagshyggjufólkið að
vinna að þvi, að næsti áratugur
verði timabil félagshyggju I land-
inu.
Aðalfundur FUF á Akureyri
1973 telur það skyldu
framkvæmdastjórnar flokksins
að beita sér nú þegar fyrir
viðræðum innan flokksins, sem
miði að þvi að setja niður þær
deilur, sem að undanförnu hafa
verið milli flokksmanna.
Aðalfundur FUF á Akureyri
1973 vitir harðlega þá ákvörðun
Bjarna Guðnasonar að hætta
stuðningi við stjórn hinna vinn-
andi stétta og ganga i lið með
ihaldsöflunum á Alþingi og gerast
þar með niðhöggur vinstri stjórn-
ar á íslandi.”
Stjórn FUF er nú þannig skip-
uð: Ingvar Baldursson, formað-
ur, Hákon Hákonarson varafor-
maður, Ingólfur Sverrisson ritari,
Hanna Lisbet Jónmundsdóttir,
Jóhann Karl Sigurðsson spjald-
skrárritari, og meðstjórnendur
þau Kolbrún Guðveigsdóttir og
Kolbeinn Sigurbjörnsson.
Ráðinn fram
kvæmdastjóri
Á stjórnarfundi þriðjudaginn
5.febrúar sl. samþykkti stjórn
FUF að ráða Björn Björnsson
framkvæmdastjóra félagsins.
Kvöldsimi: 86196.
A næstunni er fyrirhuguð
mikil starfsemi hjá félaginu, og
er ráðning framkvæmdastjóra
gerð til þess að auðvelda það
starf.
Þetta neituðu
ritstjórarnir
að birta
Stjórn SUF i Reykjavik, sú
sem kjörin var I félagsheimili
Fóstbræðra 24. október siðast-
liðinn, hefur óskað eftir þvi að fá
tvær neðangreindar tilkynning-
ar birtar i Timanum. Henni var
neitað um slika birtingu, þótt sú
FUF-stjórn, sem kjörin var i
Klúbbnum sama dag, geti birt
yfirlýsingar I Timanum að vild.
Stjórnin óskaði þá eftir þvi við
SUF-siðuna, að þessar til-
kynningar yrðu birtar, og þótti
það sjálfsagt, þar sem rann-
sóknarnefnd SUF sem fjallar
um kærurnar vegna aðalfund-
arins i Klúbbnum, hefur ekki
enn lokið störfum, og
niðurstöður i þvi máli liggja
ekki fyrir. Á meðan svo er, ætti
Timinn að sjálfsögðú ekki að
birta tilkynningar frá öðrum
aðilanum, en ekki hinum. Slfkri
ritskoðunarstefnu hlýtur SUF
að hafna.
Vanþóknun á
tiltæki 170
menninganna
Stjórn FUF i Reykjavík hefur
á fundi sinum 5. febrúar gert
eftirfarandi samþykkt:
„Stjórnin FUF i Reykjavík
lýsir yfir fullum stuðningi
sinu við þá stefnu Framsóknar
flokksins og rikisstjórnarinnar
að koma hernum úr landi.
Jafnframt lýsir stjórnin
vanþóknun sinni á þeim, er
staðið hafa fyrir undirskriftum
um áframhaldandi hersetið
land. Sérilagi litum við alvar-
legum augum á það tiltæki 170
framsóknarmanna að ganga i
berhögg við stefnu
Framsóknarflokksins og rikis-
stjórnarinnar i þessu mesta
sjálfstæðismáli islenzku þjóðar
innar. Við bendum á, að það er
vegið að áframhaldandi sam-
starfi vinstri flokkanna Islandi.
Er að þvi skömm mikil, að
samvinnuhreyfingin, sem áður
var eitt mesta sjálfstæðisafl
þjóðarinnar skuli nú sitja uppi
með forystumenn, sem leggja
nafn sitt við slik bænarskjöl.
Að lokum skorum við á
framsóknarmenn að standa
saman i stuðningi sinum viö
flokkinn og rikisstjórnina
þannig, að þjóðhátiðarárið verði
ár, sem niðjar okkar geti minnzt
með nokkru stolti, en ekki
skömm.”