Fréttablaðið - 11.01.2005, Síða 31
Hamast
miki› í
vinnunni
„Vinnan er mín líkamsrækt, því í
svona söngleik hamast maður
svo mikið á sviðinu og hleypur
upp og niður stiga,“ segir Esther
Talía Casey leikkona, sem leikur
nú í söngleiknum Oliver Twist á
Akureyri. „Ég reyni að sjálfsögðu
að passa mig hvað ég set ofan í
mig en það vill oft fara úr skorð-
um þar sem ég borða óreglu-
lega,“ segir Esther Talía en fyrir
sýningu segist hún ekkert geta
borðað.
„Svo er það bara gamla góða
sundið sem reynist mér vel og ég
labba mjög hratt að eðlisfari,“
segir Esther og hlær.
„Ég hef ekki getað tamið mér
að stunda reglulega líkamsrækt
og kaupi mér ekki kort í líkams-
ræktarstöð því ég veit ég myndi
aldrei mæta,“ segir Esther.
Hvað andlega heilsu varðar
telur Esther að góður göngutúr
með músík í eyrunum sé góð
orkuhleðsla, en umgengni
hennar við fólk viðheldur and-
legri heilsu hennar. „Það er svo
gaman hérna hjá okkur á Akur-
eyri, við búum öll saman á
hótelinu. Mér finnst gaman að
vera í kringum mikið af fólki,
það heldur mér gangandi,“ seg-
ir Esther Talía.
Rannsókn sem ger› var á 15 ára og 9 ára börnum s‡nir a›
hreyfing eykur a›eins flrek eldri barna.
Lítil hreyfing er talin vera helsta orsök offitu og ofþyngdar barna. Hreyfingarleysi er
vandamál sem fer sívaxandi bæði hérlendis og í nágrannaríkjum okkar en er einnig tal-
ið hafa áhrif á þrek barna. Greint er í nýjasta tölublaði Læknablaðsins frá rannsókn þar
sem leitast var við að meta þrek barna og kanna tengsl þess við hreyfingu og holdafar.
Rannsóknin var gerð á meðal 9 ára barna annars vegar og 15 ára barna hins vegar í
18 grunnskólum víðs vegar um landið.
Ein helsta niðurstaða rannsóknarinnar var sú að hreyfing hefur áhrif á þrek hjá 15
ára börnum en ekki 9 ára. Vegna minni hreyfingar 15 ára stúlkna þarf ákefðin að vera
meiri til að hafa áhrif á þrek heldur en hjá karlkyns jafnöldrum þeirra. Því feitari sem
börnin eru, því þrekminni eru þau og sterkt samband á milli þreks og holdafars undir-
strikar samspil þessara þátta og heilsufars.
Niðurstöðurnar sýndu einnig að þrek drengja er meira en hjá stúlkum og 15 ára
drengir hafa meira þrek en 9 ára drengir. Hins vegar var enginn munur á þreki 15 ára
og 9 ára stúlkna.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Líklegt er að þessir níu ára drengir hafi fengið aukið þrek þegar þeir verða
fimmtán ára.
firek barna auki› me› hreyfingu
{ HEILSA 2005 } 09
Borgartúni 24
Opið virka daga kl. 10–20
laugardaga kl. 10–16
Heilsuvörur
og matstofa
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/G
VA
esther talía casey }