Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2005, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 11.01.2005, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 11. janúar 2005 Dreitill er venjuleg léttmjólk sem hefur verið D-vítamínbætt. Úr tveimur glösum af Dreitli fæst allt að helmingur af ráðlögðum dagskammti D-vítamíns. D-vítamín er nauðsynlegt til að kalkið úr fæðunni nýtist sem skyldi. Samkvæmt rannsóknum á mataræði er meðalneysla D-vítamíns undir ráðlögðum dagskammti í nær öllum aldurshópum. Kannanir hafa t.d. sýnt að íslensk ungmenni fá ekki nægilegt D-vítamín. D-vítamínbætta léttmjólkin Dreitill var markaðssett fyrir fjórum árum eftir að Manneldisráð Íslands óskaði eftir því að léttmjólk væri D-vítamínbætt. Dreitill er til í eins lítra og ¼ lítra umbúðum. Dreitill lækkar í verði! – fyrir alla fjölskylduna Nú hefur heildsöluverð á Dreitli lækkað – Dreitill kostar það sama og Léttmjólk og Nýmjólk H VÍ TA H Ú SI Ð / S ÍA NETIÐ Allt er falt ef rétt verð er í boði. Andrew nokkur Fisher frá Omaha í Nebraska, Bandaríkjun- um, býður nú auglýsendum ennið á sér til sölu á uppboðsvefnum eBay. Fyrir rétt verð geta fram- leiðendur eða seljendur vöru og þjónustu fengið að setja vöru- merki sitt á ennið á honum í heilan mánuð í formi gervihúð- flúrs. Fisher sagði í samtali við BBC einu gilda hvert vörumerkið sé nema að hakakrossinn og talan 666, merki dýrsins í Opinberunar- bók Jóhannesar, koma ekki til greina. Viðtökurnar hafa ekki látið á sér standa, þegar hafa 39 tilboð borist og það hæsta er upp á ríf- lega tuttugu þúsund krónur. Aðrir eru þegar farnir að fylgja í fót- spor Fishers. Á eBay.com má nú sjá auglýsingu frá manni sem býður hvaða líkamshluta sem er fyrir varanlega húðflúrun á vöru- merki. Hann verðleggur húð sína hins vegar örlítið hærra, plássið undir auglýsinguna kostar 31 milljón króna. Dýr myndi Hafliði allur. - shg Uppboð á eBay: Auglýsingar á ennið HAMFARIR Stærsta neyðaraðstoð sögunnar er nú í fullum gangi eftir hamfaraflóðin miklu við Indlandshaf. UNIFEM ítrekar nauðsyn þess að ekki verði litið fram hjá konum í neyðar- og uppbyggingarstörfum. Að sögn Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastýru UNIFEM á Íslandi, er full ástæða til að huga sérstaklega að konum í því starfi sem nú stendur yfir. „Konur búa við óöryggi á hamfarasvæðun- um, það er ekki hægt að tryggja öryggi þeirra. Að þessu þarf að huga því þekkt er að ráðist er á konur og þær þvingaðar til kyn- lífsathafna í skiptum fyrir neyð- araðstoð í flóttamannabúðum. Einnig er það einfaldlega stað- reynd að konur hafa á þessum svæðum haldið uppi samfélögum sínum og þess vegna hafa þær bæði þekkingu og getu til að byggja upp samfélagið að nýju, félagslega, efnahagslega og til- finningalega.“ Í yfirlýsingu Noeleen Heyzer, framkvæmda- stjóra UNIFEM, frá því fyrir helgi kemur fram að 70 prósent af íbúum Aceh-héraðs á Súmötru séu konur og þær gegna lykil- hlutverki í sínum samfélögum. Birna segir að UNIFEM sé þessa dagana að knýja á um að ríkisstjórnir og hjálparsamtök starfi með kvennahreyfingum á hamfarasvæðunum, það sé ein- faldlega beggja hagur. Hvað sjálfa neyðaraðstoðina varðar segir Birna að Mann- fjöldastofnun Sameinuðu þjóð- anna sé um þessar mundir að safna fé til að mæta sérstaklega heilbrigðis- og hreinlætisþörfum kvenna á flóðasvæðunum, til dæmis með útdeilingu dömu- binda. Þessir einföldu hlutir vilja því miður oft gleymast. - shg Neyðaraðstoð: Huga þarf að þörfum kvenna BIRNA EINARSDÓTTIR „Tryggja þarf að konur geti átt börn í öruggu og heilnæmu umhverfi.“ AUGLÝSINGAENNI Einhvern veginn svona gæti auglýsing sem prentuð er á enni litið út. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.