Tíminn - 20.10.1974, Side 5
Sunnudagur. 20. október. 1074
TÍMINN
5
★ ★
Gleymdi að tilkynna
um skilnaðinn
Susan Hampshire, sem þekkt er
hér á landi meðal annars fyrir
leik sinn I sjónvarpsþáttunum
um Forsyte-ættina skildi við
mann sinn, en gleymdi að láta
hann vita! Þetta er sennilega af
þvi, að hjónakornin hafa biiið I
sitt hvoru landinu, meðan þau
voru gift.
Helgar-hjónaband endist ekki
lengi. Það tók Susan Hampshire
sjö ár að komast að þvl.
Hjónaband hennar og franska
kvikmyndastjórans Pierre
Granier-Deferre, hefur veriö
eitt af þeim allra undarlegustu
af mörgum undarlegum hjóna-
böndum, hjá fólki innan
skemmtanaiðnaðarins. Siðan
þau giftu sig, 1967, hafa þau t.d.
alltaf búið sitt I hvoru lagi.
Susan bjó i London. Pierre bjó
i Paris. Bæði stunduðu þau sina
vinnu, án þess að láta hjóna-
bandið hafa áhrif á bilsetu sina.
Um helgar flaug Susan til
Parisar og nokkrum sinnum
heimsótti Pierre hana til
London. A þessum sjö árum
hafa þau orðið þekktustu andlit-
in á flugvöllunum við Orly og
Heathrow. Allt benti til a
þetta tækist með ágætum og að
báðir aðilar væru ánægðir.
Susan sagði áður: Þetta er
dýrleg lausn á sambúð. Ég er
alltof sjálfstæð til að geta verið
eiginkona sjö daga vikunnar.
En eins og við höfum haft það,
þá þarf ég aðeins að vera góð
viö Pierre þrjá daga um helgar.
Eg myndi aldrei geta verið góð
eiginkona ef við ættum að búa
alltaf saman.
Fyirir fjórum árum eignuðust
hjónin son, Christopher, en það
breytti engu um hjónabandið.
Þegar Susan langaði til, tók hún
soninn undir höndina og skrapp
til Parisar.
En nú er þessu merkilega
hjónabandi lokið, með ennþá
merkilegri skilnaði. Pierre
vissi ekkert um skilnaðinn
Susan gleymdi að segja honum
það!
Jafnvel eftir að opinber til-
kynning hafði veriö gefin út i
London um skilnaðinn, var Pi-
erre i Paris og neitaði að trúa
þvi.
— Þetta er tóm vitleysa sagði
hann við blaðamenn. Allt er i
finu lagi milli min og konu
minnar. Hún og Christopher
koma til min um næstu helgi
eins og venjulega.
En i London, staðfesti Susan,
að skilnaðurinn væri staðreynd.
— Ég er hrædd um að ég hafi
gleymt aö segja Pierre frá þessu
— sagði hún.
Spurningin er, hvað olli
skilnaðinum? í fyrra misstu
hjónin stúlku-barn, sem lifði að-
eins I nokkra tima eftir fæðing-
una. Susan fékk taugaáfall og
einhvernveginn fór svo að hún
kenndi Pierre um þetta. Mikið
annriki var svo hjá henni næstu
mánuðina, svo að hún komst
ekki eins oft til Parisar og áður
4
LÍKAR —
EDA
HVAÐ?
Hún heldur liklega að hún sé
Marilyn Monroe, sögðu öfund-
sjúkar vinkonur Söndru
Dickinson, þegar hún fór i
leikskóla fyrir nokkrum árum.
Óneitanlega liktist hún stór-
stjörnunni nokkuð i útliti.
Til þessa hefur Sandra, sem
nú er 25 ára gömul, ekki fengið
önnur hlutverk en að brosa
fallega i tannkremsauglýsing-
um, en nú hefur hún fengið stóra
tækifærið. Hún leikur Marilyn
Mo roe I nýju leikritijsem sýnt
verður i London á næstunni. Það
heitir Þjóðsagan og fjallar um
þrjá siðustu mánuöina I lifi
Marilyn Monroe.
Sandra er bandarisk, en býr i
Bretlandi með manni sinum,
sem er háskólakennari.
Myndirnar eru af þeim
leikkonunum Söndru og
Marilyn, og fer vist ekki milli
mála hvor er hvor, þótt þær séu
að vissu leyti likar I útliti.
4
★ ★
★ ★
I
IPIÉÍ
ÉÉÉl
-
■
ðnrii
-:
■ ■ ■ '
hafði verið.
En nú er áátandið þannig, að
Susan fer af og til að heimsækja
sinn fyrrverandi eiginmann og
hann kemur til London, en þetta
gera þau aöeins vegna sonarins,
Christopher. Þannig að
raunverulega er ekkert breytt á
milli þeirra, nema að þau eru
ekki gift lengur.