Tíminn - 06.10.1974, Qupperneq 16

Tíminn - 06.10.1974, Qupperneq 16
16 TÍMINN Sunnudagur 6. október 1974. Jarðfræði — Heilbrigðisfræði Jarðfræði er kennd á þriðjudögum kl. 7.30 i Laugalækjarskóla. Heilbrigðisfræði á miðvikudögum kl. 8 i Lindargötu skóla. Þátttakendur geta innritað sig við upphaf kennslustunda þessa viku. ltiaKita. RAFMAGNS HAND $ ' l! % Mdl '*S fræsarar "N fy rirligg jandi ö ÞORHFl I ■ REYKJAVIK SKÓIAVORÐUSTIG 25 1 ív <3* SÍMASKRÁ •+ FLUGLEIÐA Þann 1. október urðu tilfærslur á símanúmerum hinna ýmsu deilda Flugleiða h.f. Framvegis munu símanúmerin verða þessi: 20200 Aðalskrifstofa Reykjavikur- flugvelli — samband við: Forstjóra Aðalbókhald Fjármáladeild Flugdeild FI ug rekstra rst jórn Flugstöðvarstjórn Skrifstof ustjórn Starfsmannahald Stjórnunardeild Tekjubókhald Tölvudeild Viðgerða- og verkfræðistjórn 25100 Farskrárdeild — beint samband: 26622 Skrifstofur í Bændahöll — samband við: Innkaupadeild Kynningardeild Markaðsdeild Söluskrifstofu Lækjargötu 2 16600 Innanlandsflug Reykjavíkur — f lugvelli: Afgreiðsla og skrifstofur 22333 Flugafgreiðsla Keflavíkur- flugvelli: Upplýsingar um ferðir f lugvéla 21190 21188 Bílaleiga Loftleiða 22322 Hótel Loftleiðir 82200 Hótel Esja 21816 Flugfrakt Sölvhólsgötu — beinn simi 37444 Flugfrakt Klettagörðum — beinn sími Flugleiðir SAFALARÆKT ARIÐ 1928 var ákveöið að koma á fót loðdýrarækt — safalarækt — i Púshkinó, sem er ekki langt frá Moskvu. Safali, refur og minkur höfðu verið veiddir miskunnar- laust i hundruð ára og voru komn- ir að þvi að deyja út. Ari siðar komu sjö safalalæður i búið. bær voru langt frá þvi að vera fallegar. Feldurinn var sandlitur, stórir blettir á hálsin- um og tennurnar voru gular og slitnar. Það var skiljanlegt, þar sem safalinn er sterkt og lævist dýr og aðeins þau, sem eru gömul eða veik, falla i gildru. Hvernig átti aö fara með dýrin? í hvernig „ibúðum” áttu þau að búa? Hvað átti aö gefa þeim? Lif- fræöi safalans haföi aldrei verið athuguð. Ekkert haföi verið skrif- aö um fjölgun safalans i búri. Pjotr Manteifelj, prófessor og veiðifræðingur, sem þá var for- stjóri dýragarösins i Moskvu, fékk fyrstu safalana til að fæða i búri. Arið 1931 fæddust fyrstu safala- ungarnir i loðdýrabúinu. Árið 1935 var komið með nokkra villta safala úr Bargúzinsk-þjóðgarðin- um i loðdýrabúið. Þá hófst ræktun svarts Púshkinó-safala. Tryggja bændur tryggja i 10 mánuði, og þegar þeir fara að gefa af heyinu lækkar vá- tryggingarupphæðin um u.þ.b. 10% á mánuði, og gengur þannig út i núll, i lok timabilsins. Þess má geta, að Sam- vinnutryggingar eru meö sams konar fyrirkomulag og Grétar lýsir hér að framan. Ár eftir ár var unnið mikið starf á sviði kynbóta. Það var valið úr, unnið að kynblöndun, aftur valið úr, og hver tilraun tók mörg ár. Loks á fimmta tug aldarinnar voru komnar fram arffræðilegar linur, en samt var enn langt að biða kynsins. í fyrstu voru búrin sett upp úti i skógi og dýrin alin á hnetum, hunangi og lifandi fuglum. En brátt uröu „ibúðirnar” minni og fæöan fjölbreyttari. Auk kjöts bættist á matseðilinn egg, mjólk og vitamin. Rétt meðferð, grund- völluð á visindalegum rannsókn- um, jók viðkomuna og feldur dýr- anna varð loönari og fallegri. bað er ekki langt siðan rikis- nefnd staðfesti hiö nýja kyr. svartra Púshkinó-safala. Fjöru- tiu ára starf hafði borið árangur. Á heimsmarkaðnum er feldur Púshkinó-safala dýrari en gull. í skrifstofu loðdýrabúsins hangir landakort af Sovétrikjun- um, þarsem loðdýrabú eru merkt Tneð hring. Hvergi hefur náðst eins góður árangur og á Púsh- kinó-búinu. Hvergi eru feldirnir jafn litfagrir og loðnir og þar. Það er ekki liðinn langur timi siðan rannsóknastofan i safala- rækt tók til starfa. Þar eru m.a. geröar tilraunir með hraðari þroska feldsins með þvi að stytta dagsbirtuna. Venjulega tekur það sjö og hálfan mánuö að fá falleg- an safalafeld. En ef til vill er hægt að stytta timann niður I sex mán- uði, eða jafnvel fimm. Skinnið þroskast venjulega á veturna, þegar dagurinn er styttri. Þess vegna vinna visindamenn að rannsóknum á þeim áhrifum, sem minni dagsbirta hefur á feld- inn. Þaö gengur samt ekki allt slétt og fellt i starfinu á loðdýrabúinu. T.d. hefur fæðuvandamálið enn ekki verið leyst. Loðdýrin, rán- dýrin, þurfa dýra fæðu, kjöt, mjólk og vitamin, og uppihald þeirra er mjög dýrt. En feldur þeirra er metinn háu verði og gef- ur af sér stöðugan gjaldeyri til rikisins. Samstarfið við þjóðgarðana er ekki alltaf gott. Safalinn, sem lifir frjáls i tægunni, og safalinn, sem alizt hefur upp i búri, eru tveir endar sameiginlegrar keðju, sem ekki má slita. Báðir eru þeir ó- metanleg gjöf náttúrunnar. I náttúrunni býr villidýrið, hraust- ara og gáfaðra, en alls ekki fall- egra. Þess vegna verður villtur safali að bæta kynið, sem alið er i búrunum, en það má einnig bæta hann. Hvers vegna ekki að sleppa fallegustu dýrunum af Púsh- kinó-kyninu til þess að kynbæta Bargúzinsk-safalann, sem myndi verða enn fegurri við það. — Ég er að fara i uppskurð. Við skulum ræða saman siðar, segir yfirdýralæknirinn, Slúgin. Hann þvær sér vandlega um hendurnar og setur á sig gúmmihanzka. — Er þetta alvarlegur upp- skurður? — Keisaraskurður. Sjúklingurinn, pólartófa, liggur á skurðarborðinu. Hún hefur ekki getað fætt I tvo sólarhringa, og skurölæknirinn verður að koma til hjálpar. Slúgin vinnur fagurlega og á- kveðið. — Taktu við honum. Og litill yrðlingur liggur i lófa hans. Þeg- ar allt er afstaðið, eru yrðlingarn- ir vafðir i bómull. Ég sá þá næsta' dag, og þá voru þeir farnir aö drekka geitarmjólk úr pela. Auk tiu þúsund safala eru aldir upp 80 þúsund minkar i búinu og sjö þúsund refir og jafnmargir pólarrefir. Það, sem mig furðaði Safali I búri i Pushkino loðdýraræktunarstööinni, sem er rikisrekin.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.