Tíminn - 06.10.1974, Blaðsíða 7

Tíminn - 06.10.1974, Blaðsíða 7
Sunnudagur 6. október 1974. TÍMINN 7 Trumbudans I Kúlusúk. A þessari þriggja ára gömlu mynd eru Grænlendingar aö skemmta feröamönnum. Meö ferðamönnum hafa Grænlendingar kynnzt ýmsum lifsgæöum, sem þeir vilja njóta meira af, og fara þvi gjarna til Danmerkur, upp á von og óvon. Hvernig vegnar Græn- lendingum í Danmörku? Æ fleiri Grænlendingar fara til Danmerkur til að j ganga i skóla, afla sér sérmenntunar, eða til að setjast þar að. Stofnun á vegum danska rikisins hefur gert viðtæka at- hugun á þvi, hvernig er að vera Grænlendingur i Danmörku, og sent frá sér mikla skýrslu um málið. Nú er eftir að vita, hvort upp- lýsingarnar og til- lögurnar verða notaðar. MEIRA en 15% af Grænlending- um, 14 ára og eldri, eru i Dan- mörku, og þeim fjölgar stöðugt, sem þangaðleita. Flestir koma til að mennta sig eða setjast að. Danska rikið lagði fram hálfa milljón danskra króna til að kosta rannsókn á, hvernig Græn- lendingum vegnar i Danmörku. Pia Barfod, fulltrúi i Græn- landsmálaráðuneytinu, fékk leyfi frá störfum til að stunda þessar athuganir i samvinnu við sálfræð- ing og félagsfræðing. Rannsóknin fór fram árin 1971 og 1972, þegar um það bil 3500 Grænlendingar voru i Danmörku. Af þeim voru 186 námsmenn og 27, sem búa að staðaldri i Danmörku, spurðir. Þaö voru Grænlendingar sem spurðu. Skýrsla ein mikil með niðurstöðunum er nýlega komin út. Nú er spurt, hvað gert verði við þann aragrúa upplýsinga, sem i skýrslunni er að finna. Verður þetta mikla verk lesið, og verða tillögurnar til úrbóta notaðar til að bæta úr? Rannsóknin leiddi i ljós, að mörgum Grænlendingum vegnar vel i Danmörku, en aðrir geta ekki bjargað sér. Margir Græn- lendingar eru einmana i Dan- mörku og hafa oft ekki næga þekkingu á danskri tungu eða dönsku þjóðfélagsskipulagi og verða ruglaðir af allri skrif- finnskunni. Oft þjást þeir af öryggisleysi, vegna þess að þeir lita öðruvisi út en fjöldinn. Tekið er fram i skýrslunni, að ekki sé unnt að segja nákvæm- lega, hversu margir Græn- lendingar i Danmörku eiga i vandræðum. Til dæmis reyndist erfitt að ná til þeirra, sem bjuggu I Christianiu, svo og sjúklinga. Þá er ekki unnt að segja um,hve margir nota áfengi i óhófi, eða flknilyf, en þó gefur skýrslan gott yfirlit yfir vandamálin. Straumurinn Rannsóknin beinist eingöngu að skoöunum Grænlendinganna sjálfra á stöðu sinni, en þeir eru ekki spurðir beinna, afgerandi spurninga, svo sem: Hvort er betra fyrir Grænlendinga að vera heima eða koma til Danmerkur? En hvað sem hver segir, mun straumur Grænlendinga til Dan- merkur halda áfram á komandi árum. Ýmsar munaðarvörur hafa flutzt til Grænlands undan- farinn aldarfjórðung, og þær freistá Grænlendinga til að fara til Danmerkur og njóta fleiri af gæðum lifsins. Þeim fjölgar, sem fara frá Danmörku til Grænlends til starfa, og grænlenzkar konur koma gjarna með dönskum karl- mönnum heim aftur. Fleiri Græn- lendingar tala nú dönsku en áður, eftir að dönskukennsla þar hefur veriö aukin, og það á sinn þátt i ákvöröunum margra um að fara. Þá fara margir i atvinnuleit, þvi erfitt er að fá góða vinnu i Græn- landi. Betra eða verra? Árið 1847 skrifaði trúboði einn um Grænlendinga, sem komu til Danmerkur, að ef þeir færu ekki beinlinis i hundana, þá yrðu þeir svo finir með sig, að þeir gleymdu sinum fyrri lifnaðarháttum og gætu ekki lagað sig að þeim á ný heima i Grænlandi. — Og danskir geta þeir heldur ekki orðið, og lenda þvi á eins konar millibili og geta ekki haft nein áhrif á landa sina. Ot frá allt öðru sjónarmiði telja margir ungir Grænlendingar nú, að menntun i Danmörku geti beinlinis verið skaðleg. Unga fólkiö hefur gert sér grein fyrir verðmætum lifsins á Grænlandi og vill ekki, að menning þess viki fyrir dönskum siðum og venjum. Það sér lika, að mikið af þeirri menntun, sem fengin er i Dan- mörku, er ekki nothæf á Græn- landi. Börnin Rannsóknin á högum ungra Grænlendinga, sem gengu i skóla I Danmörku, leiddi i ljós, að var- lega þarf að fara i þær sakir að senda alla unga Grænlendinga þangað til náms. Að visu vilja þeir það flestir, en eftir nokkra mánuði segja þeir samt, að þeir hefðu heldur viljað fá þessa menntun heima i Grænlandi. Einn af agnúunum á þvi er sá, að margir Grænlendingar hafa alltof litla skólaþekkingu. Það er með naumindum, að skólakerfið i Grænlandi hefur getað haldizt i hendur við fjölgun barnanna, og siðan 1964 hefur það orðið venja að senda talsverðan hluta græn- lenskra barna á eftirskóla i Dan- mörku. Undanfarin ár hafa komið allt aö 500 börn á ári. Einnig hafa komið yngri börn, sem ekki hafa lokið grænlenzku barnaskóla- námi, til að læra málið og kynnast dönskum siðum. Þá hafa verið settir upp sérskólar fyrir Græn- lendinga, til dæmis heimavistar- verzlunarskóli, sjómannaskóli og verknámsskóli i ýmsum hagnýt- um greinum. Grænlenzkar konur hafa komið og lært framreiðslu, matseld og hannyrðir, en ýmsar kennslugreinar lögðust niður fljótlega, þegar i ljós kom, að engin not voru fyrir lærdóminn i Grænlandi. Kjörin Af þeim 15 stúdentum, sem fengið hafa námsstyrki frá Græn- landsmálaráðuneytinu til há- skólanáms, hafa aðeins örfáir lokið námi. Nokkrir eru enn við nám, en hafa þurft allmiklu lengri tima en venjulegt er. Af- gangurinn hefur ýmist hætt námi, eöa farið i annað léttara nám. Grænlendingar, sem gifzt hafa Dönum og setzt að I Danmörku hafa yfirleitt góða aðstöðu, bæöi fjárhagslega og félagslega, miö- að við miðstéttina. Of litil vitneskja Mörg hjónabönd fara út um þúfur, en önnur ganga vel. Gift grænlenzk kona i Danmörku er ánægðust, ef hún vinnur utan heimilis. En Grænlendingur, sem kemur i ævintýraleit upp á eigin spýtur, á yfirleitt mjög erfitt með að koma undir sig fótunum. Helmingur þeirra, sem rætt var viö og komu á vegum ráðuneytis- ins til náms, sagði, að þeir hefðu fengið alltof litlar upplýsingar fyrirfram. Aður en farið var frá Grænlandi, fékk aðeins fjórði hlutinn að vita, I hvaöa skóla þeir ættu að vera i Danmörku. Flestir segjast ekki hafa vitað það fyrr en i bilnum á leið til skólans, og sumir jafnvel ekki fyrr en komiö var á áfangastað. Aðeins fjóröi hlutinn fékk bækling fyrir Græn- lendinga i Danmörku, sem Græn- landsmálaráðuneytið gefur út. Móttökurnar hafa verið ærið misjafnar. Sumir eru ánægðir, en þannig var tekið á móti nokkrum á Grænlendingaheimilinu: — Hér eru rúmföt og þarna er herbergi, og hvað heitir þú? Ekkert meira. ,, Bara Grænlendingur’’ Tæplega helmingur spuröra taldi Dani hafa jákvæða afstöðu til Grænlendinga. Flestum er Grænlendingum illa við að Danir sýni þeim yfirdrifna tillitssemi og umburðarlyndi. Einn segir: Framhald á bls. 36 Grtenlenzk bttrn I Kúlúsúk fyrir tlu árum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.