Tíminn - 20.10.1974, Page 11
iifli ,ií>dö)>io ,0S .•uiasbunnu?
Sunnudagur. 20. október. 1974
TÍMINN
or
11
Fluttust
útlægir
húskarlar
Guðmundar
Arasonar
til Ameríku
Vestur-íslendingar minnast 100
ára búsetu sinnar i Kanada á
næsta ári. Stefán Stefánsson frá
Gimli sagði i viðtali i Timanum
20. júli m.a.: „Mesti gallinn, og
kannski aðalgallinn, við Is-
lendinga hefur þó verið sá, að
þeir eiga afskaplega gott með að
sameinast við aðra menn. Og þeir
vita það. Við höfum menn, sem
hafa brotizt hátt i mannfélaginu,
og allar bækur sýna það, og við
höfum aðra, sem t.d. hafa farið
norður 1 óbyggðir, og setzt að með
Indiánum, og þeir eru orðnir
alveg eins eftir 6 mánuði.”
Þessa aðlögunarhæfileika
verður að hafa i huga, þegar rætt
erum landnám íslendinga á meg-
inlandi Ameriku fyrir ferð Kól-
umbusar 1492. Huir’s Historical
Atlas yfir timabilið 1490 með
Hellulandi, Marklandi, Vinlandi
og Hvitramannalandi sýnir
einnig áhrifasvæði Islendinga
inni I Hudsonflóa. Margra alda
sigling frá Grænlandi inni i Hud-
sonflóa fyrir 1500 virðist augljós,
en þessi aðlögun, sem Stefán
nefndi, gæti haft töluvert að
segja, þegar rekja á sporin um
fyrri landnámstilraunir Is-
lendinga þar.
Brottflutningur stuðnings-
manna Guðmundar Arasonar til
Grænlands 1209 á fjórum skipum,
einnig með Klængi Kleppjárns-
syni 1219, og siðast á skipi Auð-
Bjarnar 1223?
Föðurætt Guðmundar Arasonar
var herská i meira lagi. Ari faðir
hans féll i Noregi,og Þorvarður
bróðir Ara tók virkan þátt I
valdastriði þar, og einnig Og-
mundur sneis Þorvarðsson. Tveir
föðurbræður Guðmundar Arason-
ar létust á Grænlandi. Móðir
þeirra var afkomandi Ara Más-
sonar í Hvitramannalandi. Afdrif
Ingimundar fóstra og föður-
bróður Guðmundar Arasonar,
voru lengi ókunn, eftir að hann
hvarf 1189 á skipi
sinu Stangarfolanum, og trúlega
hefur Guðmundur Arason fengið
fregniraf andáti hans hjá Jóni
Arasyni Grænlendinga-
biskupi,þegar þeir hittust á Aust-
fjörðum 1203. Ingimundur hafði
fundizt i óbyggð á Grænlandi árið
1200, ófúinn (nýlátinn?), ásamt
nokkrum beinagrindum, hjá skipi
Ingimundar, Stangarfolanum.
Vax var og þar hjá honum og
rúnir þær, er sögðu atburð um
llflát þeirra. Jón Árnason varð
Grænlendingabiskup, þegar Ingi-
mundur afþakkaði það embætti.
Guðmundur Árason átti i
,,þrjátiuára”-striði við höfðingja
og bændur i Skagafirði út af
kostnaði vegna mannsafnaðar, er
fylgdi Guðmundi Arasyni. í odda
skarst með Kolbeini Tumasyni og
biskupi, og lét Kolbeinn dæma
fjölda af húskörlum biskups
útlæga, og hótaði hann þeim líf-
láti. Svo fór þó, að Kolbeinn féll,
og lagði Guðmundur Arason þung
gjöld á bændur i Skagfirði, en
hinsvegar bætti Guðmundur Ara-
son og ögmundur sneis útlendum
mönnum, sem voru i banni vegna
samskipta við Kolbein, upp rán,
sem menn biskups höfðu framið.
Þessi stjórnkænska hefur komið i
góðar þarfir, þegar höfðingjar úr
öllum landsfjórðungum komu
með 700 manna liði norður að Hól-
um 1209 og hröktu menn biskups
frá Hólum, en hann fór með
Snorra til Reykholts. Telja má
vlst, að ögmundur sneis hafi þá
komið úr landi húskörlum bisk-
ups, sem margir hverjir voru á
vonarvöl og dæmdir sakamenn.
Þetta sama ár hurfu eða rak til
Grænlands fjögur skip, — með
húskarla biskups?
Árið 1218 kom Guðmundur Ara-
son út og fór til stóls sins. Dreif þá
liö mikið til biskups, og horfði til
kostnaðar. Arnór Tumason dró þá
lið saman og kom um nótt til
Hóla. Tóku þeir biskup i hvilu
sinni og drógu hann ofan eftir
húsum. Þeir ráku af staðnum allt
lið það, er biskupi var hjálplegt.
Þeir lögðu biskup á vagar og óku
með hann i Ás til bús Arnórs.
Vaga var eitt af fáum farartækj-
um, fyrir utan sleða, sem Is-
lendingar notuðu, og það var al-
gengt á sléttunum miklu. Sama
má segja um tjald það, sem
biskup var geymdur i við Hvitá,
tjaldað húðum bæði utan og inn-
an,og húðfat hans. 1219 hverfur
Klængur Kleppjárnsson mágur
ögmundar sneiss til Grænlands?
Arið 1222 var Grímseyjarför, og
þá voru liðsmenn Guðmundar
Arasonar einnig illa komnir, sem
orð biskups benda til. Þeir Sig-
hvatur létu leggja hendur á
biskup, og fór hann á þvi skipi úr
eyjunni, er Sighvatur var á. Guð-
mundur biskup bað guð hefna
sin,” þvi að ég má eigi, vesaling-
ur minn.” Auð-Björn, fornvinur
Guðmundur Arasonar, gæti hafa
lagt liði biskups til skip. 1223
týndist skip Auð-Bjarnar og nær
hálfur fimmti tugur manna.
Eru Arapaho-Indiánar
afkomendur Guðmund-
ar Arasonar Hólabisk-
ups?
Arapaho eru taldir með frum-
byggjum á sléttunum miklu i
Amériku, sem byggðust tiltölu-
lega seint, þar sem frumskilyrði
til veiða þar, var notkun hestsins.
Talið er að Arapaho hafi haft
búsetu við Rauðá, sem fellur
norður I Winnipegvatn. Rauðár-
dalur er með frjósömustu akur-
yrkjuhéruðum N-Ameriku, en þar
sem Arapaho stunduðu ekki akur-
yrkju, hafa veiðar á sléttunum,
með ógrynni af visundum, ráðið
þvi, að Arapaho tóku sér búsetu
þar. Þegar Evrópumenn hröktu
stöðugt fleiri Indiánaþjóðflokka
vestur á bóginn fjölgaði veiði-
mönnum á sléttunum, en „yfir-
völdin” gripu þá til kaldrifjaðra
ráöa, með skipulagðri útrýmingu
vlsundanna, að svelta Indiánana i
hel.
Arapaho hafa trúlega mótað hið
fábrotna lif, sem einkenndi
sléttubúana. Vagan (travois),
sama farartæki og notað var i
Skagafirði, var aðal farartækið.
Trönutjaldið (Tippi), einnig notað
á Islandi og i N-Noregi (Lapp-
landi), var almennt notað, en þó
að mikið samræmi væri á ytra
borðinu, skáru Arapaho sig úr i
mörgum atriðum. Þeir höfðu ekki
ættar- og stéttaskiptingu eða
höfðingjavald. Arapaho voru þeir
einu, sem jörðuðu lík á sléttunum
miklu. Arapaho áttu ekki i ófriði
við Evrópumenn,en þeir urðu að
horfasti augu við hungurdauðann
eins og aðrir sléttubúar, þegar
visundunum var útrýmt.
Viðbrögð þeirra við þessari ógn
urðu þau, að þeir efldust i messi-
asartrú.
Margt stuðlaði að fækkun Indi-
ána: hrakningar, sultur og far-
sóttir, þ.á.m. mislingar og bólu-
sótt, sem einnig herjaði á byggð
Vestur-íslendinga, sem var sett i
algjöra einangrun, án læknis-
hjálpar og lyfja. Indiánar smygl-
uöu lyfjum til Vestur-Islendinga
sem björguðu mörgum.
Stefán Stefánsson frá Gimli
segir i viðtali i Timanum, að
aölögunarhæfileikar Islendinga
séu það miklir, að það taki þá
aöeins 6 mánuði að aðlagast
hinum ólikustu lifsvenjum t.d. lifi
Indiána. Hann kallar þetta ókosti,
að visu með töluverðu stolti.
Þetta er e.t.v. ástæðan til góðrar
sambúðar við Indiána.
lslendingar settust i land, sem
Indiánar áttu, i góðri trú, en yfir-
völdin „gleymdu” að tilkynna
fyrri eigendum um eigenda-
skiptin. Nú þegar bætt kjör Indi-
ána eru á dagskrá, væri land-
náms Vestur-Islendinga vel
minnzt, ef þeir notuðu
þessa„ókosti” sina, þ.e. að-
lögunarhæfileikann, til þess að
veita Indiánanum lið til bættra
kjara, þó þar sé við mikla for-
dóma að fást, á báða bóga. Þó að
kjör Indiána séu almennt bág,
hafa einstakir komið sér áfram til
samjöfnunar við Evrópumenn,
t.d. Atsina (Gros Ventres), en
þeir eru taldir skyldir Arapaho.
ögmundur sneis, frændi og
„hershöfðingi” Guðmundar
Arasonar, bauð fjárhlut sinn til
þess, að sættir yrðu með biskupi
og höfðingjunum, og hann hefur
ekkert til sparað, að koma
dæmdum stuðningsmönnum
biskups utan. Það kemur lika i
ljós, að fjögur skip „rekur” til
Grænl, eftir ósigur biskups 1209
og eftir annan ósigur biskups
„drukknar” mágur ögmundar
1219, og eftir lokaósigur biskups
1223 týnist skip Auð-Bjarnar,
fornvinar biskups. ögmundur
sneis var ekki vel séður i Noregi.
Þar hafði hann stutt ræningja-
foringjann Jón kuflung, og
ófriðarástand var milli Islands og
Noregs 1216-’23 útaf hvarfi Páls
Sæmundssonar, en hinsvegar
voru persónuleg kynni með hæst-
ráðanda i Grænlandi og Guð-
mundi Arasyni. Þangað hefur
ferðinni verið heitið 1209, og hinar
fylgt á eftir, Grænland hefur ekki
getað hýst lið Guðmundar
Arasonar til lengdar, og má þvi
gera ráð fyrir, að þeim hafi verið
komið til meginlands Ameriku
um Hudsonflóa, og að það sé
upphaf byggðar Arapaho við
Rauðá.
Ég tel það öruggt, að stóðið af
sléttunum sé upphaflega komið af
Isl. hestinum (Indian pony), og
hefur trúlega borizt þangað með
Arapaho. Vestribyggð tæmdist
1342, og Chippewa (Ojibway) eiga
það sameiginlegt með Islending-
um, að þeir hafa varðveitt fjölda
sagna ekki aðeins af sinum eigin
forfeðrum, heldur einnig af
öðrum þjóðum. T.d. er The Song
of Hiawatha, sem Longfellow
orti, saminn eftir frásögn þeirra.
Þar er frásögn af viðureign Þórs
við Miðgarðsorm og ferð hans til
Útgarða-Loka mjög áberandi
söguefni. Einnig hefur fundizt
töluvert af tökuorðum úr
norrænum málum (islenzku) i
máli Algonkin-Indiána, sbr.
afmælisrit um Stefán Einarsson
prófessor.
Skúli Ólafsson,
Klapparstig 10
VIIlKiXI
ÞAÐ ER I
SEM ÚRVALIÐ ER
rpríD
Veljið vegg
fóðrið og
mólning
una á
SAMA
STAÐ
Mayjair
IRKiM "
eggfóður- og mólningadeild
Armúla 38 - Reykjavik
Simar 8-54-66 & 8-54-71
Op/ð til 10 á föstudagskvöldum
og hádegis á laugardögum
Sá
mest
seldi
ár
eftir
ár
Pólar h.f.
Einholti 6.
JOHNS-MANVILLE
glerullar-
9 einangrun
er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum I dag. Auk þess fáið
þér frian álpappir með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið i flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Muniö Johns-Manville í alla einangrun.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Sendum hvert á land sem er.
JlS-rö
N LOFTSSON
Hringbrout 121 . Simi 10-600
Ssiig
4 HF. Vlli
BIBLÍU'
BREFASKÓLINN
tilkynnir nýtt námskeið
FYRIR UNGT FÓLK
sem vill kynna sér Bibliuna. — Það heitir I blóma llfsins. Þetta
er ókeypis námskeið, sem samanstendur af 21 bréfi, er i sögu-
formi og er mjög spennandi frá upphafi til enda.
Væntanlegir þátttakendur sendi eftirfarandi upplýsingar til
Bibliuskólans, pósthólf 60, Keflavik.
------------------------------------------3»^----------
Ég óska að fá send til min fyrstu tvö námsbréf hins nýja nám
skeiðs, 1 blóma lifsins.
Nafn:________
Heimilisfang: