Fréttablaðið - 11.01.2005, Qupperneq 48
Ungur píanóleikari Víkingur Heiðar
Ólafsson, hélt einleikstónleika í
Salnum í Kópavogi s.l. sunnudags-
kvöld. Víkingur hefur undanfarin ár
verið við nám erlendis. Íslenskir tón-
listarunnendur höfðu fengið smjör-
þefinn af leik hans áður, meðal ann-
ars með Sinfóníuhljómsveit Íslands,
en þetta voru fyrstu einleikstónleikar
hans hér á landi og má því segja að
hann hafi debuterað þetta kvöld.
Á efnisskránni voru fjögur verk í
þessari röð; Krómatísk fantasía og
fúga í d moll eftir J.S. Bach, Kreisleri-
ana op. 16 eftir Robert Schumann, 15
bændadansar eftir Béla Bartok og
Fantasía „ Wanderer“ í C dúr eftir
Franz Schubert. Öll eru þessi verk
viðamikil, krefjandi og fullkomin há-
menning, svo notað sé vinsælt
skammaryrði í nútímanum. Skipun
þeirra á efnisskránni í heild veitir
ávæning af sinfónísku sónötuformi,
þar sem ástarórar Schumanns hafa
hlutverk hæga kaflans og bænda-
dansar Bartoks skertsósins. Þótt verk-
in séu ólík og myndi afar fjölbreytta
heild, eiga þau það þó sameiginlegt
að öll eru þau fantasíur, hvert með
sínum hætti og hafa yfir sér andblæ
ævintýrisins. Hér gildir því hið sígilda
lögmál um fjölbreytnina í einingunni.
Menn höfðu fyrir þessa tónleika
gert sér miklar vonir um Víking
Heiðar og undir þeim stóð hann með
glæsibrag. Tækni hans er óaðfinnan-
leg og allt hljómaði jafn greinilega,
það auðvelda sem það erfiða. Túlkun
hans á þessum verkum bar vitni
skýrri listrænni hugsun, þeirri sömu
og lýsir sér í efnisvali og skipun efnis-
skrár, og næmni til að koma hugsun-
inni til skila. Slík túlkun er óvenjuleg
hjá svo ungum manni. Hvert verk
fékk sinn lit og sína meðferð. Ef til vill
verða þessir tónleikar eftirminni-
legastir fyrir það hve lítríkir þeir voru,
og má virðast einkennilegt að nota
þau orð um píanó, sem að allri gerð
er vélrænast hljóðfæra. Tilþrif Víkings
í Wanderer-fantasíunni, svo dæmi sé
tekið, voru slík að kalla má eins kon-
ar lokasönnun fyrir því að það verk er
í rauninni sinfónía fyrir einleikspíanó,
þar sem hljómsveitarútsetningin er
túlkun píanóleikarans.
Þegar túlkunin er skýr veitist hlust-
endum sá lúxus að velta fyrir sér val-
kostum. Yfirleitt var túlkun Víkings í
rómantískari kantinum, sem var vel
við hæfi efnisins. Þó er í huga undir-
ritaðs spurning um Bach að þessu
leyti. Ekki er fyrir að synja að Krómat-
íska fantasían er hárómantísk að inn-
taki, en mörgum finnst stíllinn njóta
sín best í hlutlægri útfærslu, einkum
hvað hljóðfall varðar.
Það hjálpaði til að gera þessa tón-
leika ánægjulega að hljómburður í
Salnum virðist henta einleikspíanói
mjög vel. Hann er nógu ómríkur til að
gefa hljómnum fallegan blæ, án þess
að spilla skýrleika. Húsið var troðfullt
og svo margar blómarósir með blóm-
vendi spruttu upp í lokin að við lá að
hinn ungi píanóleikari yrði undir við
dynjandi lófaklapp áheyrenda. Meðal
aukalaga var fallegt lag sem Víkingur
hefur sjálfur samið. Tilefni er til að
óska honum til hamingju með þessa
glæsilegu tónleika og velfarnaðar í
framtíðinni.
28 11. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
EKKI MISSA AF…
Mósaík í
sjónvarpinu
í kvöld, þar
sem fylgst
verður með
Stranda-
manninum
Guðjóni Kristinssyni sem mótar
margbrotin listaverk úr náttúru-
legum efnivið, kíkt inn á æfingu í
Salnum þar sem Salonhljómsveit
Sigurðar Ingva Snorrasonar undir-
býr sig fyrir nýárstónleika, dansar-
inn Gunnlaugur Egilsson heim-
sóttur og tvíeykið Icelandic Sound
Company flytur tónverk fyrir raf-
gítar og stærstu slagverksgræjur
landsins...
Sýningunni Textíl List í Lista-
safni Íslands Kjarvalsstöðum sem
lýkur 16. janúar.
Svanasöngur á heiði er yfirskrift ljóðatónleika sem
verða í Salnum í Kópavogi á fimmtudaginn. Tón-
leikarnir eru samstarfsverkefni Gerðubergs og Sal-
arins og eru haldnir í tilefni af útkomu hljómdisks-
ins Svanasöngur á heiði, með sönglögum tón-
skáldsins Sigvalda Kaldalóns. Jónas Ingimundar-
son píanóleikari
hafði umsjón með
útgáfunni, vali á
flytjendum og lög-
um.
Á tónleikunum
koma fram, auk
Jónasar, Ólafur
Kjartan Sigurðar-
son bariton, Sigrún
Hjálmtýsdóttir sópr-
an, Sigríður Aðal-
steinsdóttir mezzó-
sópran, Sesselja
Kristjánsdóttir
mezzósópran, Jóhann
Friðgeir Valdimars-
son tenór og Snorri
Wium tenór. Tónleik-
arnir hefjast klukkan
20.00.
Kl.15.03 á Rás 1: Silfurplötur Iðunnar.
Árin 1935 – 1936 voru gefnar út á vegum Kvæða-
mannafélagsins Iðunnar um 200 stemmur á
hljómplötum. Síðastliðið haust kom út ritið Silf-
urplötur Iðunnar en með því fylgdu fjórir geisla-
diskar með endurgerð hljómplatnanna. Í þremur
þáttum á Rás 1 verða flutt dæmi um kveðskap
þeirra 13 kvæðamanna sem kváðu inn á silfur-
plöturnar auk þess sem fléttað verður saman
ýmsum fróðleik sem snertir þessa fornu skemmt-
an. Þættirnir eru frumfluttir á sunnudögum og
endurfluttir kl. 15.03 á þriðjudögum. Umsjónar-
maður er Arnþór Helgason.
menning@frettabladid.is
Kaldalónstónleikar í Salnum
Íslenski dansflokkurinn býð-
ur til fjölskyldusýninga
næstu tvo laugardaga.
Það er mikið um að vera hjá Ís-
lenska dansflokknum um þessar
mundir. Núna í febrúar verður
frumsýning á verki eftir Ernu
Ómarsdóttur og í mars á verki
eftir Helenu Jónsdóttur. Einnig
fer flokkurinn í stórt sýningar-
ferðalag, tekur á móti erlendum
danshópum í maí og stendur fyrir
Dansleikhússamkeppni, ásamt
Leikfélagi Reykjavíkur í júní.
Við Íslendingar höfum sjaldan
verið duglegir að sækja ballett-
sýningar – þótt það hafi vissulega
lagast töluvert á síðustu árum,
enda væri skömm að öðru þar sem
Íslenski dansflokkurinn nýtur
stöðugt meiri vinsælda og aðdá-
unar á erlendri grund. En núna
gefst heldur betur tækifæri til
þess að berja kúnst þessa frábæra
litla listahóps augum því
framundan eru fjölskyldusýning-
ar hjá Íslenska dansflokknum þar
sem sýnt verður eitt og annað
skemmtilegt.
„Við munum sýna þrjú verk
sem áður hafa verið sýnd,“ segir
Ólöf G. Söebech verkefnisstjóri
flokksins. „Það eru Bolti eftir
Katrínu Hall sem sýnt var í Lista-
safni Íslands á Listahátíð í maí
síðastliðnum en hefur aldrei áður
verið sýnt á sviði. Síðan verður
Match eftir Lonneke van Leth
sem var frumsýnt í október 2003.
Lonneke er hollensk og verkefnið
var fyrst samið fyrir Holland
Dans Festival. Þriðja verkið er
síðan Æfing í paradís eftir Stijn
Celis.
Þessum verkum var öllum tek-
ið mjög vel á þeim tíma sem þau
voru sýnd en sýningafjöldi var
takmarkaður og þeir því margir
sem hefðu viljað sjá þær en náðu
því ekki. Önnur ástæða fyrir því
að við völdum þessi verk til sýn-
inga á fjölskyldusýningum okkar
er sú að okkur finnst þau höfða til
mjög breiðs hóps. Sérstaklega
yngri kynslóðarinnar vegna þess
að í þeim er mikill leikur og
gleði.“
Ólöf segir Íslenska dansflokk-
inn ekki hafa boðið til fjölskyldu-
skemmtunar áður. Hins vegar
hafi verið sett upp sérstök barna-
verk, til dæmis Auðunn og
Ísbjörninn. „Við höfum reynt að
sinna virku barnastarfi en þetta
er nýtt sem við erum að prófa.
Okkur langar til þess að geta
boðið börnum í leikhús til þess að
kynnast dansmenningunni. Sýn-
ingar Íslenska dansflokksins hafa
hingað til að mestu verið á kvöld-
in, en við ákváðum að hafa þessar
sýningar á laugardagseftirmið-
degi og hefjast þær klukkan 14.00
næstu tvo laugardaga, 15. og 22.
janúar.“
Þegar Ólöf er spurð hvort list-
dansinn sé nægilega vel kynntur
hér á landi, segir hún það af og
frá. „Þetta er ung listgrein og við
höfum verið að vinna mjög mark-
visst að því að kynna hana. Það er
gríðarlegt áreiti frá öðrum af-
þreyingum. Þær eru einfaldlega
háværari en dansinn. Hins vegar
er stór fjöldi barna að stunda
dansnám, þótt þau séu ekki mörg í
listdansi. Þau eru kannski ekki
nógu meðvituð um að listdansinn
sé hluti af dansheiminum – en
njóta þess virkilega þegar þau
koma á sýningar hjá okkur.
sussa@frettabladid.is
TÓNLIST
FINNUR TORFI STEFÁNSSON
Víkingur Heiðar Ólafsson
píanóleikari
Salurinn
!
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Börn 12 ára og yngri fá frítt
í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI -
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins
Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
STÓRA SVIÐ
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar á vesturfara-
sögu Böðvars Guðmundssonar
Lau 15/1 kl 20 - rauð kort - UPPSELT
Su 16/1 kl 20 - græn kort - UPPSELT
Fö 21/1 kl 20 - blá kort - UPPSELT
Lau 22/1 kl 20 - UPPSELT
Lau 27/1 kl 20 - Aukasýning
Lau 29/1 kl 20 - UPPSELT, Su 30/1 kl 20
Fi 3/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 5/2 kl. 20, Sun 6/2 kl 20
Fö 11/2 kl 20, Lau 12/2 kl 20
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Fö 14/1 kl 20, Su 23/1 kl 20, Fö 28/1 kl 20
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Su 16/1 kl 14, Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14,
Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14 Síðustu sýningar
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
Fjölskyldusýning
THE MATCH, ÆFING Í PARADÍS, BOLTI
Lau, 15/1 kl 14, Lau 22/1 kl 14
kNÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ
BELGÍSKA KONGÓ
e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Fö 14/1 kl 20, Su 16/1 kl 20
Fi 20/1 kl 10, Su 23/1 kl 20
Su 30/1 Sýningum lýkur í febrúar
AUSA eftir Lee Hall og
STÓLARNIR eftir Ionesco
Í samstarfi við LA
Fi 13/1 kl 20, Lau 15/1 kl 20
Síðustu sýningar
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Fö 14/1 kl 20, Fi 20/1 kl 20, Fö 28/1 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson
Í samstarfi við TÓBÍAS
Frumsýning Su 16/1 kl 20 - UPPSELT
Lau 22/1 kl 20, Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20
ATH: Bönnuð yngri en 12 ára
Frumsýning 11. feb. kl.20.00 – UPPSELT – 2. sýning 13.feb. kl. 19.00
3. sýning 18.feb. kl 20.00 – 4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – FÁAR SÝNINGAR
Námskeið um Toscu og Puccini hjá Endurmenntun Háskóla Íslands
Skráning í síma: 525 4444 – endurmenntun@hi.is
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON
Túlkun hans bar vitni skýrri listrænni
hugsun, þeirri sömu og lýsir sér í efnisvali
og skipun efnisskrár, og næmni til að
koma hugsuninni til skila.
Leikur og gleði í listdansinum
ÆFING FYRIR FJÖLSKYLDUSÝNINGU Sýnd verða þrjú verk sem höfða til breiðs hóps,
sérstaklega yngri kynslóðarinnar.
Víkingur sá og sigraði
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M