Tíminn - 06.10.1974, Blaðsíða 2

Tíminn - 06.10.1974, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Sunnudagur 6. október 1974. Sunnudagur 6. október 1974 Vatnsberinn (20. jan.—18. febr.) Kitthvaö gerist I dag, ef til vill ekkert stórvægi- legt, að þér finnst, en engu aö siður litur út fyrir, að það hafi þó talsverð áhrif i framtfðinni: Það litur út fyrir aö vera i sambandi við eitthvert samkvæmi. Kiskarnir (19. febr.—20. marz.) Rólegt umhverfi á bezt við þig i dag, og þú hress- ist og slappar af. Það væri afskaplega hollt að reyna ekki mikiö á þig en dútla við eitthvað, sem gleöur hugann og fara snemma að sofa. Hrúturinn (21. marz—19. april) Eitthvert mál, sem þú hefur verið að glfma við, var komið á góðan rekspöl, og ekkert eftir nema reka endahnútinn á það. Þú varst meira að segja farinn að gera þér ýmsar vonir, en farðu varlega i dag, svo allt fari ekki út um þúfur. Nautið (20. apríl—20. mai) Ef þú átt þess kost að lyfta þér eitthvaö upp, komast i smáferöalag eða eitthvað svoleiöis, ættirðu ekki aö slá hendinni á móti þvf, af þvi að mestar likur eru á, að þú komist f kynni viö ein- hverja, sem máli skipta. Tviburarnir (21. maí—20. júni) Þú skalt fara að öllu með ró i dag, þvi að það er enn ekki komiö að réttu mati á hæfileikum þin- um. Það litur út fyrir, að þér sé afskaplega mik- iö I mun aö ljúka af einhverjum verkefnum, en ekkert liggur á. Krabbinn (21. júni—22. júli) Varastu aö láta óviökomandi fólk vita yfirleitt nokkuö um hagi þlna, eða heimilislif. Kunningj- arnir gegna öðru máli. Þú mátt ekki hætta aö umgangast þá, — eða láta tortryggnina ná tök- um á þér. Ljónið (23. júlí—23. ágúst) Það er hætt við þvi, aö þú þurfir aldeilis að gæta tungu þinnar I dag. Sérstaklega skaltu gæta þess að abbast ekki upp á einhvern þér nákominn. Eitthvað veldur þvi, að dagurinn verður þér erf- iður. Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.) Þaðerallt miklu öruggara fram undan, þvf að það er nefnilega aö draga úr tilefni þess, sem hefur valdið spennunni að undanförnu. Þess vegna skaltu ekki vera aö reyna um of á þig eða hlaupa að óþörfu Vogin (23. sept.—22. okt.) Það er að öllum líkindum I dag sem ýmsar breytingar, sem þú hefur verið að búast viö, komast I kring. Arangurinn af erfiöi þinu er að koma I ljós. Eitt enn: vertu vandlátur, þú hefur nefnilega ráð á þvf að vera þaö. Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.) Þú gætir gert kjarakaup á óvæntum staö. Notaðu meðfæddar gáfur þinar, og þetta er nefnilega góður dagur til innkaupa, sérstaklega til heimilisins eöa á einhverjum stærri hlutum eða I stærri stíl. Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.) Það er hætt við þvi, að þú fáir einhver skilaboö undir kvöldið. Þú skalt velta þeim vandlega fyr- ir þér, og athuga, hvort það er ekki eitthvað I þeim. Hitt er annaö mál, að þú skalt foröast allar deilur I dag. Steingeitin (22. des.—19. jan.) Það lftur út fyrir, aö einkum veröi þaö gagn- stæða kyniö, sem kemur við sögu i dag, og þess vegna ætti þessi dagur að geta oröið skemmti- legur, sérstaklega þegar lföur á hann, og kunningjarnir koma til sögunnar. íslenzkur dýravinur -og teiknari Það má nú segja, að vfða liggja landans spor, og hefur vist fæsta grunað, að rammislenzkt blóö hafi runnið i æðum þess manns, sem verið hefur einn helzti gleði- gjafi þeirra fjölmörgu, er yndi hafa af teiknimyndum Walt Disneys. En svo er nú samt. Höfundur myndasögunnar um Indiánadrenginn Kikó, Charles G. Thorson, eða Karl Gústaf Þóröar- son, eins og hann hét réttu nafni, fæddist f Winnipeg i Kanada áriö 1890. Foreldrar hans voru báðir tslendingar (Stefán Þórðarson og Sigriður Þórarinsdóttir) og höföu flutt búferlum til Vesturheims nokkrum árum fyrr. Karl fór ungur að teikna, og voru það einkum dýramyndir, sem hann teiknaði, enda var hann mikill dýravinur. Margar af vin- sælustu teiknimyndafigúrunum, sem kenndar eru við Disney, eru einmitt sköpunarverk Karls, og má þar nefna kaninuna Bugs Bunny, filinn Elmer, tigrisdýriö Tilly, elginn Sniffles og Indiána- drenginn Hiawatha. Sunnudaginn 6. október n.k. mun okkur gefast færi á að njóta listar Karls, þvf að þá verður sýnd I sjónvarpinu mynd um Indíánadrenginn Kikó og ævintýri hans. EYJOLFSSONAR Skipholti 7, Reykjavík, sími 10117 — 43577 Klæðaskápur frá okkur er lausnin... _________^ ,nt rzLuiz— ■■ ii rnm ... og vandfundnir eru hentugri klæðaskápar hvað samsetningu og aðra góða eiginleika varðar. Litmyndabæklingur um flestar gerðir klæðaskápa, S samsetningu, stærðir, efni og | verð ásamt öðrum upplýsingum. c 1 Allar gerðir klæðaskápa | eru til í teak, gullálmi og eik. I Einnig undir málningu. Vinsamlegast sendið mér nýja um klæðaskápana. Nafn:. itmyndabæklinginn j I Skrifið meS prentstöfum í Heimilisfang: jg Húsgagnaverslun Axels Eyjólfssonar, Smiðjuvegi 9, Kópavoqi. |

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.