Tíminn - 30.06.1974, Qupperneq 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 30. júnl 1974.
Kóngssonurinn og
kóngsdótfirin á Spóni
Framhald frá
síðasta sunnudegi
i þriðja sinn, kom kóngs-
dóttirin út, til þess að
heilsa upp á gestina. En
er hún kom að vagnin-
um, rétti bróðir hennar
höndina út um vagn-
gluggann og sló hana
utanundir. Vagnstjórinn
og hermennirnir urðu
felmtraðir og óku af stað
i skyndi og flýttu sér
sem mest þeir máttu.
Komu þeir um kvöldið
að gestgjafahúsi einu og
tóku sér þar náttstað.
Þegar veitinga-
maðurinn heyrði frá-
sögn þeirra, þótti honum
hún mjög undarleg.
Hann lá vakandi alla
nóttina og gat ekki um
annað hugsað. Morgun-
inn eftir, þegar gestirnir
voru farnir, söðlaði hann
bezta hestinn sinn og
reið til konungs-
hallarinnar og bað um
að ná tali af kóngs-
dótturinni, þvi að lif
bróður hennar væri i
veði.
Kóngsdóttir lét bjóða
honum inn i höllina, er
hún heyrði þetta. Sagði
hann henni siðan, hvers
hann hefði orðið
áskynja, og að það væri
grunur sinn, að maður
sá, sem hermennirnir
hefðu flutt i vagninum,
væri enginn annar en
bróðir hennar. Kóngs-
dóttir þakkaði honum
kærlega fyrir þessar
upplýsingar. Lét hún
siðan kalla þernur sinar
og skipaði þeim að finna
alla gimsteinana sina og
festa þá i annan glófann
sinn.
Siðan bjóst hún ferða-
fötum, og flýtti sér af
stað til höfuðborgar-
innar i Portúgal. Kom
hún þangað daginn áður
en liflát bróður hennar
átti að fara fram. Hún
gisti á veitingahúsi einu
um nóttina. Um kvöldið
spurði hún veitinga-
manninn, hvort nokkuð
nýstárlegt hefði borið
við þar i borginni, þvi að
hún hefði veitt þvi eftir-
tekt, að svo margir voru
á ferli.
,,Það á að lifláta
svikara einn á morgun”,
svaraði veitinga-
maðurinn. „Hann þykist
vera kóngssonur frá
Spáni.”
„Skyldi ég geta fengið
að sjá hinn
dauðadæmda?” spurði
kóngsdóttir.
„Já, áreiðanlega.
hann verður fluttur
hérna fram hjá”,
svaraði veitingamaður.
„Kóngurinn ekur lika
hér framhjá, þvi að
hann ætlar að horfa á af-
tökuna”.
Morguninn eftir fór
kóngsdóttirin snemma á
fætur og bjó sig i
drottningarskrúða.
Skömmu seinna ók
vagninn, sem bróðir
hennar sat i, framhjá.
Hendur hans voru
bundnar á bak aftur.
Siðan kom kóngurinn
með fylgdarliði sinu. Þá
fór kóngsdóttirin út á
götuna. Hún féll á hné á
veginum rétt fyrir
framan reiðskjótann,
sem kóngurinn sat á,
Kóngurinn stöðvaði hest
sinn samstundið og
horfði með aðdáun á
kóngsdótturina og
mælti:
„Stattu á fætur, fagra
mær, það sæmir ekki að
beygja sig svo djúpt
fyrir hesti minum”.
Kóngadóttir reis á
fætur. Hún leit djarflega
framan i konunginn með
dökku augunum sinum.
„Yðar hátign”, mælti
hún, „ég verð að biðja
yður stórrar bónar”.
„Bæn þin er veitt”,
svaraði konungur, „svo
framlega, að hún sé ekki
viðvikjandi svikaran-
um, sem á að fara að lif-
láta, — fyrir hann fæst
engin náð”.
Æfingabúningar
Verð frá kr. 1800—4000
5P0RT&4L S
cHEEMMTORGi |
„Hvort hann er
svikari eða ekki, skal ég
láta ósagt, en getur
kóngurinn sagt mér,
hvers virði þessi hanzki
er? ”. Þvi næst sýndi hún
kónginum hanzkann,
sem allur glitraði i
gimsteinum.
Kóngurinn leit á hann
og hrópaði forviða:
„Hann er dýrmætari
en allir minir fjár-
sjóðir”.
„Yðar hátign! Hvað
finnst yður sá maður
eiga skilið, sem hefur
rænt mig þvi, sem er
mér miklu dýrmætara
heldur en glófinn með
öllum gimsteinunum? ’’
„Hann verðskuldar
dauðann og ekkert
annað”, svaraði
konungur.
„Þarna er maðurinn”,
mælti kóngsdóttir og
benti á Rauð. „Hann
hefur rægt bróður minn
og mig. Látið taka hann
og lifláta, hann á ekki
betra skilið, en ég krefst
þess, að bróðir minn sé
látinn laus hann er
kóngssonur frá Spáni.
Og fái ég ekki þessa ósk
mina uppfyllta, mun ég
láta safna liði, og að ári
liðnu verður konungur-
inn i Portúgal yfirunn-
inn”.
Þegar konungurinn
heyrði þetta, varð hann
mjög óttasleginn.
Kóngssonur var látinn
laus, en Rauður var lif-
látinn i hans stað. Siðan
fóru systkinin heim til
Spánar. Kóngssonur tók
við rikisstjórn, og
stjórnaði landinu svo
vel, að Spáni hefur
aldrei verið betur
stjórnað, hvorki fyrr né
siðar.
dHuuHnnnunun
Kennarastöður
1^3 Sauðárkróki
Nokkrar kennarastöður við barnaskólann
og gagnfræðaskólann á Sauðárkróki eru
lausar til umsóknar. Kennslugreinar m.a.
islenzka, enska, handavinna pilta, söng-
ur, ieikfimi pilta.
Allar nánari upplýsingar veita skóla-
stjórar.
Fræðsluráð
Verktakaþjónusta
Gefum föst
verðtilboð í
efni og vinnu
EINANGRUN
frystiog kSelildefa
ÞAKPAPPAIOGN
íherttasfalt
Armúli
38
II
VIUKINl v
Vestmannaeyjum • Sími 290 ■ Reykjavík • Sími 8-54-66