Fréttablaðið - 11.01.2005, Side 10
10 11. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
AMMAN OG BARNABARNIÐ
Flóttamönnum sem hafast við í búðum í
Calang í Aceh-héraði í Indónesíu fjölgar
dag frá degi. Þessi aldraða kona hélt
barnabarni sínu að sér þar sem hún hafð-
ist við í hreysi sínu.
GUANTANAMO, AP Þrátt fyrir að fá
verk Bandaríkjastjórnar hafi
mætt jafn harðri gagnrýni og
fangabúðirnar sem komið var upp
í Guantanamo fyrir þremur árum
virðist sem þær standi til fram-
búðar. Uppi eru áform um að
byggja þar fangelsi fyrir andvirði
1.600 milljóna króna og geðdeild
fyrir rúmar hundrað milljónir
króna.
Fangabúðirnar voru opnaðar
11. janúar 2002 og var yfirlýst
markmið með þeim að þar yrðu
geymdir hættulegustu hryðju-
verkamennirnir sem fangaðir voru
í Afganistan og þeir sem talið var
að byggju yfir upplýsingum um
hryðjuverkastarfsemi. Þeir sem
þangað voru fluttir voru vistaðir
án undangengins dóms eða ákæru
og neitað um þjónustu lögmanns.
Þetta hefur sætt gagnrýni frá
mannréttindasamtökum og öðrum
sem láta sig málið varða.
„Þetta minnir á lélegan vestra.
Föngum er haldið í fangelsi þar til
dómarinn kemur og á meðan smíða
menn gálgana,“ sagði Charlie
Swift, flotaforingi og verjandi eins
þeirra sem haldið er í Guantana-
mo, Salim Ahmed Hamdan.
Í dag eru 550 manns frá 42 ríkj-
um haldið í Guantanamo. Fæstir
þeirra eru taldir búa yfir gagn-
legum upplýsingum en dvelja þó
væntanlega lengi enn í Guantana-
mo, sumir vegna þess að málsmeð-
ferð þeirra hefur tafist, aðrir
vegna þess að þeir eru taldir
hættulegir Bandaríkjunum eða
bandamönnum þeirra. ■
FÓRNARLAMB FUGLAFLENSU
Sextán ára stúlka lést af völdum
fuglaflensu á sjúkrahúsi í Ho Chi
Minh-borg, höfuðborg Víetnam,
síðasta laugardag. Hún er þriðja
manneskjan sem deyr af völdum
sjúkdómsins á innan við tveimur
vikum. Veikin hefur kostað 23
Víetnama og 12 Taílendinga lífið
á einu ári.
MANNSKÆTT UMFERÐARSLYS
57 manns létu lífið þegar öku-
maður rútu missti stjórn á henni
með þeim afleiðingum að hún
steyptist út í áveituskurð í
Karnataka á Indlandi. Níu manns
var bjargað upp úr skurðinum.
HRAPAÐI TIL BANA Tæplega fert-
ugur Norðmaður lét lífið þegar
hann hrapaði til bana í svifflugs-
keppni í Ástralíu. Maðurinn átti í
erfiðleikum með flugtak og lést á
vettvangi.
LANDBÚNAÐUR Ekki hefur verið
reiknað út hver hækkun raf-
orkuverðs til garðyrkjubænda
verður vegna breytinga á raf-
orkulögum, að sögn Drífu Hjart-
ardóttur, formanns landbúnað-
arnefndar. Garðyrkjubændur
hafa hingað til notið afsláttar
hjá Landsvirkjun, en með
breyttum lögum má ekki lengur
selja raforku á mismunandi
verði, eftir því til hvers raf-
magnið er notað. Auk þessa af-
sláttar fá garðyrkjubændur
framlag úr ríkissjóði til að
niðurgreiða rafmagn. Drífa seg-
ir því flókið mál að reikna út
hækkun raforkuverðs til garð-
yrkjubænda, en málið verði
örugglega leyst og þeir verði
ekki látnir sitja uppi með 30-100
prósent hækkun.
Helgi Bjarnason, skrifstofu-
stjóri orku- og stóriðjumála í
Iðnaðarráðuneytinu segir að á
allra næstu dögum muni skýrast
hver hækkunin verði fyrir ein-
staka notendahópa, svo sem þá
sem notast við rafhitun. Í lok
þessarar viku ætti að skýrast
hver hækkunin verður hjá
garðyrkjubændum. Í næstu viku
mun svo koma í ljós hver
hækkunin verður hjá fiskeldis-
fyrirtækjum. - ss
■ ASÍA
■ EYJAÁLFA
TÓMATARÆKTUN
Formaður landbúnaðarnefndar segir að
garðyrkjubændur muni ekki sitja uppi með
30-100 prósenta hækkun raforkuverðs.
Verðhækkanir á raforku:
Komið til móts við
garðyrkjubændur
RITSKOÐAÐ BRÉF FANGA
Alsírski fanginn Mustafa Ahmed fékk að skrifa fjölskyldu sinni í Pakistan bréf. Stærstur
hluti þess var ritskoðaður af yfirvöldum í fangelsinu áður en það var sent.
Þrjú ár síðan fangabúðirnar í Guantanamo opnuðu:
Stendur væntanlega
til frambúðar