Fréttablaðið - 11.01.2005, Síða 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Atvinna 27 stk.
Bílar & farartæki 119 stk.
Heilsa 9 stk.
Heimilið 14 stk.
Húsnæði 24 stk.
Keypt & selt 17 stk.
Skólar & námskeið 6 stk.
Tilkynningar 4 stk.
Tómstundir & ferðir 3 stk.
Þjónusta 31 stk.
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagurinn 11.
janúar 11. dagur ársins 2005.
Reykjavík 11.03 13.36 16.09
Akureyri 11.10 13.20 15.31
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Einbeitir sér að náminu í vetur
Námskeið um vesturferðir
Íslendinga hefst á vegum Þjóð-
ræknisfélagsins 1. febrúar og í
tengslum við það er Vesturfara-
setrið á Hofsósi heimsótt. Nám-
skeiðið er góður undirbúningur
fyrir ferðir á vegum félagsins til
Vesturheims en þrjár slíkar eru á
dagskrá í sumar. Námskeiðið
stendur í átta vikur og er á
þriðjudagskvöldum klukkan
19.30-21.30 í Gerðubergi í
Reykjavík og kostar kr.10.000.
Nánari upplýsingar um ferðirnar
og námskeiðið eru á vefsíðunni
inl.is, hjá Jónasi Þór í síma 554
1680 og í tölvupósti
jtor@mmedia.is.
Framkomunámskeið með
Eddu Björgvins leikkonu er með-
al þess sem Endurmenntunar-
stofnun
Háskóla
Íslands
býður upp á
á vorönn í
samvinnu
við Versl-
unar-
mannafélag
Reykjavíkur. Það er ætlað þeim
sem vilja losna við feimni og
koma fram af öryggi fyrir framan
hóp af fólki. Farið er meðal ann-
ars í framkomu, tjáningu og
samspil ræðumanns og um-
hverfis. Þetta er níu kennslu-
stunda námskeið sem hefst 10.
febrúar og kostar 20.500. Nám-
skrá Endurmenntunar er á
netinu: www.endurmenntun.is
og er hægt að skrá sig þar og í
síma 525 4444.
Í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti eru 130 áfangar í
boði í kvöldskólanum. Þar eru
kenndar allar grunngreinar fram-
haldsskóla og einnig eru þar
áfangar fyrir sjúkraliða, í rafvirkj-
un og listum. Í kvöldskólanum
eru að jafnaði 7-800 nemendur
á öllum aldri, sumir eru að
koma aftur til náms eftir hlé en
aðrir að flýta fyrir sér í dagskól-
anum. Kennslan er útfærð eins
og í dagskólanum nema hvað
farið er hraðar yfir námsefnið í
kvöldskólanum þannig að press-
an er ívið meiri. Áföngunum lýk-
ur með prófum og verkefnaskil-
um. Hægt er að skrá sig á net-
inu á síðunni www.fb.is
Skráning í fjarnám í Fjöl-
brautaskólanum í Ármúla stend-
ur yfir þessa dagana og lýkur 17.
janúar. Fjarnám í FÁ hófst haust-
ið 2001 en þá voru 49 nemend-
ur skráðir. Á haustönn 2004
voru 1.113 nemendur skráðir og
aðsókn var svo mikil að hafna
þurfti um 200 manns. Nú á vor-
önn 2005 stefnir í metaðsókn.
Alls eru nú í boði 126 áfangar á
framhaldsskólastigi í fjarnáminu.
Námskröfur eru þær sömu og í
dagskóla, sömu kennarar,
kennslubækur, verkefni og sam-
bærileg próf. Kennsla fer fram í
gegnum WebCT, sem er
kennsluumhverfi á netinu.
Kennsla hefst 24. janúar og próf
fara fram í maí. Nú þegar hefur
Fjölbrautaskólinn við Ármúla út-
skrifað nokkra nemendur sem
eingöngu hafa stundað fjarnám
við skólann.
nam@frettabladid.is
Björn Bragi býr sig undir stúdentspróf í vor af alþjóðabraut í Versló og vinnur að lokaverkefni um viðskipti
Íslands og Búlgaríu.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í námi
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Það er auðvelt
að fara í
peysuna sína.
Maturinn á að
vera framan á!
Rýnt í texta Megasar
BLS. 3
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Verslunarskólaneminn Björn
Bragi Arnarson vakti athygli í
fyrravetur er hann var kjörinn
„Ræðumaður Íslands“ eftir sig-
ur í Morfís og var einnig í sigur-
liðinu í Gettu betur. Nú er hann
á lokaönn í skólanum.
Björn Bragi stefnir að stúdents-
prófi frá Versló í vor og kveðst
ætla að taka því rólega í félagslíf-
inu í ár. „Ég fékk minn skammt í
fyrra,“ segir hann og spurður
hvort það hafi komið niður á nám-
inu svarar hann: „Það kom dálítið
niður á mætingunni og ég gat ekki
lært mikið á tímabili en náði því
upp með vorinu,“ segir hann. Samt
kveðst hann fylgjast vel með
Gettu betur og að sjálfsögðu
styðja sitt fólk – en bara sem
áhorfandi þetta árið.
Björn Bragi er á alþjóðabraut í
Verslunarskólanum og er að hefja
undirbúning að lokaverkefni. „Við
tökum eitt land fyrir og fjöllum
um viðskipti Íslands við það. Ég
valdi Búlgaríu og er að byrja að
setja mig inn í ýmis mál sem
tengjast því. Það er mjög áhuga-
vert. Hver veit nema ég drífi mig
þangað í framhaldinu.“
Þó svo að Björn Bragi búist síð-
ur við að fara í viðskiptatengt nám
þegar hann snýr sér að háskóla er
hann ánægður með val á fram-
haldsskóla. „Mér leist best á
Versló þegar ég var að kynna mér
skólana svo ég skellti mér í hann
og sé ekki eftir því. Aðstaðan er
svo góð hérna, kennararnir fínir
og svo hefur maður eignast frá-
bæra vini. Þetta fer allt mjög vel í
mig!“ segir hann brosandi og
þvertekur fyrir að hafa valið
kólann til að komast inn í söngleik-
ina enda hafi hann aldrei tekið þátt
í þeim.
Þegar farið er að ræða um
myndatöku vegna viðtalsins
kemur í ljós að Björn Bragi er að
fara í aðra myndatöku nánast á
sama tíma. Sú er vegna lagakeppni
sem verður í skólanum eftir tvær
vikur. „Já, ég laumaði inn einu
lagi,“ segir hann rólega. Keppnis-
skapið er greinilega enn til staðar.
gun@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA