Fréttablaðið - 11.01.2005, Page 6
6 11. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
IMG Gallup:
Stendur við könnunina
SKOÐANAKÖNNUN Forsvarsmenn
IMG Gallup höfnuðu í gær ávirð-
ingum þriggja ráðherra um skoð-
anakönnun sem fyrirtækið fram-
kvæmdi um stuðning við hernað-
araðgerðir í Írak.
Eftir fundinn sendu forsvars-
menn fyrirtækisins frá sér til-
kynningu þar sem segir að könn-
unin hafi verið gerð að frum-
kvæði IMG Gallup og hún hafi
birst í janúarhefti Þjóðarpúlsins,
mánaðarlegs fréttabréfs fyrir-
tækisins. „IMG Gallup stendur að
öllu leyti við það sem þar birtist.
Af gefnu tilefni skal tekið fram að
óheimilt er að birta niðurstöður
kannana úr Þjóðarpúlsi Gallup í
auglýsingum án sérstakrar heim-
ildar, eins og þar er skýrt tekið
fram.“
Halldór Ásgrímsson forsæt-
isráðherra hefur sagt spurning-
una sem borin var upp villandi.
Davíð Oddsson utanríkisráð-
herra sagði í viðtali við Stöð 2 á
laugardag að spurningin hefði
verið svo vitlaus að hann hefði
sjálfur átt í vandræðum með að
svara henni. Þá hefur Björn
Bjarnason undrast á heimasíðu
sinni þá ákvörðun Gallups að
spyrja spurningarinnar og að
óljóst sé um hvaða lista sé verið
að spyrja.
- ss
Sigur Abbas í höfn en
erfitt starf framundan
Mahmoud Abbas vann yfirburðasigur í palestínsku forsetakosningunum. Nú liggur fyrir
honum að semja frið við Ísraela og fá palestínska vígamenn til að láta af ofbeldi gegn
Ísraelum. Kjöri hans var fagnað innanlands og utan.
PALESTÍNA, AP „Ég helga þennan
sigur sál Jassers Arafat, þjóð
okkar og píslarvættum,“ sagði
Mahmoud Abbas, leiðtogi PLO,
þegar hann fagnaði sigri í palest-
ínsku forsetakosningunum. Kosn-
ingu hans var vel tekið og liggur
nú fyrir honum að hefja friðarvið-
ræður við Ísraela og fá palest-
ínska vígamenn til að láta af
ofbeldisverkum.
Abbas sigraði með miklum
yfirburðum líkt og skoðanakann-
anir höfðu gefið til kynna. Hann
fékk þrefalt fleiri atkvæði en
næsti maður, Mustafa Barghouti,
sem sjálfur fékk margfalt meira
fylgi en hinir frambjóðendurnir
fimm. Sigri hans var fagnað á göt-
um palestínskra borga í fyrrinótt.
Hleypt var af byssum upp í loftið,
bílflautur þeyttar og fólk dansaði
og söng á götum úti merkt litum
Fatah-hreyfingar Abbas.
Ekki liggur fyrir hversu mikil
kjörsókn var þar sem nokkur vafi
lék á því hversu margir væru
kosningabærir. Hamas-samtökin
kvörtuðu undan framkvæmd
kosninganna, einkum því að kjör-
staðir voru opnir tveimur tímum
lengur en upphaflega stóð til.
Erlendir þjóðarleiðtogar fögn-
uðu kjöri Abbas og binda vonir við
að það verði til þess að koma megi
á friði milli Ísraela og Palestínu-
manna. „Ég hlakka til að bjóða
hann velkominn hingað til Was-
hington ef hann kýs að koma
hingað,“ sagði George W. Bush
Bandaríkjaforseti.
„Ef hann leggur sig allan fram
um að berjast gegn hryðjuverkum
er það nóg til að við hefjum aftur
viðræður,“ sagði Shimon Peres,
leiðtogi Verkamannaflokksins,
sem er á leið í ísraelsku ríkis-
stjórnina. Hann ræddi við Abbas í
síma, óskaði honum til hamingju
með kjörið og sagðist reiðubúinn
að gera allt í sínu valdi til að
hjálpa honum.
Forysta Hamas lýsti því yfir að
þrátt fyrir efasemdir um fram-
kvæmd kosninganna myndu sam-
tökin vinna með Abbas.
Helstu verkefni Abbas eru að
semja við Ísraela um framtíð
Palestínu og að fá herská samtök
Palestínumanna til að láta af of-
beldi. Markmið hans í viðræðum
við Ísraela er stofnun sjálfstæðs
Palestínuríkis, lausn palestínskra
fanga úr ísraelskum fangelsum og
lausn fyrir Palestínumenn sem
flýðu heimili sín á landsvæðum
sem nú tilheyra Ísrael. Það síðast-
nefnda fer sérstaklega fyrir
brjóstið á Ísraelum. ■
Bechtel:
Glúmur
hættur
ATVINNULÍF Glúmur Baldvinson
hefur látið af starfi sem forstöðu-
maður almannatengsla hjá
Bechtel vegna byggingar álvers í
Reyðarfirði.
Glúmur sagði að uppsögn hans
hefði borið mjög brátt að en hon-
um bauðst starf hjá undirstofnun
Matvælaáætlunar Sameinuðu
þjóðanna. Verður hann upplýs-
ingafulltrúi í verkefni á vegum
stofnunarinnar sem felst í að
samræma flutningsleiðir til og
frá hamfarasvæðunum í Asíu.
Glúmur sagði upp starfi sínu í
fullri sátt við Bechtel.
- kk
Reglugerð í smíðum:
Búnaður
vari við leka
SJÁVARÚTVEGUR Væntanleg er
reglugerð frá samgönguráðu-
neytinu um búnað til að vara við
leka í fiskiskipum, að því er fram
kemur á vef Landssambands
íslenskra útvegsmanna.
Reglugerðin á að miða að því
að draga úr hættu á að fiskiskip
sökkvi vegna óvænts leka, en sjó-
slysum af þeim ástæðum er sagt
hafa farið fjölgandi undanfarin
misseri. Reglugerðin er í sam-
ræmi við tillögur LÍÚ og gerir ráð
fyrir að í skipum sem eru 15
metrar eða lengri verði settur upp
viðvörunarbúnaður í lest og vélar-
rúmi sem gerir viðvart í brú ef
sjór flæðir inn í þessi rými. - óká
FYLGI FRAMBJÓÐENDA
Mahmoud Abbas 62,3%
Mustafa Barghouti 19,8%
Fimm aðrir samtals 17,9%
■ STJÓRNSÝSLA
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Vegagerð:
Breytingar á
Hellisheiði
SAMGÖNGUR Ákveðið hefur verið
að hafa þrjár akreinar frá Litlu
kaffistofunni að Hveradala-
brekku og mislæg gatnamót við
Þrengslaafleggjara á Hellisheiði,
að því er sunnlenska vikublaðið
Glugginn greinir frá.
Fram kemur að bjóða eigi út
framkvæmdirnar á næstu dögum,
en haft eftir Svani Bjarnasyni,
svæðisstjóra Suðursvæðis Vega-
gerðarinnar að beðið sé endanlegs
svars Skipulagsstofnunar varð-
andi matsskyldu, auk þess sem
verið sé að leggja lokahönd á út-
boðsgögn.
Framkvæmdir eiga að hefjast í
febrúar eða mars og ljúka í októ-
ber á þessu ári.
- óká
LÖGFRÆÐINGUR RÁÐINN
Páll Þórhallsson hefur verið ráð-
inn lögfræðingur á aðalskrifstofu
forsætisráðuneytisins samkvæmt
auglýsingu sem birt var í desem-
berbyrjun. Undanfarin sex ár
hefur Páll starfað sem lögfræð-
ingur hjá Evrópuráðinu og meðal
annars starfað við stefnumótun-
arvinnu á sviði opinberrar stjórn-
sýslu, að því er fram kemur í til-
kynningu ráðuneytisins.
Ertu búinn að gefa pening í
söfnun Rauða Krossins vegna
hamfaranna í Asíu? ?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að nota andvirði Símans í
að byggja nýtt sjúkrahús?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
50,2%
49,8%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
STJÓRNMÁL Dómsmálaráðuneytið
auglýsti til umsóknar þær fjórar
milljónir króna sem ráðuneytið
hefur til ráðstöfunar vegna starfa
að mannréttindamálum. Tekið er
fram í auglýsingunni að fénu
verði úthlutað á grundvelli um-
sókna, en þær verða að berast
ráðuneytinu fyrir næstu mánaða-
mót.
Guðrún Dögg Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Mannréttinda-
skrifstofu Íslands, segir að Mann-
réttindaskrifstofan hafi þegar fyrir
áramót lagt inn umsókn til ráðu-
neytisins þegar ljóst hafi verið að
ekki væri gert ráð fyrir
fjárveitingu til stofnunarinnar á
fjárlögum, líkt og verið hafi fyrri ár.
Upphæðin sem ráðuneytið aug-
lýsir nú til umsóknar er ámóta og
sú sem Mannréttindaskrifstof-
unni hefur verið úthlutað á fjár-
lögum síðustu ár. Ákvörðunin um
að úthluta Mannréttindaskrifstof-
unni ekki rekstrarfé á fjárlögum
var harðlega gagnrýnd fyrir ára-
mót og benti framkvæmdastjóri
skrifstofunnar þá á að ámóta
skrifstofur séu í nágrannalöndun-
um reknar með tugi starfsmanna,
meðan hér sé varla hægt að halda
úti einum. - óká
DAVÍÐ ODDSSON
IMG Gallup hefur hafnað ávirðingum
þriggja ráðherra vegna skoðunakönnunar
um stuðning við hernaðaraðgerðir í Írak.
GUÐRÚN DÖGG GUÐMUNDSDÓTTIR
Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu
Íslands segir að þegar hafi verið sótt um fé
til reksturs skrifstofunnar til Dómsmála-
ráðuneytisins þegar ljóst hafi verið orðið
að Mannréttindaskrifstofunni var ekki út-
hlutað fé á fjárlögum líkt og fyrri ár.
Dómsmálaráðuneytið:
Auglýsir fé til mannréttindamála
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
MAHMOUD ABBAS
1935 Fæddur í Safed í Galíleu sem þá var hluti af Palestínu undir hernámi Breta en
er nú hluti Ísraels.
1948 Flýr ásamt fjölskyldu sinni undan stríðinu sem braust út þegar Ísraelsríki varð
til, fjölskyldan kom sér fyrir í Sýrlandi.
1964 Tekur þátt í því með Jasser Arafat að stofna
Frelsissamtök Palestínu, PLO.
1980 Skipaður yfirmaður alþjóðasamskiptadeild-
ar PLO.
1993 Óslóarsamkomulagið undirritað, Abbas er
talinn helsti arkitekt þess.
1995 Snýr aftur til Palestínu eftir friðarsamkomu-
lag Ísraela og Palestínumanna
1996 Kosinn framkvæmdastjóri framkvæmda-
nefndar PLO.
2003 Valinn fyrsti forsætisráðherra Palestínu, seg-
ir af sér eftir fjóra mánuði vegna deilna við
Jasser Arafat.
2004 Valinn formaður PLO eftir andlát Arafats.
2005 Kjörinn forseti Palestínu.
Mahmoud Abbas hóf afskipti af frelsisbaráttu Palestínumanna með því að fá Palestínu-
menn í útlegð í Katar til liðs við málstaðinn síðla á sjötta áratugnum. Hann varð fljótt
einn helsti fjáröflunarmaður PLO og tók að sér öryggismál snemma á áttunda áratugn-
um. Undir lok áratugarins hóf hann viðræður við ísraelska vinstrimenn og friðarsinna.
Abbas er kvæntur og á tvo uppkomna syni. Einn sonur hans lést í fæðingu og tók
Abbas nafn hans, Abu Mazen, sem auknefni sitt.
Heimildir: AP, BBC.
KJÖRI ABBAS FAGNAÐ
Félagar í Fatah-hreyfingunni fögnuðu sigri Mahmoud Abbas í palestínsku forsetakosning-
unum. Sigur Abbas var öruggur en verkefnin sem hann stendur frammi fyrir eru erfið, líkt
og hann sagði í sigurræðu sinni.
ÍSAFJÖRÐUR
Bæjarfulltrúi telur að bæjarsjóður verði
tómur árið 2007 miðað við fjárhagsáætlun
meirihluta bæjarstjórnar Ísafjarðar.
Ísafjörður:
Vill fækka
starfsfólki
SVEITARSTJÓRNARMÁL Miðað við fjár-
hagsáætlun meirihluta bæjar-
stjórnar Ísafjarðar bendir allt til
þess að bæjarsjóðurinn verði
tómur árið 2007 að mati Magnúsar
Reynis Guðmundssonar, bæjar-
fulltrúa Frjálslyndra og óháðra.
Bæjarins besta greinir frá því
að Magnús vilji grípa til róttækra
aðgerða. Meðal annars vill hann
fækka stöðugildum hjá bænum
um þrjátíu á tveimur árum og
bjóða út rekstur skíðasvæðisins í
Tungudal. Þá leggst hann gegn því
að fasteignaskattar og ýmis gjöld
verði hækkuð eins og meirihlut-
inn hefur lagt til. ■
HJÁLPUÐU FÓLKI Í ÓFÆRÐ
Óvenjumikið snjóaði í Vest-
mannaeyjum í fyrrinótt og að
sögn lögreglunnar hefur ekki
verið meiri snjór í Heimaey í
nokkur ár. Lögreglan þurfti að
aðstoða fólk við að komast til
vinnu á milli klukkan sjö og átta í
gærmorgun en allt gekk áfalla-
laust fyrir sig.