Tíminn - 30.06.1974, Side 3
Sunnudagur 30. júni 1974.
TÍMINN
3
tslenzkir bændur fóru fyrir nokkru til Norðurlanda á vegum Sunnu.
Þessi mynd var tekin af feröahópnum i ósló, en i hópnum voru alls 143.
Lagt var af stað frá Reykjavik 12. júni og komið aftur 23. júni. Feröin
var mjög vel heppnuð og sáu menn margt fróðlegt og skemmtilegt i
þessari Norðurlandaför.
Listakona sýnir
erlendis
SJ-Reykjavik. Matthea Jónsdótt-
ir listmálari tók 16.-30. marz sl.
þátt I sýningu á vegum listasam-
takanna Art Contemporain Inter-
national I Lyon i Frakklandi.
Að listasamtökum þessum
standa listasöfnin (Musée des
Matthea Jónsdóttir
FERÐAFÓLK
Munið Hótel
ÞÓRISTÚN
Eina gistihúsið ó
SELFOSSI
Beaux-Arts) i Frakklandi, Belgiu
og á Spáni, en slík söfn eða með
þessu sama nafni eru i öllum
stærri borgum þessara landa eins
og kunnugt er, og eru einnig rekn-
ir listaskólar á þeirra vegum.
Á sýningu þessari var keppt um
tilteknar viðurkenningar, eftir
listgreinum, og var ein viður-
kenning veitt fyrir hverja eftir-
talinna listgreina:
Peinture á l’Huile — Peinture á
l’Eau — Gravure — Sculpture —
Arts Graphiques — Arts Décora-
tifs — Composition — Portrait —
Nu — Fleurs — Nature Morte —
Marine — Paysage — Arts Sacré
— Art d’Outre-Mer. Auk þess
aukaverðlaun fyrir erlenda list og
til ungra listamanna (yngri en 35
ára), 80 listamenn áttu þarna
verk 1-8 st. hver, (18 þeirra bú-
settir utan Frakklands) en I heild
voru á sýningunni 200 verk. Að-
eins tveir áttu 8 verk, Matthildur
og frönsk listakona, Pana Fieu,
búsett i Paris. Hlaut Matthildur
verðlaun, sem bera heitið „L’Art
D’Outre Mer”, fyrir mynd, sem
hún nefnir islenzkt landslag (pay-
sage D’Islande).
í hinu útbreidda listatimariti
La Revue Moderne, sem gefið er
út i Paris að tilhlutan Beaux Arts-
safnanna, munu á næstunni birt-
ast umsagnir svo og myndir af
verkum þeirra, er verðlaun hlutu
á umræddri sýningu.
Matthildi hefur verið boðið að
gerast félagi I frönsku listasam-
tökunum Académie Internatio-
nale de Lutése (Paris), svo og
þátttaka i sýningu á þeirra veg-
um I Paris, sem mun verða opnuð
14. desember I vetur.
Enga linku í landhelgismálinu
x B
Samið
við
A-Þjóð-
verja
DAGANA 18.-20. júni s.l. fóru
fram i Berlin viðræöur um við-
skipti tslands og Þýzka alþýðu-
lýðveldisins. Rætt var um fram-
kvæmd viðskiptasamnings rikj-
anna, sem geröur var i febrúar
1973.
Þýzka alþýðulýðveldið kaupir
einkum af Islendingum loðnu-
mjöl, niðursuðuvörur og söltuð
ufsaflök, en selur til Islands
áburð, vefnaöarvörur, vélar, bif-
reiðar og fleira.
Af hálfu Islands tóku þátt i við-
ræðunum I Berlin Björgvin Guö-
mundsson, skrifstofustjóri I við-
skiptaráöuneytinu, sem var for-
maður Islenzku nefndarinnar, dr.
örn Erlendsson, framkvæmda-
stjóri Sölustofnunar lagmetis,
Ingólfur Þorsteinsson skrifstofu-
stjóri, gjaldeyrisdeild bankanna,
Haukur Björnsson framkvæmda-
stjóri og Arni Finnbjörnsson,
sölustjóri SH.
Húsbyggjendur —
Einangrunarplast
Getum afgreitt einangrunnarplast á
Stór-Reykjavikursvæðið með mjög
stuttum fyrirvara.
Afhending á byggingarstað.
Hagkvæm verð. Greiðsluskilmálar.
BORGARPLAST HF
Borgarnesi — Simi 93-7370.
EIN ÞEKKTUSTU
, , MERKI
StJ/lINaKj norðurlanda
TUDOR
Top
RAF-
GEYMAR
6 og 12 volta Sönnak og Tudor
Rafgeymar jafnan fyrirliggjandi
rs
ARMULA 7 - SIMI 84450
#4 Jg*
Hjá okkur fáið þið flest er ykkur vanhagar um
á ferðalagi, og veitingaskáli okkar býður upp á:
ýmsa heita smárétti, smurt brauð og kökur, kaffi,
öl, gosdrykki, tóbak, sælgæti og margt fleira.
FERDA
menn
Verið
velkomin á
félagssvæði
okkar
Við rekum
áÞÓRSHÖFN:
Veitingaskála, verzlun, mjólkurstöð,
bifreiða- og vélaverkstæði, oliu- og
benzinsölu, skipa- og bifreiðaafgreiðslu,
slátur- og kjötfrystihús, innlánsdeild
á BAKKAFIRÐI:
verzlun, oliu- og benzinsölu, skipa- og
bifreiðaafgreiðslu
kaupfélag Langnesinga
ÞÓRSHÖFN - BAKKAFIRÐI