Tíminn - 20.10.1974, Síða 31
Sunnudagur. 20. október. 1974
TIMINN
31
Einokunar-umboðsmenn og
vellystingahljómsveitír
Roof Tops: t.f.v. Jón Pétur Jónsson, Guömundur Haukur Jónsson
Gunnar Guöjónsson, Ari Jónsson og Gunnar Ringsted.
Loksins eftir ianga biö, er Roof Tops platan komin á markaö. 1
allt sumar og ailt haust hefur veriö beöiö eftir þessari LP-plötu
þeirra félaga meö mikilli eftirvæntingu. Einatt hefur útkomu
plötunnar þó veriö frestaö... og frestað.
.1 síöustu viku var okkur tjáö, á umboösskrifstofu Amunda
Ámundasonar, — aö einhverjir væru komnir I verkfali á
einhverjum flugvelli, og þaö myndi seinka plötunni.
Hijómsveitin Roof Tops fór fyrir tæpu ári tii Noregs til aö
hljóörita þessa piötu. Allt efni á plötunni er eftir þá félaga sjálfa,
után „Itock me”, sem er eftir Gunnar Þóröarson, en hann aö-
stoöaöi þá viö upptökuna.
Roof Tops er meöai elztu hljómsveita landsins, og hefur hún
stööugt aukiö hróöur sinn hér heima, enda hefur kjarni hljóm-
sveitarinnar haldizt óbreyttur i háa herrans tiö. Meö þessari
nýju plötu sannar Roof Tops aö hún er meöal beztu rokkhijóm-
sveita á íslandi. Þaö er sannarlega ástæöa til aö óska þeim til
hamingju.
Auglýsið í Tímanum
þeim fjölgar
sem fara i
sólarfri
i skammdeginu
FLUGFÉ.LAG LOFTLEIDIR
/SLA/VDS
r^'Snjó-hjólbarðar
til sölu í flestum stærðum
HAGSTÆTT VERÐ
Sólum flestar
stærðir
ÁBYRGÐ Á SÖLNINGU
Sendum í póstkröfu
SÓXiXTXNG BE
Nýbýlaveg 4 • Síml 4-39-88
góð snjó-mynstur Kópavogi
I.G. skrifar
MARGAR eru þær hljómsveit-
ir hér á landi, sem athygli
blaöanna hefur litið beinzt að,
og hygg ég, að ástæða sé að
miklu leyti áhugaleysi
poppskrifara dagblaðanna á
ungum hljómsveitum.
Engu aö slöur eru margar af
þessum hljómsveitum sem
skotið hafa upp kollinum á
siðustu árum og litla eftirtekt
vakið, — harla merkilegar.
Þaö er hart I ári hjá smá-
fuglunum, er oft sagt, og það
er öruggt, að flestar þessar
hljómsveitir búa við mjög
þröngan kost og lifa ekki i
þeim vellystingum sem „upp-
hafsmenn” fslenzka poppsins
þekkja svo gjörla. Þótt vegur
islenzkra popphljómsveita
hafi alltaf verið þyrnum
stráður, og leiðin til að ná
sæmilegri afkomu nokkuð
erfið, hygg ég, að aldrei fyrr
hafi skógurinn veriö jafn
þéttur, leiðin aldrei jafn tor-
veld.
Einokunar-umboðsmenn
vilja engin afskipti hafa af
þessum hljómsveitum. Þær
berjast þvl fyrir tilverurétti
sinum með þeim einu vopnum,
sem tiltæk eru, þ.e. tónlist
sinni. En einokunar-umboös-
menn hafa ekki áhuga á tónlist
þeirra, nenna ekki að hlusta á
þá, og gefa þessum hljóm-
sveitum aldrei tækifæri til að
sýna, hvað i þeim býr. Dans-
húsagestir — alla vega flestir
— hafa heldur ekki áhuga á
tónlist þeirra, nema hún sé
nær bein stæling á vinsælum
erlendum lögum. Margir
reyna þó að flytja frumsamið
efni, en þá heyrist aöeins
óánægjukurr I salnum, og beir
veröa aö leika „Sjúgarbeibi-
lof” i fjórtánda skipti það
kvöldiö.
Innbyrðis rikir strið. á milli
þessara hljómsveita, þvi hver
biti er dýrmætur. Yfirleitt eru
þessir bitar þó ekki stórir.
Helzt væri hægt að lýsa
ástandinu þannig að ein-
okunarumboðsmaður út-
deilir ákveðnum fjölda
hljómsveita öllum beztu
„djobbunum”, en leyfir svo
hinum hljómsveitunum fyrir
náð og miskun að sleikja
diskana og hiröa mylsnuna.
Hitt vita þeir, er vilja vita,
að i þessum ungu hljómsveit-
um, er ég nefni svo, er mikið
af góðum hljóðfæraleikurum,
efnilegir tónsmiðir, og það
sem kannski er merkilegast:
sumar þessara hljómsveita
standa vellystingahljóm-
sveitunum fyllilega á
sporði.Þær eru sumar jafn-
okar hinna á flestum sviöum,
— nema þær vantar aö sjálf-
sögðu þá margra ára reynslu,
sem hinir hafa.
Nú er ég ekki aö halda þvi
fram, að allar ungar hljóm-
sveitir séu góöar, — það er af
og frá. Hins vegar eru þar inn-
an um hljómsveitir, sem eru
athygíisveröar og þess viröi,
að þeim sé verulegur gaumur
gefinn.
Min skoðun er sú, að ein-
okunumboðsmanna á islenzku
poppi sem verzlunarvöru
standi þróun þess verulega
fyrir þrifum. Sú stund mun
koma, að peningahús þessara
„poppjöfra”, sem verzla með
þessa tegund tónlistar eins og
hvern annan varning með það
eina i huga að græöa, — muni
hrynja, og það mun verða Is-
lenzku poppi og islenzkum
popptónlistarmönnum fyrir
beztu.
I.G.
Tónlistarsiðan þakkar I.G.
bréfið, og viö tökum svo
sannarlega undir það með
honum, að „ungar” hljóm-
sveitir eiga of sjaldan upp á
pallborðið hjá islenzkum
poppblaðamönnum. Við tök-
um eina unga hljómsveit fyrir
i dag: hljómsveitina Birtu,
sem er um margt athyglisverð
hljómsveit.
Um aðrar skoðanir bréf-
ritara ætlum viö ekki að tjá
okkur. Hins vegar væri fróð-
legt að heyra álit lesenda á
skoðunum I.G., og munum við
fúslega birta allt um þaö, — og
einnig sérhvert bréf um tón-
listarlegt efni, sem okkur
berzt. Utanáskriftin er:
Timinn, c/o Gsal, Edduhúsinu
v/Lindargötu. Rvik.
Vegna sifellt aukinna viðskipta
og langrar reynslu okkar á
Kanaríeyjum getum við boðið
ferðir þangað á besta fáanlega
verði. Þannig kostar 2ja vikna
ferS nú frá krónum 28.800 og
3ja vikna ferð kostar frá krón-
um 31.400. Við bjóðWn einnig
hópafslátt, sem* nemur 2.500
krónum á mann ef um er að
ræða 30 manna félagshóp eða
stærri.
Þetta hagstæða verð gildir jafnt
fyrir alla okkar viðskiptavini.
Upplýsingar um Kanaríeyjaferðir hjá skrifstofum
flugfélaganna og umboðsmönnum þeirra
Electrolux