Tíminn - 15.02.1974, Qupperneq 20
20
TÍMINN
Föstudagur 15. febrúar 1974
DOCHERTY HEFUR
ÁHUGA Á HAY...
DAVID HAY..hinn eftirsótti
skozki miövallarspilari.
JÖRGEN PETERSEN ...hinn snjalli vinstrihandarskotmaöur
Helsingör, er nú markhæstur i dönsku 1. deildinni.
Coventry
kaupir...
COVENTRY hefur nú fest
kaup á bakveröinum PETER
HINDLEY frá Nottingham
Forest. Liðið greiddi 35 þús.
pund fyrir þennan kunna
bakvörð, sem er 29 ára gamall
og hefur leikið yfir 420 leiki
fyrir Forest.
Jörgen Petersen
er markhæstur
— hann hefur skorað 102 mörk í dönsku 1. deildarkeppninni í
handknattleik. Arhus KFUM hefur örugga forustu
Árhus KFUM... heidur sínu
striki í dönsku 1. deildar-
keppninni í handknattleik.
Liöiö vann Stadion 18:10
um síðustu helgi, en þá
fóru eftirtaldir leikir fram
í dönsku deildinni:
HG—Fred.KFUM 18:17
Stadion—Arh. KFUM 10:18
Virum— Eftersl. 19:22
Stjernen—Helsingör 17:19
Staðan er nú þessi i dönsku
deildinni:
ArhusKFUM
Helsingör
Fred. KFUM
Stadion
HG
Efterslægren
Stjernen
AGF
Skovbakken
Virum
13 250:194 22
14 261:227 21
14 274:245 18
13 226:219 15
14 239:212 14
14 252:248 13
13 209:214 11
13 198:226 10
12 175:197 8
14 215:317 2
Jörgcn Petersen, Helsingör er
nú markhæsti ieikmaðurinn i 1.
deildarkeppninni hann hcfur
skoraö 102 mörk. önnur stór-
skytta. Flemmipg Ilansen úr
Frcd. KFUM er með 100 mörk.
Markakóngskcppnin verður á
milii þessara tveggja snjöllu leik-
manna.
TOMMY I)OCHERTY...fram-
kvæmdastjóri Manchester
United, er ekki búinn að gefast
upp. Docherty, sem erákveð-
inn i, að reyna að halda hinu
fræga liði uppi i 1. deild, hefur
mikinn áhuga að kaupa
skozka landsliðs m a nninn
DAVID HAY frá Ceitic.
Docherty hefur haft augastað
á Hay lengi, en eins og fram
hefur komið hér reyndu þeir
Docherty og Bill Nichoison,
framkvæmdastjóri
Tottenham, að kaupa Hay,
fyrr á keppnistimabilinu.
Celtic hcfur ekki viljaö selja
Ilay, nema að fá góðan
miðvallarspilara I staðinn.
Docherty hcfur mikinn áhuga
á að ná i Hay, áður en kaup-
bannið skellur á, en það má
ekki verzla með leikmenn i
Englandi eftir 7. marz. United
er nú tilbúið að láta irska
landsliðsmanninn TIÍEVOR
ANDERSON i staðinn fyrir
Hay.
Arsenal vantar
nú markaskorara
BERTIE MEE.... fram-
kvæmdastjóri Arsenal hef-
ur nú mikinn áhuga á aö
kaupa markaskorarann
DUNCAN McKENZI E frá
Nottingham Forest. Mee
er ekki ánægður meö
árangur Arsenal-liðsins,
sem hefur ekki gengið vel
á keppnistímabilinu. Þessu
fræga Lundúnaliði hefur
ekki gengiö eins illa í mörg
ár. Þaö er nú í 13. sæti f 1.
deildarkeppninni, en var í
öðru sæti, þegar keppnis-
tímabilinu lauk í fyrra.
Astæðan fyrir lélegum árangri
Arsenal á keppnistimabilinu er
tvimælalaust sú, að framlinu-
menn liðsins hafa brugðizt —
þeim gengur illa að skora mörk.
Bertie Mee, vill kaupa Duncan McKenzie
Markaskorarar eins og John
Radford og Ray Kennedy, hafa
vart komizt á blað og sést það
bezt á siðustu leikjum Arsenai,
hingað til hefur miðvallarspilar-
inn Alan Ball, skorað nær öll
mörk liðsins.
Bertie Mee hefur haft augastað
á McKenzie um nokkurn tima, og
nú er hann tilbúinn að greiða 200
þús. pund fyrir þennan snjalla
leikmann Forest, en hann er pott-
urinn og pannan i sóknarleik For-
est-liðsins.
BYRJAR BANKS
AFTUR?
BANDARtSKA knattspyrnu-
iiðið Seattle, hefur nú boðið
hinum heimsfræga markverði
GORDON BANKS, að gerast
markvörður hjá iiðinu i
sumar, þegar bandariska
knattspyrnan hefst i april og
stendur yfir i fjóra mánuði.
Banks, sem hætti að leika
knattspyrnu á siðasta
keppnistimabili, eftir að hann
hafði lent i bilslysi, kynnir sér
nú boð Seattle.