Tíminn - 30.06.1974, Page 15

Tíminn - 30.06.1974, Page 15
Sunnudagur 30. júni 1974. TÍMINN 15 Aukin áhrif kirkjunnar í stjórnmálum? HP.—Reykjavik. — A hinni ár- legu prestastefnu, sem nú er haldin i Reykjavlk, hafa orðið miklar og málefnalegar umræður um stöðu kirkjunnar i nútima- samfélagi. Eru umræðurnar að mörgu leyti með öðrum blæ, en áður hefur verið, þar eð þær snú- ast mikið til um óánægju presta með afgreiðslu stjórnvalda yfir- leitt á málefnum kirkjunnar og aukinn áhuga hinna lærðu á bein- um stjórnmálalegum afskiptum i þágu sóknarbarna sinna. Var all- mikill hugur I þeim prestum, er við höfðum tal af, enda þótt megi búast við, að þeir taki til við að negia upp yfirlýsingar á kirkjuhurðir, eins og Lúter gerði 1517. Sr. Gunnar Björnsson i Bolungavik, er einn af riturum prestastefnunnar og hann stóð fyrir þeirri nýbreytni, ásamt öðr- um ungum presti, Guðjóni Guð- jónssyni æskulýðsfulltrúa, að þeir léku á orgel og pianó við opnunar- athöfn prestastefnunnar. Kvað hann það rétt vera, að áhugi á beinum stjórnmálalegum afskiptum hefði aukizt til muna hjá stórum hópi presta. í annarri af tveimur framsöguræðum sem haldnar hefðu verið um umræðu- efni prestastefnunnar, Kirkjan og samfélagið”, hefði t.d. réttilega komið fram, að það væri rétt þjónusta við guð, að prestar lið- sinntu sóknarbörnum sinum á sem margvislegastan hátt, og þá einnig með afskiptum af stjórnmálum, til þess að geta haft áhrif á lausn þeirra félagslegu vandamála er hinn almenni sam- félagsþegn ætti við að glíma. Starf kirkjunnar væri mikið fal- ið I trúboði, ekki aðeins meðal ókristinna þjóða, heldur einnig I þeim þjóðfélögum, er kristin teldust, en það væri einlægur áhugi margra presta að hjálpa meðborgurum sinum með þeim tiltæku meðulum sem nútima- þjóðfélag býður upp á, þ.e. að komast á þing og eiga sæti I bæjarstjórnum o.s.frv. sagði sr. Gunnar Björnsson að lokum. Sr. Ingólfur Guðmundsson lektor við Kennarahásk. lagði áherzlu á, að ekki væri verið að fjalla um nein einstök málefni kirkjunnar, heldur væri verið að kanna og ræða skipulagsmál hennar, sem raunar væri fram- hald af umræðum sem átt hefðu sér stað fyrir 2 árum. Þvi væri ekki að neita að prest- ar væru afskaplega óánægðir með afgreiðslu þá, er ýmis frumvörp um kirkjuleg malefni hefðu feng- ið á Alþingi, og væri raunar óskiljanlegt það tómlæti, er þing- menn hefðu sýnt þeim. Nægði þar aö nefna frumvarpið um veitingu prestakalla, sem þingið hefði lát- ið óhreyft þrátt fyrir að fjallað heföi verið um það tvisvar heima i héraði og gerðar á þvi breyting- ar, og einnig á kirkjuþingi þrjú ár I röð. Mætti fast að þvi segja, að veg- ið hefði verið að kirkjunni, með þeirri afgreiðslu, er frumvarpið hlaut. Ingólfur vildi þó undirstrika mjög ánægjulega samvinnu við fjármálayfirvöld, bæði ráðherra og aðra I fjármálaráðuneytinu, sem með sinni meðhöndlun á kjaramálum prestastéttarinnar heföu I verki sýnt jákvætt mat á starfi og gildi kirkjunnar. Ekki taldi Ingólfur að raun- verulegar umræður um fóstur- eyöingar yrði að ræða á þessari prestastefnu. Kirkjan hefði nú þegarljósa og afmarkaða stefnu I máli þessu, sem væri meira en segja mætti um flesta stjórn- máíaflokkana. Taldi hann hörmulegt, ef þeir hyrfu allir frá hinu kristna verðmætamati I líf- Sr. Lárus Halldórsson: ...„kirkjan mæti fólkinu á miðri leið"... Hallgrimsminning I skipi Hallgrimskirkju á Skólavörðuholti á fimmtudaginn Sr. Gunnar Björnsson: ...„presta á Alþingi og í bæjarstjórnir''... inu, og benti á ræðu þá er Tord Godal biskup frá Þrándheimi hefði flutt fyrr um daginn, þar sem hann hefði sagt það viðtekna skoðun i mörgum þjóðfélögum, að þeir einir hefðu lif, er hæfir væru til framleiðslustarfa. Sr. Lárus Halldórsson, sóknar- prestur i Breiðholti, kvað það augljóst að islenzka kirkjan væri sennilega næst þvi að vera þjóð- kirkja i eiginlegri merkingu þess orös, ef gerður væri samanburð- ur við önnur Norðurlönd. Þó væri það einkennilegt, hvað hún væri áhrifalitil innan þjóðmála, og sennilega væri þar um að kenna eldgömlum skipulagsákvæðum, sem hún starfaði eftir. Engir möguleikar væru á þvi að flytja presta eða aðra starfs- menn um landið, þar sem þeirra væri þörf i það og það skiptið, og eiginlega mætti segja, að starf prestsins væri umvafið einhverri sögulegri rómantik sveitaprests- ins fyrir hundrað árum. Þessu yrði að breyta, — færa starf prestsins inn á meðal fólksins, en ekki einangra hann frá söfnuðin- um. Þjóöfélagið hefði breytt mik- ið um svið á siðustu árum, og kirkjan yrði að mæta fólkinu á þeim grundvelli, er það stæði á. Sr. Ingólfur Guðmundsson: ...„ánægðir með samstarf við fjár- málaráðuneytið"... Spor í rétta átt, og sigurspor að auk staöa islenzka dansfólksins á þannig bæði sinar björtu hliðar og dökku. Mjög saknaði ég Nönnu ólafsdóttur, sem stóð sig með svo eftirminnilegri prýði á sýningu flokksins á frumsýning- unni i Félagsheimilinu á Sel- tjarnarnesi I fyrra. Að minu viti eru dansar Alans Carters bæði langdregnir og torskildir i senn, þótt þar bregði fyrir ljósum blettum og at- hyglisverðum. Má vera að ein- hverjir geti glöggvað sig betur á efni Höfuðskepnanna og at- burðarás með þvi að lesa kafla úr eftirfarandi skýringu i leik- skránni: „Ballett þessi er sam- settur af dansatriðum sem leit- uðu á hug minn við ihugun „höfuðskepnanna”. Hver þeirra um sig vekur mér I huga grúa hugmynda, sinna úr hverri átt- inni: úr goðsögnum, árstiðum, mannheimum, dýrheimum, plönturikinu, að lit, lögun, hreyfingu, ljósmagni, að yfir- boröi, framsetningu, titringi, þunga, hitastigi, dansdeildir, dansspor danshópa; breytilega endurtekningu, danssvip, hátt- bundið ris og fall, timalengdir, áherslur o.s.frv. Tilteknum hugmyndum er skipað niður og þær tengdar, i hug minum, tiltekinni ,,höfuö- skepnu” og tiltekinni framsetn- ingu — i samsetning er tákni þá „höfuðskepnu”. Ég er hugfang- inn af sköpulagi þessa samsetn- ings. Þetta er minn hugsunar- háttur: ég hugsa mér tiltekna persónu I runu sýnilegra, áþreifanlegra, munnlegra, vit- rænna — o.s.frv. mynda”, en sá, sem þetta ritar fyllir áreiðan- lega ekki þann hóp. Þótt finna megi ýmsa góða bjóra I Höfuðskepnunum og Til- brigðunum, þykir mér listdans- ar þessir ekki bera jafnmiklum frumleika og frjóu imyndunar- afli vitni eins og Sköpunin og Boðorðin tiu, sem Alan Carter frumsýndi i fyrra. Þótt Júlia Claire gerir hlutverkum sinum hér allþokkalegustu skil tekst henni að minni hyggju samt ekki eins vel upp og hún gerði á frumsýningu flokksins á Sel- tjarnarnesi. I framhaldi af þessu er rétt að geta þess, að ungir og glæsilegir fulltrúar Is- lenzka dansflokksins lofa góðu, já, mjög góðu. Hvort sem litið er á Dag einn eftir G. Veredon við tónlist eftir Brahms eða atriði úr Rómeo og Júliu eftir sama dansahöfund við tónlist eftir Brahms eða atr- iði úr Rómeo og Júliu eftir sama dansahöfund við tónlist eftir Berlioz ber ekki á öðru en túlkun Sveinbjargar Alexanders ljómi með klassisku yfirbragði og fá- gætri reisn. Þessi fagurlimaða listakona hefur átt viljaþrek, staðfestu og þolgæði til að aga sjálfa sig og hagnýta sér til hlit- ar tilsögn færustu kennara. Hún sameinar fjaðurmýkt og leikni, persónutöfra og blæbrigðarika túlkunarhæfileika. Ég fylgdist með hverju spori hennar og hreyfingu með vaxandi hrifn- ingu dansinn á enda og svo munu eflaust fleiri hafa gert. Sveinbjörgu virðist hvergi skeika, enda gerir hún flest ef ekki allt með goðborinni ró og stilfestu. Hún stigur sannkölluð sigurspor á sviði Þjóðleikhúss- ins. Wolfgang Kegler reyndist henni verðug stoð og stytta. Veredon býr og yfir ótviræðum hæfileikum sem dansahöfundur. Þeir aðilar, sem buðu Svein- björgu Alexanders til Lista- hátiöar, vissu sannarlega hvað þeir voru að gera og eiga þeir þvi riflegar þakkir skildar. R-vik 23. júni ’74 Halldór Þorsteinsson Ballettsýning íslenzki dansflokkurinn Stjórnandi: Alan Carter ásamt Sveinbjörgu Alexanders °9 Wolfgang Kegler

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.