Fréttablaðið - 11.01.2005, Qupperneq 40
„Ég get hvorki neitað því né játað
á þessum tímapunkti,“ segir
Torben Holm aðstoðarforstjóri
danska símafyrirtækisins TDC
um áhuga fyrirtækisins á að taka
þátt í einkavæðingu Símans.
Torben kom til landsins fyrir
helgi og segir að erindið hafi
verið að kynna sér sölu Símans.
„Það liggur hins vegar ekkert
fyrir um það hvort við munum
hafa áhuga á að taka þátt í kaup-
um á fyrirtækinu.“
TDC, eða Tele Danmark eins og
það hét áður, hafði áhuga á að
kaupa Símann síðast þegar ríkið
reyndi að selja fyrirtækið. Þá
voru þeir í samstarfi við Opin
Kerfi sem þá lutu stjórn Frosta
Bergssonar. Torben Holm segist
ekki hafa átt fund með Frosta sem
staddur er erlendis. „Við þekktum
vel til Símans fyrir þremur árum,
en sú þekking gildir ekki nú.“
Torben vill ekki tjá sig frekar um
hverja hann hitti hér á landi.
Innlendir og erlendir fjárfest-
ar hafa sýnt áhuga á kaupum á
Símanum. Stefán Jón Friðriksson
starfsmaður einkavæðingar-
nefndar staðfestir að fjárfestar
hafi sýnt áhuga, en ekki hafi verið
haldnir neinir formlegir fundir.
TDC styrkir hópinn
Ýmsir innlendir fjárfestar
hafa verið nefndir til sögunnar
sem hugsanlegir kaupendur að
kjölfestuhlut í Símanum. Meðal
þeirra eru Meiður sem er fjár-
festingarfélag bræðranna í
Bakkavör, Straumur og Burða-
rás. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er til umræðu
myndun hóps þar sem Meiður
færi með forystu í. Auk þeirra er
rætt um að VÍS og Straumur
komi að hópnum. Meiður og VÍS
eru meðal stærstu eigenda KB
banka. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins mun Torben Holm
hafa átt fund með KB banka í
ferð sinni og talið er hugsanlegt
að TDC skoði aðkomu að þessum
hópi. Komi Danirnir að hópnum
styrkir það hann í baráttu um
kaupin. Brynjólfur Bjarnason,
forstjóri Símans, situr í stjórn
Bakkavarar og meðal nánustu
samstarfsmanna hans er Orri
Hauksson sem er fyrrverandi að-
stoðarmaður Davíðs Oddssonar
og situr í stjórn Straums. Talið er
að forysta Sjálfstæðisflokksins
geti samþykkt Meið með fulltingi
Brynjólfs og Orra og að ef VÍS
komi að málinu sé velvilji Fram-
sóknarmanna tryggður. Ef við
bætist erlent fyrirtæki eins og
TDC sem greiði fyrir sinn hlut í
erlendri mynt er talið að erfitt
verði fyrir aðra hópa að keppa
um hylli seljendanna.
Ekkert formlegt liggur fyrir
um samstarf aðila við kaup á Sím-
anum.Fulltrúar þeirra sem áhuga
eru taldir hafa á þeim hlut sem
ríkið hyggst selja tala varlega.
Bent er á að ekki liggi enn fyrir
hvernig Síminn verði seldur og
með hvaða kvöðum. Verðið er
einnig lokuð bók og menn eru ekki
tilbúnir að leggja mikla vinnu í
undirbúning kaupa meðan verð og
kvaðir liggja ekki fyrir. Verð-
hugmyndir sem heyrast nefndar
eru allt frá 50 milljörðum upp í
75 milljarða fyrir fyrirtækið.
Morgan Stanley er ráðgjafi
einkavæðingarnefndar við kaup-
in og mun ljúka fyrsta hluta sinn-
ar vinnu í lok febrúar. Í fram-
haldinu verða leikreglur kynntar
og salan auglýst. Búist er við að
eiginlegt söluferli Símans hefjist
með vorinu. ■
Englar í FME
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, var fyrst ræðumanna á fjölsóttri ráðstefnu
Fjármálaeftirlitsins í gær. Hún lagði út af jólakorti
sem hún fékk frá Fjármáleftirlitinu. Á kortinu var
mynd af englum og jólastjörnunni og sagðist
Valgerður hafa hugsað um það þegar hún virti fyrir
sér kortið að myndin gæti verið táknmynd fyrir
starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Hún sagði að líta
mætti svo á að starfsmenn þess væru
englar sem gættu þess að mark-
aðurinn fengi að dafna og
blómstra undir leiðarljósi heil-
brigðra reglna á markað-
inum. Aðalræðumaður fundar-
ins, Howard Davies, gat þess í
upphafi sinnar ræðu að þetta
væri í fyrsta sinn sem hann hefði
heyrt starfsmönnum í fjármála-
eftirliti lýst sem englum.
Þeir væru vanir kaldari
kveðjum en svo.
Þorskastríði fyrirgefið
Davies gat þess einnig í upphafi ræðu sinnar að
þetta væri í fyrsta sinn sem hann kæmi til Íslands.
Hann er hins vegar langt í frá ókunnugur landi og
þjóð því eftir háskólanám var hans fyrsta starf að
fylgjast með samskiptum Íslands og Bretlands í
ráðuneyti. Hann sagðist hafa verið feginn að
sleppa inn til landsins þar sem hans helsta verk-
efni á sínum tíma hefði snúist um deilur Íslend-
inga og Breta – svokölluð þorskastríð. Davies gat
þess að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeft-
irlitsins, hefði líklega ekki boðið honum til lands-
ins hefði hann vitað um þessa skuggalegu fortíð.
Páll Gunnar sagði hins vegar í sinni ræðu að það
væri jafnt á komið með báðum. Páll Gunnar hafði
látið það eiga sig að nefna við gestinn að hann
væri mikill aðdáandi knattspyrnuliðs Manchester
United. Þetta hefði getað haft áhrif á ákvörðun
Davies þar sem hann er stuðningsmaður
Manchester City og hefði verið orðaður við for-
setastól í félaginu. Litlir kærleikar eru á milli
United og City.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.453
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 288
Velta: 2.421 milljónir
+0,52%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Íslandsbanki hefur lokið áreið-
anleikakönnun á BNbank og
voru niðurstöður fullnægjandi. Af
því leiðir, að skilyrði um niður-
stöður áreiðanleikakönnunar
hefur verið uppfyllt.
Skráð hefur verið hlutafjár-
hækkun SÍF að fjárhæð ríflega 52
milljónir að nafnverði sem aflað
var í hlutafjárútboði félagsins í
desember. Skráð hlutafé félagsins
á Aðallista Kauphallar Íslands
eftir hækkunina er kr. 5.768 millj-
ónir króna að nafnverði.
Nýherji hf. og KB banki hafa
komist að samkomulagi um að
viðskiptavakt KB banka á útgefnu
hlutafé Nýherja verði hætt tíma-
bundið. Samkomulagið gildir frá
deginum í gær.
20 11. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 38,20 +0,53% ... Atorka 5,82
+1,39% ... Bakkavör 26,10 +2,76% ... Burðarás 12,00 – ... Flugleiðir
10,35 +3,50% ... Íslandsbanki 11,15 +0,90% ... KB banki 471,00
+0,21% ... Kögun 47,00 – ... Landsbankinn 12,10 +0,41% ... Marel 49,00
+0,62% ... Medcare 6,05 +0,50% ... Og fjarskipti 3,48 +5,45% ... Sam-
herji 11,00 +0,92% ... Straumur 9,45 +1,07% ... Össur 77,00 +1,32%
Fjárfestar undirbúa kaup á Símanum
Og Vodafone 5,45%
Flugleiðir 3,50%
Bakkavör 2,76%
Síminn -5,88%
Hampiðjan -4,92%
SH -0,58%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Magasin í
höfn
Búið er að tryggja kaup íslenskra
fjárfesta á Magasin Du Nord. Yfir
80 prósent hluthafa hafa sam-
þykkt tilboð M
Holding sem er
í eigu Baugs,
Straums Fjár-
festingabanka
og B2B Hold-
ing. Auk þess
hefur M Hold-
ing tryggt sér
kauprétt að
13,5 prósenta
hlut til viðbót-
ar. Samkvæmt
reglum dönsku
kauphallarinn-
ar er kaupend-
um heimilt að innkalla það sem út
af stendur á tilboðsverðinu sem er
162,5 danskar krónur á hlut.
Danskir fjölmiðlar hafa dreg-
ið í efa fjárhagslegan styrk kaup-
enda og velt því fyrir sér hvort
tilboðið sé of lágt. Vegna þessa
telja kaupendurnir rétt að taka
fram að Kauphöllin í Kaup-
mannahöfn hafi sent frá sér bréf
þess efnis að hún hafi hvorki at-
hugasemdir við kaupin sem
mynduðu yfirtökuskylduna, né
yfirtökuskylduna.
Þórður Már Jóhannesson, for-
stjóri Straums, segir ánægjulegt
að þessi áfangi hafi náðst og nú
hefjist vinna við að vinna úr fjár-
festingunni.
Þeir sem gagnrýnt hafa kaupin
í Danmörku telja að reksturinn
hafi verið keyptur á lítinn sem
engan pening. Virði fasteigna
Magasin Du Nord standi undir
verðinu. Rekstur fyrirtækisins
hefur hins vegar ekki gengið sem
skyldi og verkefni kaupendanna
er að snúa honum á rétta braut.
- hh
EKKI FORMLEGUR ÁHUGI Torben Holm, aðstoðarforstjóri danska símafyrirtækisins
TDC, segir ótímabært að ræða um áhuga fyrirtækisins á kaupum á Símanum. Danirnir
höfðu áhuga fyrir þremur árum og ekki útilokað að þeir komi að kaupum á fyrirtækinu í
samstarfi við innlenda fjárfesta.
Enda þótt enginn hafi formlega lýst yfir áhuga á að kaupa Símann, þá eru margir að skoða verkefnið af alvöru.
Hugsanlegt er að danska fyrirtækið TDC sem áður var ríkisfyrirtækið Tele Danmark, muni koma að hópi sem
hyggst taka þátt í einkavæðingu Símans.
HAFLIÐI HELGASON
BLAÐAMAÐUR
BAKSVIÐS
SALA SÍMANSKAUPIN TRYGGÐBirgir Þór Bieltveldt
sem rekur Dominos
pizzu í Kaupmanna-
höfn, er einn kaup-
enda Magasin Du
Nord.