Tíminn - 06.10.1974, Side 4

Tíminn - 06.10.1974, Side 4
4 TÍMINN Sunnudagur 6. október 1974. Ung f jallgöngukona til Sovétríkjanna Þessi stúlka heitir Anja Vögel og er 28 ára gömul. Hún er frá Murnau i Þýzkalandi og er i hópi fjallgöngumanna, sem boðið hefur verið til Sovét- rikjanna til þess að ganga þar á fjöll. Ferðinni er heitið til Mið-Asiu, og tindurinn, sem boðið hefur verið upp á að reyna við, nefnist Lenin-tindur og er 7134 metrar á hæð. Einnig verður gengið á Razdelnaya- tind, en hann er 6146 metrar á hæð. Til samanburðar má geta þess, að Everest er 8848 m. 1 myndatextanum, sem þessari mynd fylgdi, segir, að Anja sé meðal færustu fjallgöngumanna i Þýzkalandi, og hefur hún meðal annars borið sigur úr býtum i f jallgöngukeppni. Reiknað er með að boðið verði fjallgöngumönnum frá fimmtán þjóðum til fjallgöngu þessarar i Sovétríkjunum, og verða þeir þarna allir samtimis, og taka þátt i ýmsum þolraunum. ★ Glæsileg hengibrú Venjulega fer engum sögum af þvi, hverjir teiknað hafa brýr þær, sem byggðar eru hér og hvar i heiminum, enda eru flestar þeirra ekki taldar nein sérstök listaverk. Brúin, sem þessi mynd er af, mun þó vera i sérflokki, eða að minnsta kosti finnst þeim það, sem vit eiga að hafa á brúarsmiði. Þess vegna hefur verið sagt frá þvi hver höfundur brúarinnar er, ef nota má það orðalag. Sá heitir Fritz Leonhardt og er sextiu og fimm ára gamall. Hann mun vel þekktur i sinu heimalandi, Þýzkalandi, fyrir allar þær fallegu brýr, sem hann hefur teiknað um ævina. Hann hefur .lagt mikið á sig til að sameina sterklega byggingu og fallegt útlit i brúarsmiðinni, og virðist hafa tekizt það mjög vel i þetta sinn, en brúin, sem þessi mynd er af, er i Köln. Leonhardt hefur Óvenjulegar Ijósmyndir a syningu Kunstverein nefnist ljósmynda- sýning, sem er nú haldin i þriðja sinn i Þýzkalandi. Þarna sýna fjölmargir þekktir ljós- myndarar, sem hafa gaman af að reyna eitthvað nýtt i mynda- gerð sinni. Þessi mynd er meðal þeirra, sem á þessari sýningu eru, og er hún eftir Herbert Bayer, sem fæddur er i Austur- riki, en fluttist fyrir alllöngu til Bandarikjanna, og er búsettur þar. lengi unnið við brúarteikningar. Hann var til dæmis valinn til þess að stjórna teiknivinnu, þegar teiknuð var og smiðuð brú yfir Rin i nánd við Roden- kirchen, skammt sunnan við Köln, árið 1938. Brúarhafið þar er 376 metrar að lengd og var þetta lengsta brú i Evrópu á sinum tima. DENNI DÆMALAUSI „Margrét segir að þú sért jarð- bundin. Hvað þýðir það.”? „Það þýðir að sumar okkar hafa það og suraar hafa það ekki.”

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.