Tíminn - 15.02.1974, Blaðsíða 24
'1 ' ..........................>
Föstudagur 15. fcbrúar 1974.
-
[mo\
fyrirgóéan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Kvöldvaka leikara
NÆSTKOMANDI mánudags-
kvöld, 18. febrúar kl. 20, halda
lcikarar Þjöðleikhússins kvöld-
vöku f Þjóöleikhúsinu, til ágóða
fyrir félagssjóð sinn. Skemmti-
dagskráin veröur afar fjölbreytt.
stuttir grfnþættir, söngur, leik-
þættir og listdanssýning.
Um 40 listamenn taka þátt i
kvöldvökunni, þ.á.m. flestir
þekktustu leikarar Þjóðleikhúss-
ins. Ennfremur kemur fram Is-
lenzki listdanslfokkurinn, ásamt
Júlfu Claire ballettmeistara.
Kynnir verður Rúrik Haraldsson
leikari, og sést hann I hlutverki
sfnu á meðfylgjandi mynd.
Nokkur ár eru nú liðin siðan slik
skemmtun var haldin en þessar
kvöldvökur leikara nutu mikilla
vinsælda. Vegna mikilla anna
leikaranna verður kvöldvakan
sennilega ekki endurtekin.
Aðgöngumiðasala hefst i Þjóð-
leikhúsinu i dag, föstudaginn
15/2.
ASÍ—VSÍ:
Samkomulag um
flokkaskipan
-hs-Rvik. — Sáttafundur ASt og
VSl hófst I gær kl. 2 e.h. en síðasti
fundur stóð i tæpa 11 tima.
ólafur Hannibalsson, skrif-
Snjóflóð
r
I
Önundar
SJ-Reykjavik. Snjóflóð hafa fallið
viða i önundarfirði. Eitt þeirra
féll skammt frá barnaskólanum á
Flateyri og yfir kirkjugarðinn.
Rafmagnslaust var i gærkvöldi i
innri hluta önundarfjarðar af
völdum snjóflóbanna.
stofustjóri ASt, sagði i gær, um
það bil, sem fundur var að
hefjast, að á fundinum f fyrridag
og -nótt hefði nokkurn veginn
náðst samkomulag um flokka-
skipan hins almenna verkafótks,
en hann væri ekki búinn að sjá, i
hvaða formi hún væri.
Þessi nýja flokkaskipan mun
aðallega vera fólgin I þvi, að
felldir verða niður nokkrir
flokkar, svipað og gert var i
samningum B.S.R.B. og rikisins,
með það fyrir augum, að hinir
lægstlaunuðu fái mesta
hækkunina.
Siðdegis i gær fékk blaðið þær
upplýsingar á skrifstofu sátta-
semjara á Hótel Loftleiðum, að
ennþá væri verið að ræða grund-
vallaratriði, en samkomulag væri
komið á i stórum dráttum um
flokkaskipan, og næst yrði
prósentuhækkunin liklega tekin
fyrir Frekar var búizt við löng-
um fundi, svo sem verið hefur
undanfarna daga.
LOÐNA TIL SIGLUFJARÐAR
— heildaraflinn orðinn 235 þúsund lestir
—hs—Reykjavik. Aðalveiðisvæði
loðnuskipanna i fyrrinótt var
norðvestur af Vestmannaeyjum.
Nokkrir bátar munu hafa verið
austur i Meðaiiandsbugt, og enn
aðrir voru komnir vestur fyrir
Reykjanes og á vikurnar fyrir
sunnan það.
Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur sagði i gær, að ekki
hefði orðið vart við átu i loðnunni
á Vestmannaeyjasvæðinu, svo
hann vissi til. Hann sagði, að búið
væri að kanna mjög itarlega um
80 milna svæði, frá 15 milum
austan við Eyjar og vestur að
Reykjanesi, án þess að nokkurs
staðar hefði orðið vart við átu.
Sagðist hann halda, að átuflekk-
ina hefði jafnvel rekið með
straumum frá ströndinni.
Ekki sagðist Hjálmar hafa
heyrt um það, að frekari teljandi
vandræði hefðu orði vegna sildar-
innar fyrir Suðurlandi, en eins og
kunnugt er varð nokkuð vart við
sild I förmum einstakra loðnu-
skipa ekki alls fyrir löngu, og kom
jafnvel til tals að loka einhverjum
svæðum, ef frekari brögð yrðu að
þessu.
Fjögur skip voru i gær á leið til
Siglufjarðar með tæp 1000 tonn,
en flest þeirra fóru vestur fyrir
land og þannig norður. Sigurður
mun þó hafa farið eystri leiðina
með 700 tonn, en ennþá hefur eng-
in loðna borizt til Raufarhafnar.
Um kl. 18 i gær var heildarafl-
inn orðinn rúmar 235 þús. lestir,
og frá miðnætti var aflinn orðinn
9.270 lestir.
Frá þvi kl. 18 i gær til miðnættis
tilkynntu þessi skip um afla:
Elliði 100, Náttfari 230, Tungufell
230, Alsey 100, Hilmir 270, Sigur-
björg 70, Hrönn VE 150, Húnaröst
60, Asberg 400, Vörður 160, Fylkir
50, Venus 50, Arsæll Sigurðsson
160, Gullberg 120, Albert 150, Faxi
180, Höfrungur II 150, Ásborg 140,
Lundi 130.
Frá miðnætti og fram til kl. 18 i
gær tilkynntu 58 skip um afla,
samtals 9.270 tonn: Gunnar Jóns-
son 90, Arnar 210, Jón Helgason
90, Hrafn Sveinbjarnarson 70,
Kópur 100, Haraldur 150, Þor-
björn II 70, Sandafell 130, Huginn
II 90, Járngerður 50, Hrafn Svein-
bjarnarson III 100, Ásver 100,
Isleifur IV 90, Bergur 100,
Hamravik 100, Heimaey 100,
Skagaröst 80, Hafrún 190, Jón
Garðar 160, Vonin 180, Tálknfirð-
ingur 220, Þórkatla II 180, Haf-
steinn 230, Hafberg 90, Arney 30,
Öli I Tóftum 80, Sigurður 700,
Kristbjörg 230, Elias Steinsson 70,
Grimseyingur 200, Harpa 110,
Kap II 60 Harpa RE 330, Gissur
50 Ólafur Tryggvason 50,
Keflvikingur 200, Jóhannes Gunn-
ar 110, Surtsey 40, Oddgeir 170,
Glettingur 180, Steinunn 25,
Halkión 220, Baldur 190, Grind-
vlkingur 100, Helga RE 230, ísleif
ur 240, Bylgjan 180, Rauðsey 110,
Venus 150, Ölafur Sigurðsson 130,
NTB-Solsjenitsín dvelst enn i
Þýzkalandi og hefur verið
gefið út útlendingavegabréf
honum til handa. Hann sagði
við fréttamenn, að sér liði vel,
og nú biði hann þess eins, að
kona hans og börn fengju að
fara úr landi. Helztu áhyggjur
sinar kvað hann vera þær, að
eiginkona sin fengi ekki að
taka með sér handrit og
Asgeir 340, Skógey 70, Héðinn 420,
Óskar Magnússon 420, Árni
Magnússon 130, Guðrún 170,
Vörður 215 og Helga Guðmunds-
dóttir 350.
Reyndist
fótbrotinn
MIÐVIKUDAGINN 6. febrúar,
s.l. varð maður fyrir bíl á bila-
stæðinu við áfengisútsöluna við
Laugarásveg. Maðurinn hrasaði
þarna og varð fyrir bil sem I
sama mund var ekið um stæðið.
Maðurinn taldi sig vera
ómeiddan, en siðar kom i ljós, að
hann var fótbrotinn.
Rannsóknarlögreglan óskar
eftir þvi að ökumaður bif-
reiðarinnar, svo og vitni, sem
urðu að þessu óhappi, hafi sem
fyrst samband við hana að
Borgartúni 7.
minnisblöð, sem hann hefði
orðið að skilja eftir, þegar
hann var fluttur úr landi.
Solsjenitsín kvaðst hafa
verið sakaður um landráð,
þegar hann var handtekinn af
öryggislögreglunni rússnesku
og átt dauðadóm yfir höfði sér,
en siðan verið sviptur rikis-
borgararétti og fluttur úr
landi.
r
Solsjenitsín
bíður nú eftir
f jölskyldunni
Neyðarástand sunnan fjalls á Snæfellsnesi:
FJÖLSKYLD.UR FLÝJA
VEGNA HUSKULDA
— jafnvel alla leið til Reykjavíkur
SP-Reykjvik. —r Þórður
Gislason á ölkeldu i
Staðarsveit á Snæfells-
nesi hringdi i okkur i
gærmorgun og sagði, að
skapazt hefði alvarlegt
ástand á þessum slóðum
vegna óveðursins.i Það
var aðfaranótt þriðju-
dags siðastliðins, er
gerði aftakaveður á
norðaustan og stóð i um
sólarhring. Tjón varð
töluvert, en þó tilfinnan-
legast á ra f- og simalin-
um, en mikil ising fylgdi
óveðrinu.
A svæðinu frá Ólafsvik suður i
miðja Staðarsveit brotnuðu
hvorki meira né minna en 50-60
raflinustaurar og álika margir
simastaurar. Varð þá rafmagns-
laust á öllu svæðinu sunnanfjalls
á Snæfellsnesi, eða á svæði, er
nær yfir fimm hreppa, að Hitará.
Slmasambandslaust varð úr
Breiðuvikurhreppi og helmingn-
um af Staðarsveit og er enn.
Þórður sagði, að talið væri, að
rafmagnslaust yrði á svæðinu
a.m.k. þessa viku. Rikir nú
nánast neyðarástand þarna eink-
um vegna kulda en hús eru al-
mennt kynnt beint með rafmagni
eða ■ miðstöðvarhitun, sem
knúin er rafmagni að einhverju
leyti.
Vissi Þórður til þess, að
nokkrar fjölskyldur á svæðinu
hefðu hreinlega flúið heimili sin
af þessum sökum og farið á aðra
bæi, þar sem aðstæður eru betri.
Einnig er til, að fólk hafi „flúið”
alla leið til Reykjavfkur.
Skólahald i barna- og unglinga-
skólanum að Lýsuhóli hefur fallið
niður vegna rafmagnsleysis og
ekki er vitað, hvenær það hefst á
ný.
— Auk þeirra erfiðleika, sem ég
hef þegar nefnt, er ástæða til að
nefna, að I rafmagnsleysinu eru
aöstæður ekkert sérlega
auðveldar á stóru kúabúunum
með rafmangsknúin mjaltavéla-
kerfi, og einnig liggur mjög
mikið af matvælum I frysti-
geimslum heimilanna undir
skemmdum, ef þetta rafmagns-
leysi varir mikið lengur.
Þess má geta, að á svæðinu,
sem orðið hefur svo hart úti, eru
um 700ibúar,á um 120heimilum.
Nánast er snjólaust á svæðinu, en
svellalög mikil, og kvað Þórður
ekki þurfa að kvarta yfir sam-
göngum.
Nixon neitar enn
að afhenda gögn
NTB-Washington — Jaworski,
rannsóknardómari i Watergate-
málinu, upplýsti í gær, að Nixon
forseti hefði neitað að ieggja fram
hljóðritanir og skjöl, sem dóms-
málaráðuneytið bað um að fá að-
gang að i fyrri viku.
Jaworski tilkynnti ennfremur,
aö hann myndi hafa samráð við
Watergate-nefnd öldungadeildar-
innar um, hvernig hann ætti að
bera sig að i málinu.
James St. Clair, lögfræðilegur
ráðunautur forsetans i Water-
gate-málinu, tilkynnti Jaworski
með bréfi, að hann samkvæmt
skipun frá forsetanum gæti ekki
afhent gögn þau, sem óskað væri.
Samkvæmt réttarúrskurði i
fyrra hafa fulltrúar dómsmála-
ráðuneytisins ,vald til að fara
lagaleiðina til að skipa forsetan-
um að afhenda gögnin. Ef sú leið
verður farin, getur komið til
ágreinings milli Hvita hússins og
réttarkerfisins. Svipað var ástatt
i málunum i fyrra, þegar Nixon
rak Cox úr starfi rannsóknar-
dómara.